Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 1
hugsanlegt að í tilviki einstakra frið- lýsingarflokka yrði samþykki land- eigenda gert að skilyrði fyrir friðlýs- ingu, t.d. vegna stofnunar þjóðgarða. Gera yrði ráð fyrir að ákvörðun um friðlýsingu geti í einhverjum til- vikum takmarkað eignarréttindi landeigenda í þeim mæli að bóta- skylt væri. Telur nefndin ákjósanlegt að kveða sér- staklega á um þennan bótarétt í nýjum lögum um nátt- úruvernd. »12-13 Nefnd sem umhverfisráðherra skip- aði til að endurskoða lög um nátt- úruvernd hefur skilað af sér svo- nefndri hvítbók. Telur nefndin m.a. að útgáfa stjórnvaldsfyrirmæla eins og friðlýsinga eigi að fela í sér stjórnvaldsákvörðun gagnvart land- eigendum og öðrum sem eiga sér- stakra hagsmuna að gæta. Við undirbúning slíkr- ar ákvörðunar verði því gætt ákvæða stjórn- sýslulaga. Nefndin telur einnig Lagt til í hvítbókinni að samþykki landeig- enda verði gert að skilyrði fyrir friðlýsingu Herðubreið M I Ð V I K U D A G U R 7. S E P T E M B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  209. tölublað  99. árgangur  KRISTJÁN TEKUR ÞÁTT Í GJÖRNINGI DEILIR SÖGUM Í SÖNGVUM SÍNUM ADRIAN SITARU UPPRENNANDI MEISTARI Á RIFF ÍSLENSK-ÍRSK BLANDA 10SYNGUR Í 12 KLUKKUTÍMA 31 SJÓNUM BEINT AÐ RÚMENÍU 32 Morgunblaðið/Brynjar Gauti Banki Stíft var fundað fyrir hrun.  Sjö hæstaréttardómarar dæma í ellefu málum sem tengjast falli gömlu íslensku viðskiptabankanna og uppgjöri þeirra, meðal annars gildi neyðarlaganna. Fyrstu tvö málin eru á dagskrá réttarins í þessari viku, m.a. um að innistæður á Icesave-reikningum séu for- gangskröfur. Þrír nýir hæstaréttardómarar tóku til starfa 1. september vegna fjölgunar dómara Hæstaréttar úr níu í tólf. Tveir þeirra, Eiríkur Tómasson og Greta Baldursdóttir, dæmdu í fimmtán málum föstudag- inn 2. september, á sínum öðrum starfsdegi. Nýju hæstaréttardóm- ararnir höfðu fengið aðstöðu í Hæstarétti áður en þeir tóku form- lega til starfa. »6 Sjö manna dómur í ellefu hrunsmálum í Hæstarétti Tekur strax gildi » Í frumvarpinu var gert ráð fyrir að hægt yrði að fjölga að- stoðarmönnum eftir næstu þingkosningar. Nefndin vill að heimildin taki þegar gildi. » Ekkert kemur fram um hvort fjölgun aðstoðarmanna þýði að draga megi úr fjölda annarra starfsmanna ráðuneytanna. Egill Ólafsson egol@mbl.is Breytingar sem meirihluti allsherj- arnefndar Alþingis vill gera á lögum um stjórnarráðið fela í sér að aðstoð- armenn ráðherra geta mest orðið 23. Þeir eru 10 í dag, en auk þess eru nokkrir ráðherrar með sérstaka ráð- gjafa. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, gagn- rýnir þessa breytingu, en Álfheiður Ingadóttir, varaformaður allsherjar- nefndar, segir þörf á að styrkja póli- tíska stefnumörkun ráðherra. Lagt er til að hver ráðherra geti ráðið til sín tvo aðstoðarmenn, en ríkisstjórnin geti ráðið þrjá til við- bótar ef þörf krefur. Með þessu sé hægt að bregðast við auknu álagi í einstökum ráðuneytum. Álfheiður segir að meirihluti nefndarinnar hafi talið rétt að styrkja pólitíska stefnumörkun í ráðuneytunum. Hún segir að það hafi verið lítil festa í kringum þessi mál í gegnum árin. Oft hafi verið gagnrýnt að ráðherrar væru með að- stoðarmenn og ráðgjafa til viðbótar. Í BA-ritgerð í stjórnmálafræði frá 2009 kemur fram að aðstoðarmenn eða ráðgjafar ráðherra hafa lengst af verið 12, en voru flestir 17 á árunum 1999-2003. Sigurður Kári segir ekki þörf á að fjölga aðstoðarmönnum ráðherra. Hann gagnrýnir frumvarpið al- mennt og segir það einkennast af „forsætisráðherraræði“. Forsætis- ráðherrann eigi að hafa alla þræði í sinni hendi. Hann segir ekkert vera á bak við tal um opna stjórnsýslu. Allt að 23 aðstoðarmenn  Allsherjarnefnd þingsins leggur til að aðstoðarmönnum ráðherra verði fjölgað  Sjálfstæðismenn segja frumvarpið einkennast af „forsætisráðherraræði“ Fjölgun HIV-smitaðra reynir mjög mikið á smitsjúkdómadeild Land- spítalans. Þar eru fimm stöðugildi, en Magnús Gottfreðsson, sérfræð- ingur í smitsjúkdómum á Landspít- ala, segir að á spítölum í Svíþjóð sem sinni jafnmörgum sjúklingum starfi 15-20 sérfræðingar. „Þannig að við erum með mannafla sem nemur einum þriðja af því sem er talið eðlilegt þar,“ segir Magnús. Í fyrra greindust 24 einstakling- ar hér á landi með HIV-smit. Aldrei áður hafa jafnmargir greinst á einu ári. Það sem af er þessu ári hafa 17 greinst HIV-smitaðir. Þar af hafa þrír einstaklingar greinst með al- næmi á lokastigi. Allt eru þetta karlmenn sem komnir eru á miðjan aldur. Sjúkdómurinn uppgötvaðist eftir að þeir leituðu til læknis vegna veikinda sem ekki hafði fundist skýring á. Haraldur Briem sótt- varnalæknir segir heilbrigðis- starfsfólk ekki hafa séð svona tilvik árum saman og mikilvægt sé fyrir lækna og almenning að hugsa út í að veikindi geti stafað af HIV-smiti. »6 Miklu færra starfsfólk  Þrír karlmenn hafa greinst með alnæmi á lokastigi í ár Langur meðgöngutími » Fólk getur gengið með HIV-smit í 10-15 ár áður en það fær lokastig sjúkdómsins. Haraldur segir að gagnkynhneigðir karlmenn sem komnir eru á miðjan aldur og eiga fjölskyldu hugsi ekki mikið út í að þeir kynnu að vera HIV-smitaðir, en það sé hins vegar nauðsynlegt fyrir almenning og lækna að vera sér meðvitandi um þennan sjúkdóm. Íslendingar lögðu Kýpurbúa, 1:0, á Laug- ardalsvellinum í gærkvöld og innbyrtu þar með fyrsta sigurinn í sjö leikjum í und- ankeppni Evrópumótsins. Íslenska liðið fór þar með upp fyrir Kýpur og í fjórða sætið í riðlinum. Kolbeinn Sigþórsson skoraði sig- urmarkið strax í byrjun leiksins og fagnar hér ásamt Jóhanni Berg Guðmundssyni og Birki Bjarnasyni. » Íþróttir Kolbeinn tryggði langþráðan sigur Íslands Morgunblaðið/Eggert Ríkisstjórnin hyggst framlengja álagningu auðlegðarskatts. Þetta kemur fram í viljayfirlýsingu ís- lenskra stjórnvalda í tengslum við sjöttu og síðustu endurskoðun efna- hagsáætlunar Al- þjóðagjaldeyr- issjóðsins. Til stóð að skatturinn yrði greiddur fram til ársins 2013. Auð- legðarskatturinn er nú 1,5% og leggst hann á hreina eign um- fram 75 milljónir í tilfellum einstaklinga og 100 millj- ónir í tilfelli hjóna. Hann getur kom- ið tekjulágum, sem hafa komið sér upp eignum á borð við húsakost, illa. Mikill meirihluti þeirra fjölskyldna sem borguðu auðlegðarskatt árið 2009 er með heildartekjur undir fimm milljónum á ári. »14 Auðlegðarskattur verður framlengdur 5 Flestir sem greiða skattinn eru með minna en 5 milljónir í heildartekjur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.