Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjart-
ansson mun fremja lokagjörning
gjörningahátíðarinnar Performa í
New York hinn
19. nóvember
næstkomandi og
hefur fengið stór-
söngvarann
Kristján Jó-
hannsson til að
taka þátt í hon-
um. Kristján
mun, ásamt
Ragnari og kór,
syngja hæga kafl-
ann í lokaþætti óperunnar Brúðkaup
Fígarós eftir W.A. Mozart og verður
sá hluti, rúmar fimm mínútur að
lengd, endurtekinn í sífellu í tólf
klukkustundir. 18 manna hljómsveit
mun leika undir, skipuð tónlist-
armönnum frá New York. Kjartan
Ragnarsson, faðir Ragnars, mun
leikstýra hópnum og Davíð Þór Jóns-
son tónlistarmaður mun gegna hlut-
verki tónlistarstjóra en Hilmar Örn
Agnarsson hefur séð um raddþjálfun
söngvaranna.
„Þau koma með mér, nemendur
mínir, líka. Það eru allar raddirnar
og kór og hljómsveit. Söngvararnir
koma allir, mér til mikillar ánægju,
frá mér og með mér, nemendur mín-
ir bæði í skólanum og utan skólans,“
segir Kristján en hann kennir söng
við Söngskóla Sigurðar Demetz.
„Þannig að við verðum tíu saman og
ég syng greifann sem er náttúrlega
bass bariton en ekkert „big deal“.
Það er nú stutt stórra högga á milli
hjá Mozart og sópran og mezzosópr-
an geta nánast sungið bæði hlut-
verkin og svo baritón og tenór. Þann-
ig að þetta verður mjög gaman.“
Kristján segist afar hrifinn af list
Ragnars og telur hann einn af mest
spennandi listamönnum Íslands.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég tek
þátt í svona gjörningi. Á Íslandi eru
menn mikið fyrir þetta en ég hef svo-
lítið haft það hugarfar að þetta sé
svona gervilist, að vekja á sér athygli
með einhvers konar gervilist.“
– Nú þarftu að endurskoða það?
Kristján hlær og tekur undir það.
„Ekki síst vegna þess að hann er bú-
inn að sýna að hann er virkilegur
listamaður og er að gera mjög fína
hluti.“
Ragnar í hlutverki Antonio
– Verðið þið í búningum?
„Já, já, það verða búningar teknir
að láni hjá Þjóðleikhúsinu. Þeir eru
nú flestir til á mig þar ennþá, í arkíf.
Það þarf ekki að fara mjög langt,“
segir Kristján og hlær. Hann verði í
búningi sem hann var í þegar hann
söng í Grímudansleik Verdi árið
1985. „Þetta er nú þegar komið á síð-
ur New York Times þannig að þetta
kemur örugglega til með að vera
bæði spennandi verkefni og vekja
mikla athygli.“ Kristján segir Ragn-
ar vera að leita að gömlu leikhúsi til
að flytja gjörninginn í, hann vilji
helst hafa það gamalt og hrörlegt.
– Ég frétti af því að þú hefðir tekið
Ragnar í söngkennslu …
„Já, hann ætlar að syngja þarna
sjálfur, garðyrkjumanninn Antonio.
Það er svona tenór-barítón, eins og
ég sagði áðan er stutt stórra högga á
milli hjá Mozart. En ég held að hann
sé tenór en við látum hann syngja
sem barítón. Hann ætlar að syngja
þetta stutta hlutverk, hann er búinn
að vera hér af og til hjá mér í sumar,
aðeins að leggja röddina og setja
þetta.“
– Ertu búinn að tuska hann til?
„Já, það er engin miskunn og ég er
búinn að leggja mig fram við að
koma þessu sem allra best frá hon-
um,“ segir Kristján og hlær. Ragnar
sé mikill túlkandi og það sé það mik-
ilvægasta, tónninn sé einskis virði án
túlkunar. „Ég held hann gæti sung-
ið,“ segir Kristján að lokum. Ekki
náðist í Ragnar í gær.
Syngur í 12 tíma
gjörningi Ragnars
Lokakaflinn í Brúðkaupi Fígarós endurtekinn í sífellu
Fyrsti gjörningurinn sem Kristján tekur þátt í Kjartan
Ragnarsson leikstjóri og Davíð Þór Jónsson tónlistarstjóri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mozart Kristján Jóhannsson í Hofi í fyrra. Hann mun syngja hæga kaflann í
Brúðkaupi Fígarós í gjörningi Ragnars Kjartanssonar í New York.
Ragnar
Kjartansson
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Ferill DeAnne Smith, sem er Banda-
ríkjamaður búsettur í Kanada, hefur
í senn verið snarpur og tilkomumik-
ill. Hún hóf að koma fram 25 ára að
aldri og hefur síðan ferðast marga
hringi í kringum heiminn og komið
fram á tugum hátíða. Blöð eins og
Guardian hafa lofað frammistöðu
hennar og hún hefur komið fram í
Last Comic Standing á NBC, The
Comedy Network og mun koma
fram á HBO Canada í ár. Í sumar
gerði hún skurk mikinn á Edinburgh
Fringe Festival og er á leið í frekari
strandhögg í haust. Stopp hennar
hér á klakanum er tilkomið vegna
vinfengis hennar við Rökkva Vé-
steinsson, sem er í grínhópnum Inn-
rásarvíkingarnir, en þau kynntust í
Montreal þegar DeAnne var að
byrja í bransanum og hafa oft komið
fram saman þar gegnum árin.
Djúpstæð þörf
– Af hverju uppistand?
„Listformið uppistand er mjög
frjálslegt og býður upp á mikinn
sveigjanleika. Í því eru falin tjáskipti
þar sem hópur af ólíku fólki nær
saman í gegnum hláturinn – og það
er mjög fallegt. En meginástæðan er
ábyggilega þessi djúpstæða þörf mín
fyrir athygli og samþykki. Já, og svo
fíla ég brandara og hljóðnema.“
– Hvernig er að vera kvenkyns
uppistandari. Hefur þú orðið vör við
fordóma, erfiðleika?
„Ég veit ekki alveg hvernig ég á
að svara þessu, þar sem ég veit ekki
hvernig það er að vera karlmaður í
þessum bransa. Ég held samt að
uppistand jafni hlutina dálítið út.
Það sem er fyndið er fyndið. Að því
sögðu, þá hefur verið hrópað á mig:
„Farðu úr að ofan!“ eitthvað sem
karlkyns kolleggar mínir lenda
ábyggilega sjaldan í.
Hræðileg í markaðssetningu
– Svo virðist sem þú sért á þrösk-
uldi heimsfrægðar. Tekur þú undir
það?
„Ég er búin að vera í þessu í sex
ár núna. Ég hef verið linnulítið að
síðan ég fór á fyrsta „opna hljóð-
nema“-kvöldið mitt. Ég fór að
þrýsta á meiri tíma á sviðinu, fór að
ferðast og fór að taka þátt í hátíðum.
Eina leiðin til að vera góður í þessu
er að gera þetta þannig að ég reyni
að vera eins upptekin og ég mögu-
lega get. Þú verður að skilja að ég er
hræðileg í öllu því sem kalla má
markaðssetningu. Það eina sem ég
er góð í er að segja orð sem fá fólk til
að bregðast við með magakrampa-
köstum. Ef ég geri þetta ekki fer ég
bara að vinna í verslun eða í sértæku
vændi (lesbískt, bókasafnsblæti.
Einhver?). Þannig að þú sérð að
þetta verður að ganga upp hjá mér!“
– Hvaða stíl beitir þú fyrir þig og
áttu þér einhverjar fyrirmyndir?
„Ég get varla svarað þessu, mér
finnst ég bara vera ég. Gagnrýn-
endur hafa sagt mig „snjalla“ og að
ég „greini hluti á jaðarbundinn
hátt“. Ég veit eiginlega ekki hvað
það þýðir. Hmm … ég er ekki að
selja sýninguna er það nokkuð. Hei,
þið verðið bara að koma og sjá! Hvað
fyrirmyndir varðar held ég mest upp
á Mariu Bamford, Louis C.K. og Bill
Hicks. Uppáhaldstyggjóin mín eru
svo minta, sterk minta og allt með
heitinu „cool blast“.“
Lesbískt
bókasafnsblæti
Grín „Já, og svo fíla ég brandara og
hljóðnema …,“ segir Smith m.a..
Bandaríski uppistandarinn DeAnne
Smith treður upp á Sódómu Marg-
verðlaunuð og á þröskuldi heimsfrægðar
Uppstandið hefst kl. 21.00. Rökkvi
Vésteinsson hitar upp.
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR
A.K. - DV
FRÁ LEIKSTJÓRA
SUPER SIZE ME
5%
30 MINUTES OR LESS KL. 8 - 10 14
THE CHANGE-UP KL. 6 - 8 - 10 14
SPY KIDS 4 4D KL. 6 L
T.V. - KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT
30 MINUTES OR LESS LÚXUS KL. 4 - 6 - 8 - 10 14
30 MINUTES OR LESS KL. 6 - 8 - 10 14
Á ANNAN VEG KL. 8 10
THE CHANGE-UP KL. 5.30 - 8 - 10.30 14
SPY KIDS 4 4D KL. 3.30 - 5.50 - 8 L
COWBOYS AND ALIENS KL. 10 14
STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 L
STRUMPARNIR 2D ÍSL. TAL KL. 3.30 L
FRIENDS WITH BENEFITS KL. 10.10 12
Á ANNAN VEG KL. 6 - 8 - 10 10
30 MINUTES OR LESS KL. 8 - 10 14
THE CHANGE-UP KL. 8 - 10.30 14
GREATEST MOVIE EVER SOLD KL. 5.50 L
SPY KIDS 4D KL. 5.50 L
CONAN THE BARBARIAN KL. 10.20 16
ONE DAY KL. 5.30 - 8 L
Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN
FRÁBÆR ÍSLENSK
GAMANMYND
-K.H.K., MBL
- H.V.A. - FRÉTTABLAÐIÐ
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THE DEVILS DOUBLE Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:20
THE CHANGE-UP Sýnd kl. 8 - 10:20
SPY KIDS 4 4-D Sýnd kl. 6
CONAN THE BARBARIAN Sýnd kl. 8 - 10:20
STRUMPARNIR 3-D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
HÖRKU SPENNUMYND
HANN ER FÆDDUR STRÍÐSMAÐUR
HEFURÐU EINHVERN TÍMANN
VILJAÐ VERA EINHVER ANNAR?
FRÁ LEIKSTJÓRA
WEDDING CRASHERS
OG HANDRITSHÖFUNDUM
THE HANGOVER
Í FYRSTA SINN
Á ÍSLANDI!
BÍÓMYND
Í FJÓRVÍDD!
BYGGÐ Á SANNRI SÖGU!
ÞRÆLMÖGNUÐ MYND UM SON
SADDAM HUSSEIN
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
Hvar í strumpanum
erum við ?
Sýnd í 3D með
íslensku tali