Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011 ✝ Knútur Berg-sveinsson fæddist á Fróðá á Snæfellsnesi 13. júlí 1925. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 30. ágúst 2011. Foreldrar Knúts voru Magdalena Ásgeirsdóttir hús- móðir, f. 13. nóv- ember 1903, d. 14. október 1992, og Bergsveinn Haraldsson, kennari, f. 7. sept- ember 1895, d. 6. október 1945. Systkini Knúts eru: Auður Ólína, f. 1927, d. 1928, Auðunn, f. 1929, Ragnhildur Guðrún, f. 1931, Hreinn, f. 1934, Auður Jó- hanna, f. 1936 og Bergljót, f. 1942. Knútur ólst upp á Fróðá fram til fimm ára aldurs og fluttist þá með foreldrum sínum til Ólafsvíkur og bjuggu þau í Bjarnahúsi til haustsins 1945 er faðir Knúts andaðist. Móðir hans flytur sumarið eftir ásamt börnum sínum sex, þá á aldr- Knútur kvæntist hinn 20. júlí 1963 Dýrólínu (Lóu) Eiríks- dóttur, frá Vatnshlíð í Húna- vatnssýslu, f. 13. nóvember 1932. Foreldrar hennar voru Kristín Vermundsdóttir f. 1898, d. 1973 og Eiríkur Sig- urgeirsson, f. 1891, d. 1974, sem lengst af voru bændur í Vatnshlíð í Húnavatnssýslu. Knútur og Lóa eignuðust þrjú börn sem eru Logi, f. 1952, maki Ásta Kristjánsdóttir, f. 1954, búsett í Kópavogi, Auð- björg Halla Knútsdóttir, f. 1956, maki Sæmundur Kr. Þor- valdsson, f. 1956, búsett í Dýra- firði og Auður Lena Knúts- dóttir, f. 1965, maki Rúnar Emilsson, f. 1962, búsett í Þýskalandi. Barnabörn og barnabarnabörn þeirra hjóna eru orðin átján. Fyrstu búskaparárin bjuggu Knútur og Lóa í Fossvoginum þar til þau fluttu í hús móður Knúts á Borgarholtsbraut 35. Á lóð hennar byggðu þau hús sem nú stendur við Melgerðið er þau fluttu í árið 1955 og bjuggu þar fram til október 2008 þegar þau færðu sig um set yfir í Sunnuhlíð að Kópavogsbraut 1a. Útför Knúts fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 7. sept- ember 2011, kl. 13.00. inum 4ra til 21 árs í Kópavoginn að Borgaholtsbraut 35. Knútur var í skóla í Reykholti veturinn 1943-1944 og á Laugarvatni veturinn 1944- 1945. Hugurinn stefndi á meira nám sem ekki gekk eftir. Knútur byrj- aði ungur að vinna í vegagerð á sumrin og síðar á vertíðum og við hafnargerðir. Fram til árs- ins 1949 var hann í ýmiss konar íhlaupavinnu þar til hann hóf störf hjá Ölgerð Egils Skalla- grímssonar og starfaði hann þar uns hann byrjaði að vinna á trésmíðaverkstæði Sigurðar Elíassonar. Við trésmíðastörfin starfaði hann fram til ársins 1990 en þar á eftir sem leið- beinandi í Bergiðjunni í tvö ár. Frá árinu 1992 var hann hús- vörður á Heilsugæslustöðinni í Kópavogi sem hann sinnti í þrjú ár, þá orðinn sjötugur. Elsku pabbi, við sendum þér okkar hinstu kveðju með þessu ljóði. Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkar minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um landið út og inn er fjársóðurinn okkar pabbi minn. (Denver/Guðrún Sigurbjörnsdóttir.) Hvíl þú í ljósi og friði, elsku pabbi. Logi, Auðbjörg Halla og Auður Lena. Kærleiksríkur tengdafaðir minn. Söknuður himinninn grætur húsið kjökrar hvar ertu – hvert fórstu niðdimm nótt nætur og daga nú þegar þú ert … ekki. (Hugskot, höf.ók.) Elsku Knútur, takk fyrir alla þína ást og umhyggju, alltaf. Þín tengdadóttir Ásta. Elsku afi minn. Frá því að ég fæddist fyrir rúmum 20 árum hefur þú verið stór partur í lífi mínu og það er virkilega skrítið að hugsa til þess að núna sé samvistum okk- ar í þessu lífi lokið. Þú tókst allt- af á móti mér með svo mikilli ást og virðingu, rétt eins og öllum öðrum sem voru þér kærir. Þú hafðir mjög sterka rétt- lætiskennd og vildir öllum svo vel. Þú fordæmdir allt misréttið, peningagræðgina og þá mann- vonsku sem er svo oft ríkjandi í heiminum okkar. Í samtölum okkar um líf eftir dauðann þá varstu fullviss um að í þessu lífi værum við einungis í „tossa- bekk“ og eftir að við útskrifumst héðan biði okkar annað tækifæri þar sem við fengjum að halda áfram að læra og þroskast þar sem kærleikur og virðingin fyrir hvert öðru færi vaxandi. Ég er svo hjartanlega sammála þér og ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þetta samtal við þig. Ég á eftir að sakna þess mikið að sjá þig blanda hollustumaukið þitt í hádeginu sem var svo virki- lega ógirnilegt en líka svo mein- hollt. Að hafa þig hjá mér á jól- unum, sitjandi í leðurstólnum með spenntar greipar, snúa þumalfingrunum í hringi og hlusta á jólakveðjurnar á Þor- láksmessu. Að fá þéttingsfast afaknús í hvert skipti sem ég hitti þig eða kvaddi. Það eru svo óteljandi margar góðar og skemmtilegar minningar sem að ég á um þig. Þú varst glettinn og fyndinn en jafnframt líka yfir- vegaður, hugsandi og kærleiks- ríkur. Ég sakna þín mikið en er fyrst og fremst er ég þakklát fyrir að hafa kynnst þér og gleðst yfir því að Blómarósin okkar sé búin að fá þig til sín. Ég veit að hún hefur tekið vel á móti þér rétt eins og allir aðrir ástvinir sem þú hittir á ný. Kærar þakkir fyrir að hafa fengið að vera barnabarnið þitt. Góða ferð, við sjáumst. Þín, Salvör Sæmundsdóttir. Elsku afi minn er dáinn. Ég er ekki enn farin að trúa því að hann sé farinn frá mér og taki ekki glaðhlakkalegur á móti mér næst þegar ég kem suður og kíki í heimsókn í Sunnuhlíðina. Það eru svo mikil forréttindi að hafa fengið að kynnast afa mínum, þessum manni sem átti svo endalausa ást að gefa. Í hvert sinn sem ég birtist í heim- sókn ljómuðu glettin augu hans og andlitið lýstist upp í brosi þegar hann knúsaði mig fast og kyssti og sagði svo alltaf „er þetta Hálandadrottningin?“ Já, mér leið alltaf eins og drottningu þegar ég leit í þessi fallegu augu, enda ekki annað hægt, af slíkri ást horfði hann á mig og reyndar okkur öll, enda elskaði hann fátt heitar en fjöl- skylduna sína og blessuð börnin eins og hann sagði svo oft. Elsku afi, mikið vildi ég óska þess að ég hefði fengið að eiga þó að ekki væri nema örlítið meiri tíma með þér, við áttum eftir að ræða svo margt og gera. Núna ertu búinn að finna Blómarósina okkar aftur og ég veit að þá líður þér vel. Ég kveð þig með sárum sökn- uði í hjarta. Þú áttir engan þinn líka og ég mun aldrei gleyma öll- um þeim óteljandi dýrmætu stundum sem við áttum saman. Takk fyrir allt, elsku afi minn. Nú hefur það því miður gerst að vond frétt til manns berst Kær vinur er horfinn okkur frá því lífsklukkan hans hætti að slá Rita vil ég niður hvað hann var mér kær afi minn góði sem guð nú fær Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt og því miður get ég ekki nefnt það allt Að tala við hann var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum saman Hann var svo góður, hann var svo klár æ, hvað þessi söknuður er svo sár En eitt er þó víst og það á við mig ekki síst að ég sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt hann var mér góður afi, það er klárt En alltaf í huga mínum verður hann afi minn góði sem ég ann í himnaríki fer hann nú þar verður hann glaður, það er mín trú Því þar getur hann vakið yfir okkur dag og nótt svo við getum sofið vært og rótt hann mun ávallt okkur vernda vináttu og hlýju mun hann okkur senda Elsku afi, guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú. (Katrín Ruth.) Ástarkveðja þín, Lena Dóra. Elsku afi minn. Veikindin þín bar heldur bet- ur snöggt að og tóku stuttan tíma. Þrátt fyrir öll árin sem ég fékk að vera með þér var ég ekki tilbúin að sleppa hendinni af þér. Það sem mér er minnisstæðast, mun aldrei gleyma og sakna mest, voru kossarnir og knúsin frá þér í hvert skipti sem við hittumst. Einlæg ást þín til okk- ar allra var svo greinileg. Þér varð tíðrætt um heilsu okkar allra. Þú minntir okkur stöðugt á hversu mikilvæg hún væri. Ósjaldan ræddir þú um æf- ingar mínar í Gerplu og síðar barnanna minna. Enda var mik- ilvægi mataræðis og hreyfingar þér alltaf ofarlega í huga. Alltaf lagðir þú áherslu á að allir þyrftu að taka lýsi. Afi, auðvitað tökum við lýsi, bara ekki alveg á hverjum degi eins og þú vilt að við gerum, en ég lofa þér því, við erum að reyna að bæta okkur. Ég mun einnig minnast þín fyrir það hversu vel þú varst að þér í málefnum líðandi stundar. Þegar við hittumst var alltaf gaman að ræða málin við þig. Mér þótti líka einstaklega vænt um hvað þú hafðir strax frá upp- hafi gaman af því að rökræða málin við Jón en þið sátuð oft af- síðis og skiptust á skoðunum um allt milli himins og jarðar. Það var svo greinilegt að þið höfðuð báðir mjög gaman af. En elsku afi, núna ertu kom- inn til Lóu okkar og veit ég að hún tekur vel á móti þér. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson.) Elsku afi, takk fyrir allar samverustundirnar. Guð veri með þér. Risastórt knús til þín frá mér. Linda Björk Logadóttir. Elsku langafi okkar Þau dásamlegu ár sem við fengum að kynnast þér eru ómetanleg. Þú varst svo góð- hjartaður og kærleiksríkur. All- ar þær stundir sem við systkinin áttum með þér voru yndislegar. Þú varst alltaf svo kátur og glað- ur þegar þú sást okkur systk- inin. Við getum ekki verið þakk- látari fyrir allan þennan tíma sem þú varst hjá okkur. Takk fyrir allar góðu stundirnar, langafi, megi guð geyma þig. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Kveðja, Elsa, Laufey, María, Andri og Logi. Knútur bróðir minn er lagður af stað til framhaldslífs með ei- lífðarverunni. Hann var 9 árum stærri en ég og því kom í hans hlut að gæta litla bróður og bera á háhesti í leikjum félaga hans og jafn- aldra. Hann var góður fákur, kátur og liðugur og alltaf í góðu skapi og söng af hjartans lyst með byrði sína. Leiklist framdi hann ungur á fjölum litla samkomuhússins í Ólafsvík og það átti nú við pilt. Þannig liðu æskuár okkar í áhyggjuleysi og yndisleik sínum, en allt gott hefur endi og alvara lífsins kvaddi dyra við fráfall föður okkar, sem kvaddi stóra barnahópinn sinn alltof fljótt. Móðir okkar, stórhuga kona, ákvað að framtíð okkar yrði bet- ur tryggð til mennta og afkomu í borginni og flutti með börn sín á vit framtíðar. Örlagadísir réðu búsetu í Kópavogi, þar sem móð- ir okkar festi kaup á nýbyggðu litlu húsi. Síðar lá leið okkar til búsetu í Reykjavík og víðar, en Kópavogur varð framtíðarbær okkar bræðra allra. Knútur teiknaði og smíðaði húsgögn sem báru vitni þeim högu höndum sem honum voru gefnar og byggði með höndum tveim húsið sitt í Melgerði. Knútur bar með sér ferskan blæ, gleði vináttu og heiðarleika og laðaði að sér allar gerðir fólks til leiks og starfa og batt tryggða- böndum. Kórstarfið í Skagfirsku söng- sveitinni var honum dýrmætt og gefandi, þar var hann í essinu sínu og upplifði dýrlega daga í söng og ferðalögum. Fjölskyldu- maður var hann góður, elskaður gleðigjafi, faðir og afi sem hafði mikið að gefa. Fjölskylda mín kveður góðan dreng eftir langa og góða sam- leið og biður Knúti blessunar á eilífðarvegum. Lóu og börnum þeirra og fjölskyldum vottum við samúð okkar og biðjum huggun- ar. Hreinn Bergsveinsson. Smá kveðja til frænda sem alltaf var til. Á hverjum degi heimurinn á fætur alltaf fer hversdagslegur vaninn lætur ekki hæða að sér. Vanabundin hringrás lífsins veitir okk- ur skjól venjan okkar öryggi er förum við á ról. Lífsklukkan í brjóstum okkar tifar hægt og hljótt við vitum það að eftir bjartan daginn kemur nótt. Enginn væri regnboginn ef ekkert félli regn engin litafegurð brytist sólin ekki í gegn Þannig er víst tilveran og þannig þrífumst við þekkjum okkar takmörk vel og lífsins mörgu svið sorg og gleði systurnar sem fylgjast alltaf að órjúfanleg heild sem hvorki spyr um stund né stað. Svo berst sú frétt að góður frændi fallið hafi frá um stund þá staðnar tilveran og verð- ur dimm og grá því einmitt þessi frændi sem að kvaddi um óttubil í þessu lífi hefur bara alltaf verið til. Sálin verður auð og tóm og tíminn staldrar við stundin myrka þykk og þung en svo fer allt á skrið Tárin streyma niður kinn og kökkurinn er sár með eftirsjá í huga þakka öll hin góðu ár. Minningarnar sækja á og margt um hugann fer myndir streyma hratt í gegnum höfuðið á mér Tregablandnar tilfinningar togast á um stund tárvot augun myndrænt skoða marg- an gleðifund. Nú aldan brotnar hæg og hljóð við strönd í Ólafsvík jökullinn til himins rís, sú fegurð engu lík um nesið hljóðlátt hvíslar golan fréttina um það að hann sé kominn aftur heim á æskudraumastað. (Bergljót Hreinsdóttir.) Takk elsku frændi fyrir allt sem þú kenndir mér um lífið og tilveruna með gleði þinni og góð- mennsku. Takk fyrir hlýjuna þína og brosið sem alltaf mætti mér, hvar sem ég hitti þig. Takk fyrir ótalmörg innileg faðmlög og elskulegheit. Takk fyrir öll uppörvandi hrósin þín og hvatn- ingarorðin sem ég veit að komu beint frá hjartanu þínu. Takk fyrir fallegu símtölin þín, það var alltaf gaman að fá þau, þú mátt vita að þau voru mér mikils virði. Takk fyrir að hafa alltaf trú á mér, skellibjöllunni og hlátur- púkanum sem fór ekki alltaf hljóðlega um húsið þitt í Mel- gerðinu. Takk fyrir að hafa verið til, elsku frændi. Óska þér góðrar feðrar og notalegrar heimkomu, veit að þar verður tekið vel á móti þér. Elsku Lóu minni og fjöl- skyldu votta ég samúð mína alla. Kær kveðja. Bergljót Hreinsdóttir. Í dag þegar við kveðjum okk- ar góða vin og félaga Knút Berg- sveinsson koma fram margar ljúfar minningar. Við undirrituð kynntumst þeim góðu hjónum Knúti og Lóu í starfi og söng með Skagfirsku söngsveitinni fyrir mörgum árum en söngur og tónlist var mikill gleðigjafi hjónanna og eigum við skemmti- legar minningar frá söngferð- um, bæði innanlands og utan. Knútur hafði fallega tenórrödd sem hann beitti af mýkt og smekkvísi. Úr þessum félagsskap mynd- aðist síðan 10 manna ferðahópur sem farið hefur árlega í viku- ferðir innanlands og var þá gott að hafa Knút þar fremstan í flokki því hann var fagurkeri og hafði næmt auga fyrir því fagra sem náttúran og landið hefur upp á að bjóða. Síðasta ferð hópsins okkar var farin í Fljóts- hlíðina í sumar. Þar áttum við yndislega daga og Hlíðin skart- aði sínu fegursta. Knútur lék á als oddi og við héldum upptekn- um hætti að ferðast, grilla og syngja saman. Þessa ferð verður gott að eiga í minningunni. Elsku Lóa og fjölskylda, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um Knút mun lifa í hjörtum okkar. Svana, Ásgeir, Stella, Þórður, Ninna og Þorkell. Knútur Bergsveinsson Svo margs er að minnast þegar við lítum yfir farinn veg í lífinu. Með þakk- læti í huga kveðjum við þig „Heiðmerkurhöfðingi“. Ófáar voru stundirnar sem við áttum með þér, Jónu og börnunum ykkar þremur á Stöðvarfirði. Í huga okkar allra eru samveru- stundir fjölskyldna okkar, ár- lega á jóladag, nokkuð sem enginn vildi missa af. Þá var ætíð glatt á hjalla, mikið Kjartan Guðjónsson ✝ Kjartan Guð-jónsson fæddist á Stöðvarfirði 22. maí 1931. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Eir í Reykja- vík 19. ágúst 2011. Kjartan var jarð- sunginn frá Stöðv- arfjarðarkirkju 27. ágúst 2011. skrafað saman, tekið í spil og veitingar af bestu gerð. Myndasýn- ing þín, bæði úr náttúrunni og eins af krökkunum, sló ætíð í gegn og varð ein af jóla- hefðunum. Þrátt fyrir að krakkarn- ir yxu úr grasi og flygju úr hreiðri eitt af öðru vissu allir að strengurinn var sterkur og að fjölskyldutengslin myndu ávallt vera til staðar. Við mun- um öll minnast þín með þakk- læti í huga fyrir allar dýr- mætu samverustundirnar og sendum Jónu og krökkunum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Guðmundur, Dóra og börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.