Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011 Mezzoforte bbbmn Jazzhátíð Reykjavíkur lauk með stuði þegar Mezzoforte lék fyrir fullri Eldborg – öðruvísi mér áður brá er Mezzo lék í Hákólabíói 1985 með blásurunum Jens Winther og Dale Barlow og fjórðungur sæta set- in. 1983 höfðu þeir slegið í gegn í Englandi með Garden Party Eyþórs Gunnarssonar og fyllt bíóið, en síðan hafa þetta fjögur, fimm hundruð manns sótt tónleika þeirra hér heima þegar best lætur þó að þúsundir og tugþúsundir sæki tónleika þeirra í Evrópu og Asíu. Megi á gott vita hafi spámaðurinn fundið sitt föðurland. Tónleikarnir voru blanda af gömlu og nýju efni og flutt af þeirri færni er einkennir þessa gömlu meistara með Eyþór Gunnarsson fremstan í flokki á hljómborðin, Jóa Ásmunds og Gulla Briem brennandi í hryninum með þumal og kjuða og Óskar Guð- jónsson saxófónleikara með tilraunir til endurnýjunar á gömlu tónmáli. Svo voru sá pólskþýski trompet- og hljómborðsleikari Sebastian Stud- nitzky og þýski gítaristinn Bruno Mueller pottþéttir að vanda. Aftur á móti er ekki mikil nýsköpun í tónlist Mezzoforte og þeir leyfa sér sjaldn- ast að láta gamminn geisa – það gera þeir í öðrum hljómsveitum. Danilo Pérez bbbbn Jazzhátíð Reykjavíkur hefur að flestu leyti verið einstaklega vel heppnuð í ár. Panamíski píanistinn Danilo Pérez var höfuðstjarna hátíð- arinnar og hann er sannarlega magnþrunginn píanisti og ekki eru þeir neinir aukvisar félagar hans, Ben Street bassisti og Adam Cruse trommari. Þarna var Monk á dag- skrá, „Ask me now“ panamískir söngvar og verk Danilos. Flest frá- bærlega spilað en dálítið rýrði það tónleikana er Danilo virkjaði söng- kraftinn í salnum og lét syngja ótt og títt og alltof lengi. Það er að vísu gaman að heyra hve Íslendingar eru orðnir opnir á tónleikum. Ég man þá tíð er Dizzy Gillespie tókst varla að láta landann kyrja í tvígang „Salt Peanuts“. Tríóið var þó oftast svo brilljant að maður gleymdi næt- urklúbbasjóinu. Eyþór Gunnarsson og Davíð Þór Jónsson bbbmn Fyrr um daginn voru tveir íslenskir píanómeistar í Norðurljósum, Eyþór Gunnarsson og Davíð Þór Jónsson. Þeir slógu stóru Steinway-flygla Hörpunar og svo vel voru þeir sam- stilltir að segja mátti að þarna hafi verið ein sál að leika á tvöflaldan flygil. Efnisskráin var sambland af imprerssjóníkum hugleiðingum yfir stef á borð við „This foolish things“, „Autum leaves“ og „Body and soul“, svoog fjöri í bíbopp línum, Tomma R. og Jóni Múla. Væri þetta klippt til væri hægt að gefa út glæsidisk. Hilmar Jensson og Eyvind Aar- set bbbbn Aðrir dúetttónleikar voru í Kaldalóni Hörpunnar með gítaristunum Hilm- ari Jenssyni og Norðmanninum Ey- vind Aarset. Manni hafa oft þótt gít- aristarnir sem Hilmar hefur leikið dúetta með harðir undir tönn, en hér var heiðríkja yfir spunanum og eng- inn minimalismi á ferðinni. Tært ljóð og heiður hausthiminn. Óskar Guðjónsson og Skúli Sverrisson bbbbm Sama má segja um dúetttónleika Óskars Guðjónssonar og Skúla Sverrissonar í Þjóðmenningarhús- inu, nema hvað laglínan var þar til hásætis reidd. Margt var af skífu þeirra „Eftir þögnina“ en fleira af skífu sem væntanleg er á árinu, en þar skrifar Skúli alla tónlistina. Stefán S. Stefánsson og Ólafur Jónsson ásamt hrynsveit bbbnn Múlinn hefur staðið fyrir tónleikum í Norræna húsinu á djasshátíð. Ég nefni bara „Tenórana tvo“ Stefán S. Sefánsson og Ólaf Jónsson, sem blésu fyrst og fremst lög eftir breska saxófónleikarann David O’Higgins. Þau voru nokkuð misjöfn en „Up to you“ var kannski toppur tónleikanna ásamt tveimur söngdönsum er sax- istarir völdu sér. Stebbi blés „Time after time“ í anda Plas Johnsson, sem er flestum gleymdur, en Óli glímdi við „Smoke gets in your eyes“ sem hann heyrði í útvarpi, en hvorki þvældust Earl Bostic eða The Plat- ters fyrir honum. Flottir tenórar sem hrynsveitin kórónaði: Agnar Már Magnússon píanó Þorgrímur Jónsson bassa og Einar Scheving trommur. Hans Olding bbbnn Hans Olding heitir flottur hefðbund- inn gítaristi sænskur. Fyrrnefnd hrynsveit lék með honum á Múl- anum og Siggi Flosa blés í altóinn. Þett var allt kórrétt og oft skemmti- legt, samið af Olding, en stundum skorti dálítið upp á spennuna. Kandinsky Effect bbbnn Ekki skulu „stjarnaðir“ fleiri tón- leikar nema einir þeirra er Nordisk kulturfond styrkti. Þar voru The Kandinsky Effect á sviðinu. Warren Walker tenórsaxisti frá Bandaíkj- unum, Gael Peters rafbassisti frá Ekvador og Caleb Dolister tromm- ari frá Frakklandi. Frjálsleg en oft- ast ljúf tónlist með dálitla eletrónik og hipphopp í bland sem sérdeilis fínn tónn Warrens kórónaði. Hér hefur aðeins verið nefndur hluti þeirra tónleika sem heyra mátti á djasshátíðinni. Stórsveit Reykjavík- ur, ADHD, Frelsissveit Nýja Ís- lands og Sálargæsla, fögnuðu nýút- gefnum hljómdiskum og söngkonurnar Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius sungu klass- ískan djass og eini alvöru kvendjass- hljóðfæraleikari okkar skartaði sínu fegursta: Sunna Gunnlaugsdóttir. Megi fleiri stelpur blása og slá á næstu djasshátíð og kærar þakkir til Péturs Grétarssonar fyrir að halda utan um batteríið næstum einn – í útlöndum eru tugir manna í slíku verki. Að lokinni djasshátíð Jazzhátíð Reykjavíkur VERNHARÐUR LINNET TÓNLIST Morgunblaðið/Sigurgeir S. Stjarnan Panamíski píanistinn Danilo Pérez var höfuðstjarna hátíðarinnar og hann er sannarlega magnþrunginn píanisti og ekki eru þeir neinir aukvisar félagar hans, Ben Street bassisti og Adam Cruse trommari. Mezzoforte „Tónleikarnir voru blanda af gömlu og nýju efni og flutt af þeirri færni er einkennir þessa gömlu meistara með Eyþór Gunnarsson fremstan í flokki á hljómborðin, Jóa Ásmunds og Gulla Briem brennandi í hryninum með þumal og kjuða og Óskar Guðjónsson saxófónleikara með til- raunir til endurnýjunar á gömlu tónmáli.“ Franski leikarinn Gérard Depardieu getur svo sannarlega gert grín að eigin afglöpum. Um daginn var hon- um vísað frá borði flugvélar fyrir að pissa í flösku þar sem hann gat ekki beðið eftir því að farþegum væri leyft að fara á salernið. Nú hefur hann sent frá sér myndband þar sem hann er í hlutverki Steinríks hins sterka úr Gaulverjabæ. Hann er í flugvél með félaga sínum Ástríki og á erfitt með að sitja þar sem hann langar svo mikið í villisvínasteik. Farþegar bregðast skjótt við og hafa samband við fjölmiðla. Fyndið Depardieu sem Steinríkur í grínmyndbandinu góða. Steinríkur órólegur Fólkið i Kjallaranum – 9 Grímutilnefningar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.