Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 250. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Sekt fyrir skort á kynlífi 2. Fengu falska PayPal-kvittun … 3. Alvarlegt slys í Kópavogi 4. Hvað eru þessar að gera saman … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Í gærmorgun seldust síðustu mið- arnir á Iceland Airwaves upp, fimm vikum fyrir hátíð. Aldrei hefur selst upp svo fljótt á þessa vinsælu tón- listarhátíð sem fer fram dagana 12. til 16. október. Uppselt á Iceland Airwaves  Íslensku hljóm- sveitirnar Retro Stefson, Dikta og Apparat Organ Quartet munu koma fram á Reeperbahn- tónlistarhátíðinni í Hamborg í Þýskalandi en hún hefst 22. september og stendur í tvo daga. Um 250 hljómsveitir og tónlist- armenn víða að úr heiminum koma fram á hátíðinni. Þrjár íslenskar hljóm- sveitir á Reeperbahn  Hluti dagskrár Bókmenntahátíðar í Reykjavík í ár verður helgaður rúss- nesku blaðakonunni Önnu Politkovs- kaju sem var myrt í Moskvu árið 2006. Annað kvöld kl. 20 verður lesið upp úr bók hennar, Rússland Pútíns, í Iðnó en fyrr um daginn verður í Norræna húsinu rætt við Katharinu Narbutovic, vin- konu Önnu, sem þýddi verk hennar á þýsku og hefur rit- stýrt útgáfu þeirra. Dagskrá tileinkuð Önnu Politkovskaju Á fimmtudag Norðlæg átt, 8-15, hvassast við NA- og A-ströndina. Rigning NA-til. Hiti 2 til 12 stig, hlýjast syðst. Á föstudag Fremur hæg norðlæg átt og víða bjart veður, en strekkingur við NA-ströndina og dálítil væta fyrir hádegi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi norðanátt, 8-18 m/s, hvassast aust- ast. Rigning á norðanverðu landinu, en skýjað með köflum syðra. Hiti 5 til 12 stig, mildast syðst. VEÐUR „Það var allt frábært við þennan dag. Við unnum leikinn, þann fyrsta í langan tíma, og ég náði að halda hreinu í mínum fyrsta landsleik,“ sagði Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, við Morgunblaðið eftir sigurinn á Kýpurbúum á Laugardalsvellinum í gærkvöld. Hannes Þór átti stórleik og markvarsla hans í leiknum tryggði Íslendingum langþráðan sigur en liðið hafði ekki unnið í síðustu níu leikjum sínum. Ólafur Jóhannesson þjálfari fagnaði innilega fyrsta sigrinum í mótsleik í þrjú ár. »1 Það var allt frábært við þennan dag Ásgeir Þór Magnússon, markvörður Hattar á Egilsstöðum, sló í gegn þeg- ar 21-árs landsliðið mætti Noregi á Kópavogsvelli. Ásgeir þurfti að koma inná í seinni hálfleiknum og byrjaði á því að verja vítaspyrnu. Það dugði þó ekki til því Norð- menn náðu að tryggja sér sigur, 2:0. »4 Hattarmarkvörðurinn byrjaði á að verja víti ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Þessa dagana fyllast koppar og kirnur lands- manna af bústnum bláberjum og kræsilegum krækiberjum. Fimm ættliðir kvenna fóru á berjamó í Svínadal um síðustu helgi, þær Krist- jána Einarsdóttir, Jónía Jónsdóttir, Björk Hreið- arsdóttir, Tinna Dögg Ragnarsdóttir og Embla Eir Kristinsdóttir. Að sögn Bjarkar tíndu þær hátt í tíu kíló af berjum. Hún segir að svo virðist sem berja- spretta í Svínadal sé áþekk því sem hún hefur verið undanfarin ár, en þó hafi verið nokkru minna af aðalbláberjum. „Við frystum hluta af berjunum og það er gott að nota þau í búst og drykki, við búum til bláberjapæ og -sultu. En það fer minna í sultuna nú en áður,“ segir Björk. Kynslóðirnar hittast og tína berin blá Morgunblaðið/RAX Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Þorvaldur Pálmason heldur úti vef- síðu undir heitinu Berjavinir, þar sem kostum og kynjum berjatínslu er lýst í máli og myndum. Hann hef- ur víða farið til berja að undanförnu og segir sprettu mismikla eftir landshlutum. „Berjaástandið á Norðurlandi og Austfjörðum er mjög slæmt, en þó má finna þar krækiber á einstökum svæðum. Þetta er fyrst og fremst vegna kuldans í vor,“ segir Þor- valdur. „Varð- andi bláberin er helst að nefna Borgarfjörð og þá aðallega Norðurárdal. Skorradal- urinn bregst nú sjaldan og reynd- ar eru allir Borg- arfjarðardalirnir afbragðs berjadal- ir. Síðan hefur heyrst að umtalsvert sé af aðalbláberjum á Barðaströnd. Heilmikið er af berjum inni í Djúpum, menn hafa kvartað nokkuð á Ströndum, en þó hef ég heyrt af heilmikilli sprettu í Bjarnarfirði.“ Þorvaldur segir að höfuðborg- arbúar í berjaleit þurfi líklega ekki að fara lengra en í Grafarholt, þar hafi jafnan verið gnægð berja. Einn- ig ætti að vera mikið af krækiberjum víða í hraunbreiðum á milli Reykja- víkur og Keflavíkur. Hann segir berjaáhuga landsmanna sífellt aukast og til marks um það hafi ný- lega verið haldin heilmikil berjahátíð í Súðavík, svokallaðir Bláberjadag- ar. „Súðvíkingar eru búnir að stofna berjasamlag og hyggjast nú gera átak í að vernda berjalendur og gera með sér samtök um berjatínslu,“ segir Þorvaldur. Sjálfur nýtir hann berin á marg- víslegan máta; hann frystir þau og notar í ýmsa drykki, býr til saft og þurrkar þau. „Ég bý til bláberjarús- ínur. Þá set ég bláber í ofnskúffu og baka þau við lægsta hita í heilan dag og læt ofninn standa opinn.“ Víða eru bláar berjabreiður  Berjaspretta er misjöfn eftir landshlutum  Súðvíkingar stofna berjasamlag Þorvaldur Pálmason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.