Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 19
UMRÆÐAN 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011 Líklega velta fæstir því fyrir sér þegar rætt er um mannrétt- indi í daglegu tali hvaðan hugmyndir um þau koma. Mannrétt- indahugtakið, í þeirri mynd sem við þekkj- um það, kom til sög- unnar síðla á 18. öld í tengslum við frels- isstríð og byltingar í Norður-Ameríku og Frakklandi. Hugmyndir um mann- réttindi á þeim tíma byggðust að- allega á kenningum heimspeking- anna Johns Lockes og Jean-Jacques Rousseaus sem tengdust hugmynd franska félagsheimspekingsins Montesquieu um aðgreiningu grunneininga ríkisvaldsins. Á þess- um grunni varð til kenningakerfi sem kallað hefur verið stjórn- arskrárfesta (e. constitutionalism) sem fól í sér þá meginhugsun að stjórnskipun ríkisins grundvallaðist á ritaðri stjórnarskrá sem kvæði á um aðgreiningu valdastofnana og grunnréttindi borgaranna. Það þarf hvorki viðamikla né ít- arlega rannsókn til að sjá að hug- myndir um mannréttindi á þessum tíma gengu út frá sérstöku eðli eða náttúru mannsins. Svo lengi sem al- mennt samkomulag ríkti um guðlegt upphaf mannsins þurfti ekki að rekja forsendur og lögmæti mann- réttinda frekar. Töluverður tími átti þó eftir að líða þar til stjórnarskrár- bundin mannréttindaákvæði, sem bundu handhafa löggjafarvalds, töldust gildandi réttur fyrir dóm- stólum. Þrátt fyrir útbreiðslu hug- myndarinnar um stjórnarskrárfestu á nítjándu öld og fram eftir þeirri tuttugustu fjaraði víða undan vægi hennar í stjórn- arháttum ríkja. Öfga- hugmyndir í stjórn- málum náðu fótfestu víða um heim þannig að við lok seinni heims- styrjaldarinnar var ljóst að mannkynið þyrfti á nýjum skilningi eða endurnýjuðu sam- komulagi um stöðu mannsins í veröldinni að halda. Í stofnskrá Sameinuðu þjóðanna, frá árinu 1945, segir (gr. 1, 3): „Markmið hinna sameinuðu þjóða er að koma á alþjóðasamvinnu um lausn alþjóðavandamála, efnahags- legs, félagslegs, menningarlegs og mannúðarlegs eðlis, og að styrkja og stuðla að virðingu fyrir mannrétt- indum og grundvallarfrelsisrétt- indum allra án tillits til kynþáttar, kyns, tungu eða trúarbragða,“ Þess- um sjónarmiðum til frekari staðfest- ingar samþykktu aðildarríki Sam- einuðu þjóðanna mannréttindayfirlýsingu (10. des. 1948) en í inngangi hennar er ítrek- uð trú þeirra sem aðild áttu að mál- um á „grundvallarmannréttindi, göfgi og gildi mannsins“ og við- urkenning á að „allir séu jafnbornir til virðingar og óafsalanlegra rétt- inda [sem sé] undirstaða frelsis, réttlætis og friðar í heiminum“. Hugmyndin um óvefengjanleg, al- gild, óframseljanleg og ódeilanleg réttindi mannsins fengu þar með al- þjóðlega viðurkenningu sem enn er talinn grundvöllur starfs Sameinuðu þjóðanna og lögmætisgrundvöllur samtakanna. Spurningin sem eftir stendur er þó, hvað sem öllum samn- ingum líður, hvort þessi hugmynd um sérstöðu mannsins standist nán- ari skoðun. Hver getur verið grund- völlur réttinda sem manninum ber af þeirri ástæðu einni saman að hann er maður ef ekki uppruni og tengsl við eitthvað æðra honum sjálfum? Þeir sem stóðu að samningu stjórnarskrár eða grundvallarlaga (das Grundgesetz) Sambandslýð- veldisins Þýskalands (Vestur- Þýskaland) lögðu grunninn að end- urreisn hugmyndarinnar um stjórn- arskrárfestu og höfðu mannrétt- indakaflann fremstan í stað þess sem tíðkast hafði fram til þessa að hafa mannréttindin á eftir köflunum um stjórnskipun og stofnanir rík- isvaldsins. Til að þessi hugmynd héngi ekki í lausu lofti létu höfundar stjórnarskrárinnar hana byrja á full- yrðingu um að „Virðing mannsins [sé] ósnertanleg.“ Og að „Ríkisvald- inu ber[i] skylda til að virða hana og vernda.“ (gr. 1, 1) og í framhaldinu segir að „Þýska þjóðin viðurkenni[] þess vegna að friðhelg og óframselj- anleg mannréttindi séu grundvöllur alls mannlegs samfélags, friðar og réttlætis í heiminum.“ (gr. 1, 2) Í inngangi að stjórnarskrá Þýska- lands segir að „Í vitund um ábyrgð sína gagnvart Guði og mönnum, með það markmið í huga að þjóna heims- friðnum sem einn jafnrétthárra aðila í sameinaðri Evrópu, hefur þýska þjóðin sett sér þessi Grundvallarlög í krafti valds síns til að setja sér stjórnlög.“ Þegar þessi forsenda Grundvallarlaganna (GG) er virt, er framangreind uppbygging þýsku stjórnarskrárinnar rökrétt. Það hefði því mátt ætla að höfundar til- lögu að nýrri stjórnarskrá lýðveld- isins Íslands tækju sér þessa hugsun og rökfestu til fyrirmyndar í sinni vinnu. Því miður er sú ekki raunin og ákvæðið um „mannlega reisn“ er haft í grein átta í öðrum kafla tillög- unnar. Af meðfylgjandi skýringum með ákvæðinu er ekki hægt að sjá að hugmyndinni um reisn eða virð- ingu mannsins hafi verið sérstakur gaumur gefinn. Staða mannréttinda í stjórnarskránni kann því að verða veikari en ella hefði verið. Stjórnarskrá er til þess ætluð að verja borgarana fyrir ofbeldi og of- ríki á grundvelli mannréttinda. Ef texti hennar og skýringar bera það ekki með sér hver sé grundvöllur og uppruni þessara réttinda getur orðið lítil vörn í áferðarfallegum ákvæðum þegar í harðbakkann slær. Væntan- lega á eftir að verða mikil umræða um tillögu stjórnlagaráðs á næstu vikum og mánuðum. Mikilvægt er að grunnhugtök, stjórnspekilegar forsendur og meg- inreglur fái sinn skerf í þeirri um- fjöllun þannig að öllum megi vera ljóst á hvaða grunni íslenskur stjórnarskrárgjafi telur mannrétt- indi reist. Hvaðan koma mannréttindi? Eftir Ágúst Þór Árnason Ágúst Þór Árnason »Er nægilega gætt að grundvelli mann- réttindahugmynd- arinnar í tillögu stjórn- lagaráðs að nýrri stjórnarskrá? Höfundur er brautarstjóri við lagadeild Háskólans á Akureyri. OPIÐ HÚS Lautasmári 22 Kópavogi Mjög góð 113 fm fjögurra herbergja íbúð Nýleg, stílhrein og sérlega falleg fjögurra herbergja 113 fm íbúð á þriðju og efstu hæð í litlu fjölbýli á þessum eftirsótta stað. Opið hús verður í dag miðvikudag 7. september milli kl 17:30 og 18:00. Berglind og Sigurður GSM 899-8276 taka þá vel á móti gestum og sýna þeim íbúðina. LAUS STRAX

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.