Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011 Í dag kveð ég Möggu ömmu mína. Með henni hverfur mikil vitneskja um alla skapaða hluti frá fyrri tímum og ekki síst ættartengsl sem hún var fróð um og þreyttist aldrei á að segja frá. Amma var sérlega hlý og góð manneskja. Í minn- ingunni var ævinlega fullt hús hjá ömmu Möggu og Eyva afa. Þangað voru allir ávallt vel- komnir og mikið líf og fjör. Þau áttu marga góða vini og voru ákaflega trygglynd. Þegar ég var lítil stelpa bjuggu þau á Löngubrekku í Kópavogi en seinna fluttu þau á Arnarnesið. Amma var mikill fagurkeri, sem sást vel á heimili hennar og yndislegum garðinum sem henni þótti svo vænt um. Í mínum huga er eins og það hafi alltaf verið sól í kringum ömmu. Margrét Gestsdóttir ✝ Margrét Gests-dóttir fæddist á Ólafsfirði 15. júní 1929. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 19. ágúst 2011. Útför Margrétar fór fram frá Digra- neskirkju í Kópa- vogi 26. ágúst 2011. Nú er hún horfin til annarra heima þar sem englarnir vaka yfir henni og henni líður vel. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs engl- ar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Farðu í friði elsku amma mín. Þín Fjóla Valdís. Hér sit ég í íbúðinni minni við eldhúsborð ömmu og afa sem rataði til mín eftir að þau fluttu úr Hegranesinu. Það er ekki annað hægt en að brosa út í annað þegar maður minnist margra góðra stunda við þetta borð. Útvarpsfréttirnar á fullu, amma og afi að aðstoða hvort annað við að segja sömu söguna og það er glatt á hjalla. Amma talar með mjúkum norðlenskum hreim og mér finnst alltaf svo gaman að heyra hana segja mjólk. Amma mín. Ég mun svo sannarlega sakna hennar. Hún var svo reffileg og skemmtileg kona og þó hún hafi verið orðin öldruð og hrum undir það síð- asta var hún alltaf sjálfri sér lík. Fleiri minningar koma fram í hugann, ég dreg þær fram eins og amma dró fram kræsingar úr búrinu góða. Flestar tengjast þær Hegranesinu. Það er ein- kennilegt hvað maður getur tek- ið miklu ástfóstri við hús eða heimili. Mig dreymir oft húsið og finnst undarlegt að annað fólk búi þar í dag. Það var spennandi að fá að vera þar sem barn, leika sér inni eða úti í stóra fallega garðinum og ekki var það verra ef frændsystkinin voru þar líka. Amma bauð upp á brenni, ís eða súkkulaði og stundum fengum við að gista. Jólaboðin á jóladegi eru líka ógleymanleg. Þá komum við öll saman og amma reiddi fram hangikjöt með öllu tilheyrandi og seinna um daginn var dekkað upp dýrindis kökuborð. Sjón- varpið í gangi, eldur í arninum, sumir að spila, aðrir að lesa jóla- kortin úr stóru kristalsskálinni, bræður mínir í eins fötum, Atli frændi, afmælisbarn dagsins, að lesa bók, afi að taka myndir á undarlegum augnablikum, amma glæsileg í fallegum fötum og ég spígsporandi hamingju- söm á milli lakkrísskála. Já, það var gott að vera barn heima hjá ömmu og afa. Það var líka gott að koma í heimsókn til ömmu eftir að ég sleit barnsskónum og þá sér- staklega með strákana mína, Lúkas Pál og Elías Loga, bæði í Hegranesið og svo í Sunnuhlíð. Hún hrósaði þeim alltaf svo mik- ið, sagði að þeir væru bjartir og fallegir og henni var annt um okkar hagi. Ég reyndi helst að koma vel fyrir „Leiðarljós“ svo maður gæti spjallað aðeins áður en sápan byrjaði en hafði líka gaman af því að horfa stundum með henni og heyra hana gera grín að þáttunum sem hún mátti þó helst ekki missa af. Það var líka skemmtilegt að heyra ömmu tala um gamla daga; Ólafsfjörð, hvernig þau afi kynntust, hvern- ig pabbi minn var sem strákur og hvernig hagir fjölskyldunnar voru. Hún kunni vel að segja sögur og hafði gaman af. Ég horfi á nýja eldhúsborðið mitt og gamla borðið hennar ömmu. Alls konar góðgæti stoppaði stutt á þessu borði; brúnað hvít- kál, sandkökur, kex, skyr með rjóma, litlu smurðu brauðin og fleira. Ég vona að það verði áfram sagðar skemmtilegar sög- ur við þetta borð og fólki megi líða vel við það þó að matar- framreiðslan sé ekki jafn stöðug og áður var. Ég er þakklát fyrir ömmu mína, margar góðar stundir og minningar sem ég mun varð- veita með mér og mínum. Ég bið góðan Guð að geyma elsku ömmu og blessa okkur sem hana þekktu. Takk fyrir allt og allt. Björg Ragnheiður Pálsdóttir. Mig langar að minnast góðs félaga, Ragnars Kristinssonar. Mér var brugðið þegar ég frétti af fráfalli Ragnars langt um aldur fram, enda við svo til samtíða í aldri. Ragnari kynnt- ist ég gegnum ferðamennsku á breyttum jeppum upp úr 1980. Ragnar var einn af aðalhvata- mönnum þess að Ferðaklúbb- urinn 4x4, sem nýlega var stofnaður, fór út í skálabygg- ingu á miðju hálendi landsins, og ekki nóg með það, hann tók að sér að verkstýra þeirri að- gerð. Útsjónarsemin og vinnu- gleðin varð til þess að fjöldi manns mætti helgi eftir helgi til þess að leggja hönd á plóg. Vinnuskipulag var mikið og Ragnar passaði að allir væru Ragnar Heiðar Kristinsson ✝ Ragnar HeiðarKristinsson fæddist í Holti, Grindavík 23. júlí 1956. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu á Álfta- nesi 18. ágúst 2011. Útför Ragnars fór fram frá Vída- línskirkju í Garða- bæ 30. ágúst 2011. með verkefni. Framkvæmdir við húsið gengu vel, alltaf var passað upp á að allt væri til staðar, allir hefðu verkefni og að engum félli verk úr hendi. Raggi lét alla vinna, karla, konur og börn. Húsið þaut upp undir hans stjórn og á einu sumri náðist að gera það fokhelt. Hann á stærsta þáttinn í því að Setrið, fyrsta hús Ferðaklúbbsins 4x4, varð að veruleika. Ragnar var mikill jeppamað- ur og hafði gaman af ferðalög- um. Í hópnum sem hann til- heyrði þykja allar vélar litlar nema þær séu „big block“ auk þess sem þessi hópur var einna fyrstur í að geta kallast trukka- deild. Hlutirnir gengu út á að hafa mikið afl en þyngdin var aukaatriði. Ragnar lét sitt ekki eftir liggja og smíðaði sér nokkra kraftmikla ferðajeppa. Einn af þeim var Jeep sem að- eins var með 350 cub „small block“-mótor. Til þess að geta fallið inn í hópinn var sett for- þjappa (blower) á mótorinn og notaði Ragnar þennan bíl til margra ára. Með þessu uppá- tæki fékk hann viðurnefnið Raggi blower (þess má geta að bíllinn tilheyrir enn hópnum hans og er með „big block“- mótor). Elsku Dadý, guð gefi þér styrk til að takast á við sorgina og veiti þér styrk til að takast á við komandi framtíð. Friðrik S. Halldórsson og Bergljót Friðriksdóttir. Það er stórt skarð höggvið í vinahópinn. Raggi var fyrir það fyrsta engin smásmíði en þar að auki var krafturinn, ákveðnin og framkvæmdasemi Ragga í öllu því sem að okkur sneri alveg bráðnauðsynlegur hluti þess að öll okkar ævintýri yrðu að veruleika. Það er snúið að velja í litla minningargrein einhverja þætti úr 30-40 ára vinskap þar sem Raggi spilaði stórt hlutverk í flestu því eft- irminnilegasta sem á daga okk- ar dreif. Allar vetrar-jeppaferðirnar um hálendið, snjósleðaferðirn- ar, bjargferðirnar á Langanes og sumarferðir, þetta var okkar helsta skemmtun og uppákom- urnar endalausar og mikil kát- ína. Bara við að láta hugann reika yfir þennan tíma okkar saman þá tárast maður af eft- irsjá við að átta sig á hve mikill partur af lífi okkar Raggi er búinn að vera öll þessi ár. Raggi var eindæma þraut- seigur maður. Hann var fag- maður og smíðaði sér og Dadý nokkur hús, Setrið fyrir Jeppa- klúbbinn og lagði ómælda sjálf- boðavinnu í allt sem hann kom að. Flestir strákar láta sig dreyma einhverntíma um að eignast eða smíða góðan jeppa, Raggi smíðaði ofur-blazer, of- ur-willis og ofurschout. Þegar hann blandaði sér í torfæruna leið ekki á löngu þar til hann var orðinn allt í öllu þar líka, stjórnaði, lagði brautir og skipulagði með þeim árangri að hans tími varð líklega blómleg- asta skeið þeirrar íþróttar. Það er ekki hægt að skrifa um Ragga án þess að minnast á hve nostursamur og skipulagð- ur hann var. Það var hrein un- un að sjá verkfærasettin og verkfæraveggina hans, hvert einasta á sínum stað merkt og frágengið. Og varahlutakass- arnir hans með öllum hundrað hólfunum björguðu mörgum jeppa-vandræðum þó að við stríddum honum á því að hann væri tonni of þungur fyrir bragðið. Fjölskyldu sinni var Raggi sami leiðtoginn og vinahópnum svo það er sama hvar niður er borið, þessa drengs er og verð- ur sárt saknað. Elsku Dadý og fjölskyldu Ragga vottum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Konráð, Unnar og fjölskyldur. Elsku Stella okk- ar. Það er svo ótrúlegt að hugsa til þess að þú sért farin, fjöruga stelpan með rauða hárið og stóru fallegu augun, að við mun- um ekki hitta þig aftur og rifja upp dagana þegar við vorum þrjár saman á Ólafsfirði. Þetta Stella Víðisdóttir ✝ Stella Víð-isdóttir fæddist á Ísafirði 30. ágúst 1987. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 18. ágúst 2011. Útför Stellu fór fram frá Akureyr- arkirkju 26. ágúst 2011. var svo yndislegur tími og við gátum spjallað og hlegið endalaust saman. Þú hafðir alltaf svo miklar væntingar til lífsins og ætlaðir að gera svo svaka- lega margt og varst með svo mikla æv- intýraþrá og stóra drauma. En þótt þú hafir ekki fengið mikinn tíma náðirðu að gera svo margt. Við fórum í svo ólíkar áttir og síðustu árin fórum við tvær í fjölskyldulífið á meðan þú skoðaðir heiminn en þrátt fyrir að hafa ekki verið á sama stað í lífinu náðum við alltaf að halda sambandi. Þú eignaðist svo stór- an vinahóp þegar þú fluttir til Akureyrar en þú hafðir alltaf tíma til að hitta okkur gömlu vinkonurnar. Það var alltaf svo gott að vita af því að þótt það liði langt á milli hittinga hjá okkur vorum við alltaf jafngóðar vinkonur. Elsku Stella, við munum sakna þín óendanlega mikið en verðum duglegar að minnast þín og rifja upp þessa góðu og skemmtilegu tíma sem við átt- um saman. Þínar vinkonur, Elsa og Sigríður. Elsku vinkona. Svo langt en samt svo stutt síðan við sátum við eldhúsborðið í Hjallalundin- um. Meikið í þykkari kantinum, heitur réttur í ofninum og rauð- vínsglas á borðinu. Við vorum til í allt. Áhyggj- urnar voru helst dressið og hverja við myndum hitta, til- búnar í ævintýri næturinnar og leitina að ástinni. Lítið grunaði okkur að áhyggjur sem þessar yrðu fyrr en varir ósköp létt- vægar. Þrátt fyrir að veikindin tækju sinn toll af líkamanum voru brosið, taktarnir og spegilsvip- urinn alltaf eins, því kem ég aldrei til með að gleyma. Eins og Bjöggi Halldórs, ást- maður okkar, söng fyrir okkur: Þín fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymi meðan lífs ég er. Takk fyrir allt, fyrir að vera þú sjálf og að ég hafi fengið að þekkja þig. Þín Bryndís Rán. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN HAFSTEINN JÓHANNSSON rekstrartæknifræðingur, Stóragerði 42, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 31. ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 8. september kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast Björns er bent á MND-félagið og líknardeildina í Kópavogi. Þrúður Guðrún Sigurðardóttir, Svana Helen Björnsdóttir, Sæmundur E. Þorsteinsson, Brynja Dís Björnsdóttir, Örvar Aðalsteinsson, Hildur Inga Björnsdóttir, Jóhann Kristjánsson, Þórdís Björnsdóttir, Björn Orri, Sigurður Finnbogi og Þorsteinn Sæmundssynir, Birkir, Drífa og Kári Örvarsbörn, Æsa Jóhannsdóttir og Alda Ægisdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ELÍN BIRNA ÁRNADÓTTIR, Hafravöllum 17, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að kvöldi fimmtudagsins 1. september. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 13. september kl. 13.00. Ómar Valgeirsson, Valgeir Árni Ómarsson, Aníta Ómarsdóttir, Örnólfur Elfar, Bjarki Dagur Anítuson, Ómar Örn Elfar, Kristel Birna Elfar. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS BALDVINSSON múrarameistari, til heimilis á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ, áður Grænuhlíð 7, lést í Holtsbúð sunnudaginn 4. september. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 13. september kl. 13.00. Arndís Magnúsdóttir, Hafsteinn Filippusson, Benjamín Grendal Magnússon,Guðbjörg Kristjánsdóttir, Sæunn Grendal Magnúsdóttir, Grétar Sveinsson, Baldvin Grendal Magnússon, Sigrún Grendal Magnúsdóttir, Guðmundur Guðlaugsson, Sigurður Grendal Magnússon, Sigríður Björk Bragadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR frá Ísafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 4. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 12. september kl. 15.00. Gísli Guðbrandsson, Ólafur Vignir Sigurðsson, Inga Fanney Jónasdóttir, Guðmundur Hafsteinn Sigurðsson, Ásdís Tryggvadóttir, Anna Filippía Sigurðardóttir, Stefán Bjarni Gíslason, Ulrika Fransson, María Sigríður Gísladóttir, Guðbjörg Ólafía Gísladóttir, Gylfi Skarphéðinsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTJANA HALLDÓRSDÓTTIR frá Ísafirði, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 30. ágúst, verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn 8. september kl. 13.00. Jóna Halldórsdóttir, Erlingur Runólfsson, Ásgeir Halldórsson, Erla Jónsdóttir, Gestur Halldórsson, Ingibjörg Ágústsdóttir, Halldór Halldórsson, Guðmunda Jensdóttir, Sturla Halldórsson, Bryndís Kjartansdóttir, Ingibjörg Halldórsdóttir, Ólafur Petersen, barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.