Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011 Eyddi öllum peningunum í rugl Söngkonan Amy Wine- house eyddi öllum pen- ingunum sínum í fyllirí og neyslu. Fyrrverandi eiginmaður hennar, söngvarinn Blake Fiel- der-Civil, tók aldrei upp veskið heldur lifði á Amy. Amy Winehouse giftist Blake Fielder- Civil árið 2007 og stóð hjónabandið yfir til árs- ins 2009. Breska pressan gengur svo langt að halda því fram að Amy hafi borgað honum fyrir að kyssa sig. Breska blaðið The Sun segir að hún hafi þurft að taka upp veskið ef hún vildi fá hlýju frá honum. Auk þess borgaði hún alla leigubíla og í raun allt sem hann þurfti að gera. Í dag situr Blake Fielder-Civil inni fyrir ofbeld- isglæpi og heldur því blákalt fram að hans fyrrverandi hafi skuldað honum peninga þegar hún lést. „Hann er staddur á mjög dimmum stað í dag því hann heldur í alvörunni að hann hafi verið góður eiginmaður.“ Amy Winehouse Söngkonan Madonna staðfesti í byrjun vik- unnar að hún væri að vinna að nýrri plötu og stefndi að útgáfu næsta vor. Þetta kom fram í viðtali sænska sjónvarpsins við Madonnu en hún er nú á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum þar sem kvikmynd hennar W.E. er frumsýnd. Er það frumraun Madonnu í hlutverki leik- stjóra en hún hefur leikið í nokkrum myndum í gegnum tíðina við afar misjafnar und- irtektir svo ekki sé meira sagt. Segir hún í viðtalinu að hún fari heim til New York þegar hátíðinni lýkur í Feneyjum og muni vinna að plötunni það sem efti lifir árs. Síðasta breið- skífa Madonnu er platan Hard Candy sem kom út árið 2008. Tilraunir Madonnu þar til að halda í við nýjustu stefnur og strauma í dægurtónlistinni þóttu vafasamar og platan fékk nokkuð misjafna dóma og því spurning hvaða tromp hún er með uppi í erminni nú. Madonna með nýja plötu í smíðum Tónlistarmaður Madonna vinnur að nýrri plötu. H H H KVIKMYNDIR.IS/ SÉÐ OG HEYRT FRÁÁ ÁBÆR GAM ANM YND EIN FLOTTASTA SPENNUHROLLVEKJA ÞESSA ÁRS MÖGNUÐ ÞRÍVÍDD BESTA MYNDIN Í SERÍUNNI TIL ÞESSA 75/100 VARIETY 75/100 SAN FRANCISCO CHRONICLE 75/100 ENTERTAINMENT WEEKLY SÝND Í 3D EIN BESTA MYND STEVE CARELL OG RYAN GOSLING TIL ÞESSA HHHH -BOX OFFICE MAGAZINE -ENTERTAINMENT WEEKLY HHHHH -VARIETY HHHH -BOX OFFICE MAGAZINE H H H MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS CRAZY, STUPID, LOVE kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 7 CRAZY, STUPID, LOVE kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D VIP FINAL DESTINATION 5 kl. 8 - 10:10 3D 16 LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 2D 7 COWBOYS AND ALIENS kl. 10:10 2D 14 GREEN LANTERN kl. 5:40 - 10:30 2D 12 HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:30 2D 12 BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:30 3D L BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:30 2D L HARRY POTTER 7 kl. 8 2D 12 / ÁLFABAKKA CRAZY, STUPID, LOVE kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D 7 FINAL DESTINATION kl. 8 - 10:40 3D 16 STRUMPARNIR Ísl. tal kl. 5:20 3D L COWBOYS & ALIENS kl 8 2D 14 HORRIBLE BOSSES kl. 5:20 - 10:30 2D 12 PLANET OF THE APES kl. 8 2D 12 BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:20 2D L CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 - 10:30 2D 7 STRUMPARNIR Ísl. tal kl. 5:50 3D L KVIKMYNDAHÁTÍÐ RABBIT HOLE Íslenskur texti kl. 8 2D 12 THE BEAVER Ótextuð kl. 8 2D 12 THE TREE OF LIFE Ótextuð kl. 5:20 2D 10 RED CLIFF Enskur texti kl. 10 2D 14 BAARÍA Íslenskur texti kl. 5 7 FAIR GAME Ótextuð kl. 10 12 CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 2D 7 FINAL DESTINATION 5 kl. 10:10 3D 16 GREEN LANTERN kl. 8 - 10:10 2D 10 CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 2D 7 FINAL DESTINATION 5 kl. 10:30 3D 16 PLANET OF THE APES kl. 10:20 2D 12 FRIENDS WITH BENEFITS kl. 8 2D 12 / EGILSHÖLL / KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI SÝNINGAR NÆST Á FÖSTUDAG SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI AKUREYRI OG KEFLAVÍK RYAN REYNOLDS BLAKE LIVELY MARK STRONG GEOFFREY RUSH LARRY CROWNE FRÁBÆR RÓMANTÍSK GRÍNMYND Hvar í strumpanum erum við ?HHH M.M.J. - KVIKMYNDIR.COM SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI SÝND Í EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI Ruddinn – I Need A Vacation bbnnn Ruddinn, sem er tónlistarlegt aukasjálf Bertels Ólafssonar, gaf síðast út plötu fyrir þremur árum sem kallaðist Ruddinn 2 og því má reikna það út að þessi plata hér sé hans þriðja. Sú plata var nokkr- um hnökrum bundin. Bertel reyndi sig þar við kuldalegt hljóð- gervlarokkpopp í anda New Order og OMD og það sem stóð plöt- unni helst fyrir þrifum var annars vegar veikur hljómur og svo voru lagasmíðarnar heldur ámóta allar saman. Hér er verið að höggva í sama knérunn- innn tónlistarlega en Ruddinn býr þó yfir leynivopni, söngkonunni Ragnheiði Eiríks- dóttur, stundum kenndri við Unun. Hennar innkoma er jafnan vel til fundin, söngur hennar er tilfinningaríkur og persónulegur og hún lyftir þeim lögum sem hún syngur í. Að öðru leyti er þetta nokkurn veginn við það sama, lögin eru enn fremur óspennandi og hljómur einkennilega máttlaus. Sævar – Laugardagur í apríl bbmnn Þau leynast víða skúffuskáldin. Sum eru þeirri náttúru gædd að vilja hafa skúff- urnar lokaðar fyrir fullt og fast en sumir vilja út. Sævar Magn- ússon, 51 árs skrif- stofumaður, er einn þeirra sem ákveða að láta drauminn um plötuútgáfu rætast og hér er hann kominn, í líki gripsins Laug- ardagur í apríl. Umbúðir allar eru hinar smekklegustu en innihaldið svona upp og ofan, eins og svo oft í tilfelli svona platna. Lögin eru tiltölulega einföld og saklaus en líða engu að síður ljúflega um eyrun, þökk sé einvala liði hljóðfæraleikara sem aðstoða Sævar við flutninginn. Söngrödd Sævars er í veikara lagi og lög eins og „Portkonan“ og Laminn í Panama“ eru afskaplega þunnur þrettándi en lög eins og „Heygðu mitt hjarta“, þar sem heyra má indjánasöng, brjóta ládeyðuna skemmtilega upp. Guðjón Rúdolf – Regnbogi bbbmn Guðjón Rúdolf er höfundur tveggja magn- aðra platna, Mini- Mania (2003) og Þjóð- söngur (2005), þar sem óhefðbundnar laga- smíðar, einstakir textar (og söngrödd) og útsetningar koma saman í ótrúlegum galdri. Plötur þessar eru í algerum sér- flokki og nú hafa Guðjón og samverkamað- ur hans, Þorkell Atlason, hrært í enn eina plötuna. Hér fer hefðbundnasti lagasamtín- ingur Guðjóns og félaga til þessa og slíkt fer honum ekkert sérstaklega vel, verður að segjast. Söngröddin er sem fyrr ótrúleg, hann fer úr dýpt, yfir í falsettu yfir í frekjulegan stuðsöng eins og ekkert sé. Lög eins og „Geðveikar kellingar“ fara nálægt fyrri snilld en of mikið af lögunum siglir eftir ofnýttum skipaskurðum. Þannig fór nú það, en ég stend enn við það. Guðjón og Þorkell eru snillingar! Vigri – Pink Boats bbbnn Vigri er ung og efnileg sveit og Pink Boats er hennar fyrsta plata. Um metnaðarfullt verk er að ræða, lögin eru „stór“ og epísk með lagatitlum eins og „Awakening“, „(fyrir) Skikkan skaparans“ og „Maternal Machine“. Það er nettur Sigur Rósar keimur af þessu, smáprogg líka og heildarstemningin öll hin alvarlegasta. Metnaðurinn er auðheyr- anlegur á öllu og hann er að sönnu tilkomu- mikill en að sama skapi veldur Vigri ekki alveg þessari stærð sem reynt er við. Fyrir það fyrsta er söngröddin óþægilega sér- kennalaus og til baka of mörg laganna skilja lítið eftir sig, þó að allar klær séu úti í hljóðfæraleik og útsetningu. Fullmikið af hinu góða, í einhverjum skilningi. Stjörnuryk – Þetta reddast bbbnn Hér er kominn rappsveit alla leiðina frá Vestfjörðum (alvöru „west-coast“!? ), nokk- uð sem er óneitanlega skemmtileg viðbót í rappsenu landsins. Stjörnuryk er skipað fjórum röppurum og tónlistin er hörð og áleitin, mikil læti og mikið í gangi, stálkald- ir, einfaldir taktar fléttaðir með elektrói. Flæði rapparanna er ágætt, þeir skiptast á línum og að vanda er slatti af gestum, m.a. kíkja bræðurnin Sesar A og Blazroca í heimsókn. Skemmtilegustu lögin eru þar sem Vestfirðir og umhverfi er mært, keyrsl- an er góð og frískleg út í gegn en verður nokkuð einsleit þegar fram í sækir. Íslenskar plötur Arnar Eggert Thoroddsen | arnart@mbl.is Hér getur að líta gagnrýni á nýútkomnar íslenskar plötur af hinu og þessu tagi Ungir og efnilegir Hljómsveitin Vigri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.