Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ríkisstjórn Níger neitaði í gær orð- rómi um að Muammar Gaddafi væri í lest líbískra herbíla sem komu til landsins í fyrradag. Orðrómur var á kreiki um að bílalestin væri á leiðinni til Búrkína Fasó sem bauðst til að veita Gaddafi hæli fyrir tveimur vik- um. Ríkisstjórn Búrkína Fasó kvaðst ekki hafa fengið neinar upp- lýsingar um að Gaddafi væri á leið- inni þangað frá Níger. Breska blaðið The Times hafði þó eftir hátt settum leyniþjónustu- mönnum í Suður-Afríku að þarlend stjórnvöld hefðu haft milligöngu um samkomulag um að Gaddafi fengi tímabundið hæli í Búrkína Fasó. Þjóðarráð uppreisnarmanna í Líbíu hefði fallist á samkomulagið „til að afstýra blóðsúthellingum“ gegn því skilyrði að Gaddafi yrði ekki lengur en í þrjá daga í Níger. Stjórnvöld í Frakklandi, Níger og Búrkína Fasó hefðu einnig samþykkt þetta og Frakkar lofað að sjá til þess að her- þotur NATO fylgdust með bílunum og tryggðu að ekki yrði ráðist á þá. Herbílarnir sagðir á leið til Búrkína Fasó  Orðrómur um að líbíska þjóðarráðið hefði fallist á sam- komulag um að Muammar Gaddafi fengi hæli í Búrkína Fasó 300 km 1 2 3 4 BÍLALEST FRÁ LÍBÍU Heimild: Reuters-fréttir sem byggðust á frönskum og nígerskum heimildarmönnum ALSÍR MALÍ TÚNIS Miðjarðarhaf LÍBÍA Trípólí Agadez BaniWalid NÍGER BÚRKINA FASÓ NÍGERÍA TSJAD MAROKKÓ Líklegt er að bílalestin hafi fyrst farið til Alsírs. Eiginkona Muammars Gaddafis og þrjú börn þeirra höfðu flúið þangað Á mánudag Um 200-250 líbískir herbílar komu til Níger. Nígerskir herbílar fylgdu lestinni til Agadez Orðrómur var um að Gaddafi og einn sona hans, Saif al-Islam, kynnu að vera í bílalestinni eða hygðust fara á eftir henni Hugsanlegt er að bílalestin fari til Burkína Fasó sem hefur boðið Gaddafi hæli Yfirvöld á Filippseyjum hafa náð risavöxnum saltvatns- krókódíl nálægt afskekktu þorpi og talið er að hann sé sá stærsti sem náðst hefur í heiminum. Krókódíllinn er 6,4 metra langur og vegur rúmt tonn. Talið er að hann sé yfir 50 ára gamall, en sjóvatnskrókódílar geta orðið meira en 100 ára gamlir. Grunur leikur á að krókódíll- inn hafi étið bónda, sem saknað hefur verið frá því í júlí, og bitið höfuðið af 12 ára gamalli stúlku árið 2009. Reuters Stærsti krókódíll sem náðst hefur Bandaríska geimferðastofnunin NASA hyggst skjóta á loft tveimur GRAIL-geimförum á morgun og ferðinni er heitið til tunglsins. Geimförin eru ómönnuð og eiga að útbúa nákvæmari kort af þyngdar- sviði tunglsins en gerð hafa verið til þessa. Með því að kortleggja þyngdarsviðið geta geimvís- indamenn áttað sig betur á inn- viðum og efnasamsetningu tungls- ins. Þeir vona að rannsóknirnar varpi einnig ljósi á myndun og þró- un jarðar og annarra berghnatta, að því er fram kemur á stjörnu- fræðivefnum, stjornufraedi.is. Heimild: NASA Innri bygging tungslins Skv. niðurstöðum frá janúar sl. sem byggðust á gögnum frá Apollo-geimförum HVERS VEGNA TUNGLIÐ? Óreglulegt yfirborð og ójöfn massadreifing veldur því að þyngdarsvið tunglsins er það ósléttasta sem vitað er um í sólkerfinu Talið er að tunglið hafi breyst mjög lítið frá því að það myndaðist og rannsóknir á því geta varpað ljósi á þróun reikistjarna TÍMAÁÆTLUN 2011 8. sept. Skotið á loft 28. des. Á braut um tunglið 2012 6. febr. Vísindarannsóknir geimfaranna undirbúnar 8. mars Vísindarannsóknir hefjast 29. maí Tekin úr notkun LEIÐANGUR GRAIL-GEIMFARA NASA Meginmarkmiðið með leiðangri tveggja GRAIL-geimfara bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA er að auka þekkingu vísindamanna á uppbyggingu innviða tunglsins og útbúa nákvæm kort af þyngdarsviði þess Möttull Hlutbráðið millilag úr léttum frumefnum (480 km) Fljótandi, járnríkur ytri kjarni (330 km) Fastur, járnríkur innri kjarni (240 km) *(Áætlaður radíus) Tíðnisvið útvarpsbylgna vísindatækja Ath.: Hlutföll eru ekki rétt Þyngdarsvið tunglsins GRAIL-A GRAIL-B Tíðnisvið fjarskipta- og stjórntækja Kostnaður ferðar: 57 milljarðar kr. Burðarflaug: Delta II Radíus 1.740 km Tungldagur 29,5 jarðardagar GEIMFÖRIN TVÖ Geimförum skotið á loft til að kanna innviði tunglsins Talið er að milljónir manna hafi tekið þátt í sólarhrings verkfalli sem stærstu samtök launþega á Ítalíu, CGIL, stóðu fyrir í gær. Markmiðið var að mótmæla nýjum tillögum ríkis- stjórnar Silvios Berlusconis um að- gerðir til að eyða fjárlagahallanum ekki síðar en á þarnæsta ári vegna skuldavanda landsins. Samkvæmt til- lögunum á að minnka ríkisútgjöld og hækka skatta og áætlað er að aðgerð- irnar minnki fjárlagahallann um 45 milljarða evra, sem svarar 7.300 millj- örðum króna. Verkfallið varð til þess að lestaferð- ir, ferjusiglingar og almenningssam- göngur í borgum lögðust niður. Starf- semi sjúkrahúsa, pósthúsa og banka raskaðist einnig og starfsmenn fyrir- tækja á borð við Fiat lögðu niður vinnu. Leiðtogar CGIL segja aðgerðirnar óréttlátar og þeir mótmæla einkum áformum um laga- breytingu sem auðveldar fyrirtækjum að segja upp starfsfólki. Önnur samtök ítalskra launþega höfnuðu verkfallinu, sögðu það geta fælt fjárfesta frá landinu. Milljónir Ítala lögðu niður vinnu Silvio Berlusconi  Sparnaði og hærri sköttum mótmælt Rússneski listamaðurinn Sergej Bobkov heldur á uglustyttu sem hann bjó til úr spæni af síberískum sedrusvið. Bobkov hefur fengið einkaleyfi á framleiðslu á styttum af síberískum dýrum og fuglum úr sedrusviðarspæni. Reuters Dýr úr viðarspæni Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður haldin hjá Neytendastofu, Borgartúni 21, dagana 3., 4. og 5. október 2011. Skráning á námskeiðin fer fram á heimasíðu Neytendastofu, www.neytendastofa.is, undir hlekknum„Skráning á námskeið“ (ekki þörf á innskráningu) eða undir Mælifræðisvið. Athygli er vakin á því að gerðar eru kröfur um íslensku- kunnáttu þar sem öll kennsla fer fram á íslensku - það gildir einnig um skriflegar spurningar á prófi og svör við þeim. Löggildingar vigtarmanna gilda í 10 ár frá útgáfu skírteina. Allar nánari upplýsingar, svo og aðstoð við skráningu þátttak- enda, eru á heimasíðu Neytendastofu og í síma 510 1100. Skráningu lýkur 16. september n.k. Borgartúni 21 · 105 Reykjavik · Sími 510 1100 · Bréfasími 510 1101 postur@neytendastofa.is · www.neytendastofa.is VIGTARMENN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.