Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Við erum að reyna að átta okkur á því hvaðan vatn á jörðinni er upp- runnið,“ segir dr. Þorvaldur Þórð- arson, eldfjallafræðingur við Ed- inborgarháskóla í Skotlandi, um alþjóðlegan vísindafund sem nú stendur yfir á Hótel Bláfelli á Breið- dalsvík. Dr. Karen Meech, stjarnfræð- ingur við Stjarnlíffræðistofnunina við Hawaii-háskóla, Þorvaldur Þórð- arson og NASA í samvinnu við Breiðdalssetur, Breiðdalshrepp og Hótel Bláfell standa fyrir vísinda- fundinum sem hófst á mánudag og lýkur á föstudag. 25 vísindamenn víðs vegar að úr heiminum, stjarn- fræðingar, stjarnlíffræðingar, jarð- fræðingar, berg- fræðingar og fleiri sækja fund- inn en hópurinn hefur hist reglu- lega undanfarin fimm ár og vís- indamennirnir borið saman bæk- ur sínar. Þorvald- ur segir að gátan sé ekki auðveld. Þegar jörðin hafi myndast bendi allt til þess að hún hafi tapað öllum rok- gjörnum efnum eins og vatni og koltvísýringi en spurningin sé hvernig þessi efni hafi komið aftur. Það hafi annaðhvort gerst með hala- stjörnum eða loftsteinum. Hópurinn fundaði á Hawaii í fyrra og nú varð Breiðdalsvík fyrir valinu. „Það er vegna þess að aðstaðan er svo góð hérna fyrir svona fundi,“ segir Þorvaldur um fundarstaðinn. Hann segir að á svæðinu sé gott fræðasetur sem hafi að hluta til ver- ið stofnað til minningar um George Walker, sem hafi kennt Íslendingum að kortleggja Ísland. Gott sé að vera með svona fund á stað þar sem öll nauðsynleg aðstaða sé fyrir hendi en ekki margt sem trufli. Auk þess bjóði jarðfræðin á svæðinu upp á ýmsa möguleika. Ísland mikilvægt Þorvaldur segir að Ísland spili ákveðið hlutverk í þessum rann- sóknum vegna þess að á Íslandi komi af og til upp hraun með efni af miklu dýpi. Í þessu efni séu krist- allar sem hafi myndast djúpt í jörðu og inni í þeim séu svonefndar inn- lyksur sem hafi verið bráð á sínum tíma og séu því sýni af bráðinni eins og hún hafi verið djúpt í jörðu. „Við vonum að þær innlyksur geti hjálpað okkur til að rekja uppruna vatnsins á jörðinni, notum þær sem glugga til að kíkja inn í möttulinn.“ Ísland og Hawaii eru heitu reit- irnir og lykilhlekkirnir í þessari vís- indalegu leit, að sögn Þorvaldar. Rannsóknin er flókin og erfið en hann segir að menn séu komnir á sporið. Verið sé að mæla hluti úr loftsteinum og halastjörnum, bæði beint og óbeint, auk þess sem verið sé að eltast við innlyksurnar. Sýni hafi verið tekin úr ákveðinni tegund af gosbergi hérlendis og verið sé að vinna úr gögnunum. En sagan verði alltaf flóknari. Komnir á sporið í leitinni  Ísland og Hawaii heitu reitirnir og lykilhlekkir í leit að uppruna vatnsins  Breiðdalsvík kjörinn staður fyrir alþjóðlegan vísindafund af þessu tagi Þorvaldur Þórðarson Alþingi er þessa dagana að ræða hugsanlegar breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands. Stjórnarandstaðan er ekki ánægð með breyting- arnar og einn þingmaður kallaði þær katt- arþvott. Stjórnarliðar telja breytingarnar hins vegar löngu tímabærar. Meðan á þessu gengur heldur lífið áfram sinn eðlilega gang. Glugga- þvottamaður þvær rúður Stjórnarráðshússins líkt og hann hefur alltaf gert. egol@mbl.is Kattarþvottur og gluggaþvottur á Stjórnarráðinu Morgunblaðið/Golli Lögreglan getur beitt refsingum og háum sektum vegna gáleysislegs aksturs og samkvæmt ákvæðum umferðarlaga má lækka bætur eða fella niður fyrir líkamstjón eða vegna missis framfæranda „ef sá sem varð fyrir tjóni eða lést var meðvaldur að tjóninu af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi“. Vátrygg- ingafélag er greiðsluskylt gagnvart tjónþola vegna bótakrafna en félagið á „endurkröfurétt á hendur hverjum þeim sem valdið hefur tjóni af ásetn- ingi eða stórkostlegu gáleysi“. Sumarliði Guðbjörnsson, sérfræð- ingur á tjónasviði Sjóvár, segir að umferðarlögin séu alveg skýr varð- andi hvað beri að gera í sambandi við tjón og bætur. Hann bendir á að endurkröfunefnd skoði viðkomandi mál og taki ákvörðun um framhald- ið. Sumarliði áréttar að úrskurði hún um endurkröfurétt vátrygg- ingafélags beri því að fara eftir því til þess að tryggja hagsmuni ann- arra. Kappakstur, spyrnuakstur og annar gáleysislegur akstur í fjölbýli vekur gjarnan athygli en Guðbrand- ur Sigurðsson, aðalvarðstjóri um- ferðardeildar lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu, segir að minna hafi verið um slíkan akstur í sumar en oft áður. Það megi m.a. þakka öfl- ugu eftirliti. Guðbrandur segir að alltaf séu til dómgreindarlausir ökumenn á öllum aldri sem leiki sér með ökutæki og stofni þar með sjálfum sér og öðrum vegfarendum í mikla hættu. Skelfi- legar afleiðingar vegna kappaksturs séu staðreynd en lögreglan telji ákveðið forvarnargildi felast í refs- ingum og háum sektum. Vegna ofsa- aksturs eða ítrekaðs ölvunaraksturs geti lögreglan lagt hald á ökutæki og gert kröfu um upptöku í ríkissjóð fyrir dómi. Endurkröfur trygginga- félaga geti auk þess leitt til þess að viðkomandi verði illa staddir fjár- hagslega vegna gáleysis við akstur. steinthor@mbl.is Refsingar og háar sektir Morgunblaðið/Eggert Tjón Grunur leikur á að mikill hraðakstur hafi valdið slysi í fyrrakvöld.  Gáleysislegur akstur ekki aðeins hættulegur viðkomandi og öðrum vegfarend- um heldur getur hann leitt til hárrar endurkröfu vátryggingafélags Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Fyrsta listmunauppboð vetrarins var haldið í Galleríi Fold í fyrra- kvöld. Að sögn uppboðshaldara fer listaverkamarkaðurinn af stað á svipaðan hátt og í fyrra og nokkuð var um að fágæt verk væru boðin upp, en alls voru boðin upp á 102 verk. Tryggvi Páll Friðriksson, list- munasali og uppboðshaldari hjá Gallerí Fold, segir að bæði Íslend- ingar og útlendingar hafi keypt verkin, flestir eigi þó útlendingarnir það sameiginlegt að hafa einhver tengsl við Ísland og einnig sé nokkuð um Íslendinga búsetta erlendis í kaupendahópnum. „Þarna fóru nokkur verk á prýði- legu verði. Hæsta verðið var greitt fyrir litla vatnslitamynd eftir Ás- grím Jónsson af Búða í Þjórsá, en hún seldist á 2,7 milljónir. Þessi mynd er geysilegt fágæti, hana mál- aði Ásgrímur fyrir árið 1909, en verk hans frá þeim tíma eru sjaldan til sölu. Svo fór önnur Ásgrímsmynd á tæp 1500 þúsund,“ segir Tryggvi. „Af öðrum verkum má nefna ljós- myndaverk eftir Ólaf Elíasson fyrir tæp 400 þúsund.“ Tryggvi segir að yfirleitt séu öll verkin, sem til stendur að bjóða upp, sett á vefsíðu gallerísins nokkru fyr- ir uppboðið, þannig að fólk geti kynnt sér þau áður en það mætir á uppboðið. Hann segir að margir bjóði í verkin áður en uppboðið hefst. „Við fáum yfirleitt um hundrað forboð og síðan fer stór hluti upp- boðanna í gegnum síma. Ég á ekki von á að netuppboð taki við af hefð- bundnum uppboðum, en ég held að framtíðin liggi í því að hafa þetta blandað,“ segir Tryggvi. Ásgrímur seldist á 3 milljónir  Listaverkamark- aður svipaður og áður Fágæti Mynd Ásgríms Jónssonar af Búða í Þjórsá seldist á 3 milljónir. Leikskólakenn- arar samþykktu nýgerðan kjara- samning KÍ vegna Félags leikskólakennara við Samband ís- lenskra sveitar- félaga með 92,2% atkvæða. 78,8% félagsmanna greiddu atkvæði. Ekkert verður því af boðuðu verkfalli leikskólakennara sem upprunalega átti að hefjast í ágúst. Laun hækka strax og í maí á næsta ári á að vera lokið endurskoðun með það að markmiði að tryggja fé- lagsmönnum kjör er jafnist á við kjör grunnskólakennara og ann- arra í sambærilegum störfum. Haraldur Freyr Gíslason, for- maður Félags leikskólakennara, segir einingu hafa verið meðal fé- lagsmanna um að segja hingað og ekki lengra. Samstaðan hafi gagnast vel. kjon@mbl.is Leikskólakennarar samþykktu kjara- samninginn Haraldur Freyr Gíslason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.