Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Um langtárabil hef-ur Evr- ópusambandið ekki getað birt endurskoðaða reikninga. Aðal- endurskoðendur sambandsins hafa ekki treyst sér til að setja nafn sitt við þá. Nokkrir end- urskoðendur hafa verið flæmd- ir úr starfi sínu fyrir vikið. Sambandið er frægt fyrir laumuspil og pukur. Algengt er að leiðtogar Þýskalands og Frakklands gangi frá stærstu niðurstöðum í sínum hópi í lok- uðum hótelsvítum. Öðrum „leiðtogum“ er svo kynnt nið- urstaðan sem óumbreytanleg. Því verður seint sagt að ESB sé til fyrirmyndar um gagnsæi og opna stjórnsýslu. En með öllum sínum þekktu göllum er stjórnsýsla sam- bandsins hátíð hjá því sem við- gengst hjá íslenskum stjórn- völdum. ESB hefur þannig komið hreint fram varðandi það sem íslenska ríkisstjórnin kallar aðildar- og samninga- viðræður Íslands að ESB. „Kíkja í pakkann kjánar“ eins og það er einnig kallað hér á landi. ESB segir hreinskilnislega að það fari hvorki fram að- ildar- eða samningaviðræður. Pakkinn hafi lengi legið fyrir galopinn. Það fari fram aðlög- unarviðræður ekki aðild- arviðræður. Samtölin á milli aðila gangi einungis út á að umsóknarríkið sýni fram á að aðlögun að sambandinu gangi vel og skipulega. Og forysta sambandsins hefur beinlínis varað íslensk yfirvöld við því að gefa í skyn að um einhvers konar samningaviðræður sé að ræða. Slíkur blekkingaleikur muni hefna sín þegar hið sanna rennur upp fyrir þjóðinni. Aðlögunin sem staðið hefur yfir í tæp tvö ár hefur að hluta til verið falin með því að segja að eingöngu sé verið að klára þætti sem hefði átt að vera búið að klára vegna EES- samningsins. Því miður tók stjórn- arandstaðan of lengi þátt í þeim leiknum. Og hins vegar hefur hreinum blekkingum verið beitt og stjórnmálamenn og embættismenn neitað gegn betri vitund að staðið sé, í full- komnu umboðsleysi, í hreinum aðlögunarviðræðum að sam- bandinu. Blekkingariðjan átti að tryggja að eftir tveggja ára aðlögun yrði hægt að segja: Við erum hvort sem er búin að ganga í gegnum svo mikið af því sem fylgir aðild að óþarft er að hafna henni. Vinstri grænir hafa tekið fullan þátt í öllum þessum til- burðum, undir leiðsögn flugu- mannsins Árna Þórs Sigurðs- sonar, þrátt fyrir yfirlýsta andstöðu flokksins við aðild. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hef- ur þó ekki viljað taka þátt í hinum ljóta leik. Mikið fár varð í stjórn- armeirihlutanum fyrir fáein- um vikum þegar mistókst að kúga Jón, þótt mjög væri að honum sótt. Skýringin á fárinu var einmitt sú að umboðslausu blekkingarmennirnir óttuðust að „tafir“ landbúnaðarráð- herrans myndu leiða til þess sem nú er orðið: Að talsmenn ESB myndu segja bréflega við íslensk yfirvöld það sem þeir hafa margoft sagt þeim munn- lega að aðlögun að ESB yrði að fara fram á öllum sviðum svo hægt væri að uppfylla allar skyldur frá fyrsta degi yrði að- ild samþykkt. Uppfylltu Ís- lendingar ekki þessar aðlög- unarkröfur gæti komið til uppnáms í viðræðunum á milli aðila. Og nú verður ekki lengur undan vikist. Bréfið er komið. Svikahrapparnir hafa verið af- hjúpaðir, svo að ekki er lengur um neitt að villast. Íslensk stjórnvöld beita blekkingum í tilburðum við að koma Íslandi í ESB} Afhjúpaðir Nýjar tölur umumferð á vegum landsins í ágúst staðfesta þær sem á undan hafa komið. Um- ferðin dregst hratt saman, svo hratt raunar að annar eins samdráttur hef- ur ekki sést áratugum saman. Ríkisstjórninni var bent á það í vor að til að koma í veg fyrir þessa þróun, sem myndi draga úr ferðalögum innan- lands og skaða innlenda ferðaþjónustu, væri einboðið að lækka skatta á eldsneyti. Fjár- málaráðherra og aðrir forystumenn ríkisstjórnarinnar svöruðu slíkum ábendingum með sams konar útúrsnúningi og flestum öðrum tilraunum til málefnalegrar umræðu. Nú er sumarvertíðin á enda hjá ferðaþjónustunni, en vegna afstöðu ríkisstjórn- arinnar varð hún minni en hún hefði getað orðið. Þar fór enn eitt tækifærið forgörðum. Sumarvertíð inn- lendrar ferðaþjón- ustu varð minni en hefði getað orðið} Glatað tækifæri R eglulega hefur fólk samband við starfsmenn mbl.is vegna þess að það hefur einhvern tímann skrif- að eitthvað á bloggsíðu hjá mbl.is eða í Morgunblaðið sem Google hefur svo lesið í sinn gagnagrunn og skilar sem leitarniðurstöðu þegar viðkomandi „gúglar“ nafnið sitt. Stundum er vandinn sá að viðkom- andi hefur í kjánagangi lýst yfir stuðningi við kúgunaröfl eða harðstjóra eða hann eða hún hefur verið blindfullur með glannalegar yfirlýs- ingar um uppáferðir og/eða uppákomur. Ástæða þess að fólk leitar að nafni sínu hjá Google og rekst þá stundum á það sem því þyk- ir óþægilegar upplýsingar er yfirleitt að það hyggst skipta um vinnu eða sækja um skólavist eða jafnvel skipta um maka og vill tryggja að sú mynd sem sýna á væntanlegum vinnuveitanda eða skólayfirvöldum eða lífsförunaut sé ekki á skjön við það sem sjá má á netinu. Alsiða er að menn vísi í slík dæmi þegar fjallað er á gagnrýninn hátt um það hve fólk sé gjarnt á að deila of miklum upplýsingum um sig á netinu. Málið er bara að þeir sem amast yfir því átta sig ekki á því að líkt og við er- um sífellt að þykjast önnur en við erum í raun og veru dags daglega, erum við líka að villa á okkur heimildir á netinu; þykjast snjallari, hnyttnari og myndarlegri og nú loks komin með þá stjórn á ímynd okkar sem við höfum sóst eftir alla tíð, nú getum við fegrað og skreytt almenni- lega, orðið eins og við vildum helst vera. Þeir sem sífra yfir því hve fólk dreifir upp- lýsingum um sig á netinu átta sig ekki á þessu, halda vísast að við séum sífellt að ljóstra upp einhverju sem við ætluðum ekki að segja eða viljum ekki að aðrir viti, en því er öðru nær. Í daglegum samskiptum erum við sífellt að þykjast, erum með jafn margar persónur til- tækar og fólk sem við þekktum, eina á mann. Á netinu er þetta auðveldara, þar getum við ver- ið með eina persónu sýnilega, valið myndir af kostgæfni eða skrifað Facebook-stöður að yf- irveguðu ráði og setjum bara inn þær persónu- pplýsingar sem við kjósum að sýna. Þetta eru engin ný sannindi, þetta er marg- rannsakað og margvitað; gleymum því ekki að orðið persóna, og þaðan persónuleiki, er komið úr etrúsku í latínu og þá sem orð yfir grímu sem leikarar báru, en síðan notað yfir þann sem leikarinn túlkaði, þá persónu sem hann setti upp líkt og við gerum daglega, hvort sem það er í netheimi eða mannheimi. Þegar aðstæður svo breytast, eða við viljum breyta þeim, þá snörum við fram nýrri persónu, eyðum þeirri sem fyrir var, burt með allar gömlu Facebook- færslurnar, út með gömlu vinina og inn með þá nýju, nýjar myndir sýna nýja persónu. Stundum, þarf maður þá að taka til á fleiri stöðum, eyða gögnum af netinu eða bíða um stund þar til þau hverfa af sjálfu sér, að Google hendir út gamla dótinu, og sjá: Hinn nýi ég birtist, kannski eilítið eldri og farinn að grána, en miklu betri, alveg satt, miklu svalari og skynsamari og meira ekta en nokkru sinni fyrr. Árni Matthíasson Pistill Hver ertu? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ú tlit er fyrir að þátt- taka í sjávarútvegssýn- ingunni, sem haldin verður í Kópavogi 22.- 24. september, verði svipuð og í sýningunni fyrir þremur árum. Fjöldi erlendra sýnenda og gesta kemur til landsins af þessu tilefni og samanlögð velta tengd sýningunni skiptir hundruðum milljóna. Íslenska sjávarútvegssýningin, sem kallast Icefish, er ein stærsta sjáv- arútvegssýningin í Norður-Evrópu. Sýningin nær til allra þátta í fisk- veiðum í atvinnuskyni, allt frá veiðum og fiskileit til vinnslu og pökkunar, markaðssetningar og dreifingar á full- unnum afurðum. Einnig kynna ýmsir birgjar og þjónustuaðilar vörur sínar og þjónustu. Megináhersla er á vélar og tæki og hugbúnað þeim tengdan. Sýningin byggist á gömlum merg því fyrsta sýningin var haldin í Laug- ardalshöllinni árið 1984. Að umfangi hefur sýningin rúmlega tvöfaldast síð- an þá. Frá árinu 1999 hefur hún verið haldin í Kópavogi. Það er breska fyrirtækið Merca- tor Media sem á sýninguna og er það fjórði breski aðilinn sem skipuleggur þessa sýningu. Mercator sérhæfir sig í tímaritaútgáfu og sýningum henni tengdum, fyrst og fremst á sviði vinnu og veiða í sjó og vötnum. Aðstæður haustið 2008 þegar sýningin var síðast haldin voru um margt sérstakar, en hrunið var þá að byrja og blikur á lofti. Eigi að síður gekk sýningin vel og tæplega 500 fyr- irtæki frá 33 löndum sýndu í Kópavog- inum. Alls mættu 12.429 gestir frá 50 löndum á sýninguna. Mikill áhugi heima og erlendis Bjarni Þór Jónsson hefur lengi komið að undirbúningi sjávarútvegs- sýningarinnar og verið tengiliður fyrir breska fyrirtækið hér á landi. Hann segir undirbúning ganga vel og mikill áhugi sé á sýningunni bæði hér heima og erlendis. Hann segist reikna með að þátttaka verði svipuð og síðast. Spurð- ur hvort óvissa í sjávarútvegi hérlendis og erfiðleikar fyrirtækja víða um heim hafi ekki áhrif á sýninguna segir hann að svo virðist ekki ætla að verða. „Fyrirtæki eru að jafna sig eftir hrunið og við erum með álíka marga sýnendur og fyrir þremur árum,“ segir Bjarni. „Sýningin verður bæði í Fíf- unni og Smáranum og básarnir í Fíf- unni eru nánast uppseldir. Sum fyr- irtæki sem voru með okkur síðast eru ekki til lengur og önnur hafa verið sameinuð, þannig að hópurinn hefur eitthvað breyst. Hins vegar hafa ný fyrirtæki líka komið fram á sjón- arsviðið. Varðandi íslenska þátttak- endur þá er það svo, þrátt fyrir allt, að það er mikið líf í kringum sjávar- útveg á Íslandi. Þó svo að menn hafi haldið aftur af sér í stórum fjárfest- ingum þurfa þeir samt að halda við þeim búnaði sem þeir eru með.“ Þjálfað og reynt fólk Leiga á minnstu básunum kost- ar um 300 þúsund krónur og svo hækkar verðið eftir því sem básarnir stækka. Auk básanna þarf að koma sýningunni upp og greiða starfsfólki laun og veitingar sem oft eru á boð- stólum. Kostnaður sýnenda er því verulega hærri en básaleigan ein og sér. Í tengslum við sýninguna falla til mörg störf verktaka og þjónustuaðila. Nefna má sýningakerfi, raf- og pípu- lagnir, síma, tölvuþjónustu, öryggis- gæslu, dyra- og bílastæðagæslu, ræstingu og þrif. Auk þessa kallar sýningin á umsvif í ferðaþjónustu innanlands og utan; bókanir, flug, hótel og bílaleigu svo dæmi séu nefnd. „Þetta er mikið til sami hópurinn sýningu eftir sýningu og því þjálfað og reynt fólk,“ segir Bjarni Þór. Stór útvegssýning með sterka hefð Morgunblaðið/Kristinn Skotið Þáverandi sjávarútvegsráðherra, Einar K. Guðfinnsson, skaut úr fall- byssu við opnun sjávarútvegssýningarinnar í Kópavogi fyrir þremur árum. Sýningin er fyrst og fremst fag- sýning fyrir fólk í sjávarútvegi, en allir eru þó velkomnir. Bjarni Þór rifjar upp að íbúar í heilu sjávarþorpunum hafi oft lagt land undir fót til að fara á sýn- inguna. Grímseyingar hafi verið sérstaklega iðnir við þennan kola og oft verið fámennt í eynni. Garðar Ólason, útgerðar- maður í Gímsey, segir að ein- hverjir Grímseyingar muni ef- laust fara á sýninguna eins og venjulega, þó svo að hann viti ekki til þess að stór hópferð hafi verið skipulögð. „Við höfum oft farið á þessar sýningar og haft gaman af,“ segir Garðar. „Það er margt að skoða ef maður vill fylgjast með og ekki sakar að kíkja aðeins á bakvið.“ Sakar ekki að kíkja bakvið EINKUM FAGSÝNING Bjarni Þór Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.