Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 14
FRÉTTASKÝRING Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Fram kemur í viljayfirlýsingu ís- lenskra stjórnvalda í tengslum við sjöttu og síðustu endurskoðun efna- hagsáætlunar Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins að til standi að framlengja gildistíma auðlegðarskattsins svo- kallaða. Þegar skatturinn var settur á sínum tíma stóð til að hann yrði í gildi fram til ársins 2013. Morgun- blaðið leitaði svara hjá fjármálaráðu- neytinu um útfærslu framlengingar auðlegðarskattsins og bárust þau svör frá Hugin Þorsteinssyni, að- stoðarmanni fjármálaráðherra, að tillögur um tekjur og gjöld ríkisins myndu liggja fyrir í októberbyrjun eins og hefðbundið er. Auðlegðarskatturinn er nú 1,5% og leggst hann á hreina eign umfram 75 milljónir í tilfellum einstaklinga og 100 milljónir í tilfelli hjóna. Í fljótu bragði virðist um háar tölur að ræða en þegar málið er skoðað nánar má sjá að það þarf ekki endilega að vera svo, að minnsta kosti þegar er horft til sparnaðar og fjárfestingar venjulegs fólks yfir langa starfsævi. Hægt er að ímynda sér venjulega launþega sem eiga einbýlishús skuldlaust eftir langa starfsævi auk annarra gæða á borð við sumarhús og bifreið, auk einhvers sparnaðar sem lagður hefur verið fyrir til efri ára. Útfrá einföldu dæmi sem blaðið lét sérfróða endurskoðendur taka saman má sjá að auðlegðarskattur- inn leggst til að mynda þungt á þá sem hafa borgað upp skuldsetningu á eignum á borð við fasteignir og aðrar fjárfestingar sem ekki bera arð, en hafa ekki aðrar tekjur en elli- lífeyri eða þá lágar launatekjur. Eins og fram kom í svari fjármálaráð- herra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, alþingimanns, er mikill meirihluti þeirra fjölskyldna sem borguðu auðlegðarskatt árið 2009 með heildartekjur undir fimm millj- ónum króna á ári. Ríkisstjórnin stefnir að fram- lengingu auðlegðarskatts  Gerir lífeyrisþegum og tekjulágum erfiðara fyrir að halda skuldlausum fasteignum Auðlegðarskattur Dæmi 1 Einstaklingur með lágar tekjur í dag en nokkur uppsöfnuð eignamyndun. ss. ekkja í óskiptu búi. Dæmi 2 Miðaldra hjón,maðurinn eina fyrirvinnan. Hafa byggt sér fasteign og sumarbústað. Eiga nokkuð sparifé og einhver hlutbréf. Fasteign Sumarbústaður Sparifé Hlutabréf Bifreiðar Frítekjumark Auðlegðarskattstofn Skatthlutfall Auðlegðarskattur Tekjur: Launatekjur Fjármagnstekjur Ráðstöfunartekjur eftir skatta Auðlegðarskattur 25.000.000 kr. 60.000.000 kr. 5.000.000 kr. 92.000.000 kr. 2.000.000 kr. 17.000.000 kr. 75.000.000 kr. 1,50% 200.000 kr. á mánuði 164.750 kr. á mánuði 155% af mánaðartekjum 255.000 kr. 25.000.000 kr. 70.000.000 kr. 1.500.000 kr. 15.000.000 kr. 119.000.000 kr. 7.500.000 kr. 19.000.000 kr. 100.000.000 kr. 1,50% 500.000 kr. á mánuði 407.548 kr. á mánuði 300.000 kr. á ári 70% af mánaðartekjum 285.000 kr. 14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011 Erindrekar fjármálaráðherra evru- svæðisins ræddu í gær um hvernig ríkisstjórnir evruríkjanna gætu endurfjármagnað bankakerfi mynt- svæðisins. Þetta fullyrti Reuters- fréttastofan í gær. Um er að ræða hugmyndir í tengslum við undirbún- ing fyrir fund fjármálaráðherra evruríkjanna sem fer fram 16. þessa mánaðar. Um er að ræða meiriháttar stefnubreytingu. Sem kunnugt er sagði Christine Lagarde, fram- kvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, í síðustu viku að brýn þörf væri á því að evruríkin endurfjár- mögnuðu bankakerfið með opinberu fé sem fyrst. Sérfræðingar AGS telja að bankar á evrusvæðinu þurfi að minnsta kosti 200 milljarða evra til þess að fylla í það skarð sem hef- ur myndast í eiginfjárgrunn þeirra á undanförnum misserum. Þetta skarð hefur að stærstum hluta myndast vegna rýrnunar á verð- mæti ríkisskuldabréfa evrusvæðis- ins í bókum bankanna. Orðum Lag- arde var mótmælt í fyrstu af evr- ópskum ráðamönnum sem sögðu að bankar evrusvæðisins væru vel fjár- magnaðir. Ljóst má vera af frétt Reuters að annað hljóð er komið í strokkinn og að áhyggjur ráða- manna beinast ekki nú eingöngu að stöðu mála í þeim evruríkjum sem geta ekki fjármagnað sig án að- komu ESB og AGS, heldur einnig að stöðu banka á svæðinu. Þungavigtarmaður í bankaheim- inum endurómaði þessar áhyggjur í gær. Forstjóri Deutsche Bank, Jos- ef Ackermann, lýsti því yfir á ár- legri bankaráðstefnu í Frankfurt í gær að fjöldi evrópskra banka færi á hausinn ef þeir myndu bókfæra stöður sínar í ríkisskuldabréfum á evrusvæðinu á markaðsvirði. Með öðrum orðum þýðir þetta að af- skriftir eða umbreyting skulda ein- stakra evruríkja er vart möguleg án þess að setja fjármálakerfi álfunnar í uppnám. ornarnar@mbl.is Ríkisfjármögnun evrubanka rædd  Evruríkin sögð ræða möguleikann á að stjórnvöld endurfjármagni banka Reuters Ófremdarástand Miðlari í Frank- furt klórar sér í hausnum. Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að afnema gjaldeyrishöftin hér á landi er að mótuð verði tímasett áætlun um það hvernig því markmiði verði náð í stað opinnar áætlunar sem enginn tæki þátt í vegna þess að enginn skuldbinding fylgdi af hálfu Seðlabanka Íslands. Þetta er á meðal þess sem fram kom í ræðu Orra Haukssonar, fram- kvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, á hádegisfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga á Grand Hótel í gær. Nauðsynlegt væri að setja hausinn undir sig og taka ákvörðun um af- nám haftanna sem aftur hefði í för með sér aðhald á efnahagsmálin. Vandamálið ofmetið Páll Harðarson, forstjóri Kaup- hallarinnar, tók undir nauðsyn ein- faldari, tímasettrar og agaðrar áætl- unar um afnám gjaldeyrishaftanna. Það eina sem þyrfti væri að hefjast handa. Hann sagði skýrslu Seðla- bankans um afnám haftanna von- brigði. Hún uppfyllti ekki nauðsyn- leg skilyrði um tímasett skref, skýr viðmið og öflun eins mikilla upplýs- inga og kostur væri. Fyrirliggjandi áætlun virtist helst byggjast á þeirri forsendu að eigend- ur aflandskróna vildu æstir út úr hagkerfinu. Hins vegar hefðu útboð Seðlabankans sýnt að 85% þeirra hefðu ekki haft áhuga á þeim. Í ljósi þess væri aflandskrónuvandinn sennilega ekki nema um 60-70 millj- arðar króna. Nauðsynlegt að hefjast handa við afnám haftanna  Ræðumenn sammála um mikilvægi tímasettrar áætlunar Morgunblaðið/Golli Fundur Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI, í ræðustól á fundinum. ● Hagnaður Arion banka nam 10,2 milljörðum króna á fyrstu sex mán- uðum ársins en var 7,9 milljarðar króna á sama tímabili í fyrra. Er afkoman um- fram áætlanir sem skýrist einkum af endurmati á útlánasafni bankans á fyr- irtækjasviði. Arðsemi eigin fjár var 20,3% á ársgrundvelli. Á öðrum ársfjórðungi fór fram loka- uppgjör Arion banka við þrotabú Kaup- þings banka. Er hálfsársuppgjörið nú fyrsta uppgjör Arion banka þar sem þessir aðilar eiga engar kröfur hvor á annan. Eiginfjárhlutfall bankans styrkt- ist og var 21,4% í lok tímabilsins sem er vel yfir mörkum Fjármálaeftirlitsins, samkvæmt fréttatilkynningu frá bank- anum. Endurmat og hagnaður hjá Arion banka ● Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 54,9 milljarða króna og inn fyrir 42,1 milljarð króna. Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 12,8 milljarða króna. Í júlí 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 4,2 milljarða króna á sama gengi að því er fram kemur í frétt á vef Hag- stofu. Fyrstu sjö mán- uði ársins voru fluttar út vörur fyrir 339,9 milljarða króna en inn fyrir 285,9 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 54 milljörðum en á sama tíma árið áður voru vöruskiptin hagstæð um 67,9 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfn- uðurinn var því 13,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. Fyrstu sjö mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 27,6 millj- örðum eða 8,8% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Verðmæti vöru- innflutnings jókst um 41,5 milljarða, eða 17%. Minni afgangur en 2010 Stuttar fréttir…                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +.0-1, ++2-13 /+-.0. /+-+40 +3-.52 +50-50 +-,.., +.5-+, +2/-., ++0-14 +.0-,4 ++2-,+ /+-4// /+-/03 +3-... +50-35 +-,4/. +.5-24 +25-5 /+.-20+/ ++0-52 +.0-4, ++2-30 /+-4.2 /+-5+4 +3-4, +52-++ +-,43/ +.,-/, +25-32 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.