Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011 inni. Íslensk vatnalöggjöf sé bæði ósamstæð og brotakennd. Þetta telur nefndin óheppilegt en tekur fram að það sé ekki á verksviði hennar að fjalla sérstaklega um íslenska vatna- löggjöf. Telur nefndin þó ástæðu til að fjalla um tvö atriði sem mikilvægt sé að bæta úr, annars vegar með því að skapa lagagrundvöll fyrir vernd heildstæðra vatnakerfa, t.d. með frið- lýsingu, og hins vegar sé brýnt að skýrari ákvæði verði sett um um- gengni við vatn og vatnasvæði. Ólíkra hagsmuna verði gætt Nefndarmenn taka fram að þegar komi að reglum um vernd náttúrunn- ar og nýtingu auðlinda hennar sé brýnt að leitast við að gæta jafnvægis milli ólíkra hagsmuna. Íslensk vatnalöggjöf ósamstæð og brotakennd  Umhverfisráðherra fær í hendur hvítbók um endurskoðun náttúruverndarlaga Kíkt í hvítbókina » Hvítbækur svonefndar hafa yfirleitt að geyma tillögur að löggjöf á afmörkuðu sviði og kalla eftir umsögnum hags- munaaðila og stjórnvalda á efni þeirra. » Tíu sérfræðingar á sviði náttúrufræða, stjórnsýslu- fræða og lögfræði sátu í nefnd- inni sem samdi hvítbókina. Formaður nefndarinnar var Hafdís Gísladóttir. » Leggur nefndin m.a. til að gildissvið náttúruverndarlaga um vernd lífríkis hafsins verði skýrt og styrkt. » Einnig að hugað verði að því að lög um landgræðslu og skógrækt verði felld í nátt- úruverndarlög. » Nefndin telur mikilvægt að ný náttúruverndarlög veiti skýrar heimildir til að beita þvingunarúrræðum ef ákvæð- um laganna er ekki fylgt. Náttúruvernd Umhverfisráðherra hefur fengið í hendur tillögur nefndar um endurskoðuð nátt- úruverndarlög. Verður tekið strax á utanvegaakstri. Tillögur að friðlýsingarflokkum í samræmi við flokkunarkerfiAlþjóðanáttúruverndarsamtakanna, IUCN Heimild: Hvítbók um endurskoðunar náttúruverndarlaga Tilgangur ogmarkmið friðlýsingar Friðlýsingmeð strangri verndun ogmiklum takmörkunumá umferð og nýtingu til að varðveita líffræðilega fjölbreytni ogmögulega einnig jarðminjar/jarðmyndanir. Friðlýsingmiðar aðallega að því að varðveita víðáttumikil svæði, lítt snortin af áhrifum, inngripumog framkvæmdum mannsins. Friðlýsing til að vernda heildstætt landslag, jarðmyndanir og vistkerfi,menningarleg og söguleg gildi við­komandi svæð­is, m.a.Til að stuðla að aðgangi almennings að fjölbreyttum náttúrulegumsvæðum til útivistar og fræðslu. Oftast jarðfræðileg fyrirbæri semeru vernduð vegna fræðilegs gildis, fegurðar og sérkenna. Friðlýst vegnamikilvægra vistkerfa, vistgerða, tegunda og búsvæðaþeirra. Friðlýsingmiðar að verndun sérstæðs og fágæts landslags, landslagsheilda og jarðmyndana. Friðlýsing þjónar aðallega þeim tilgangi að vernda náttúruleg vistkerfi semnýtt erumeð­ sjálfbærumhætti. Friðlýsingarflokkur Náttúruvé Víðerni Þjóðgarðar Náttúruvætti Friðlönd Landslags- verndarsvæði Verndarsvæði með sjálfbærri nýtingu BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Nefnd um endurskoðun náttúru- verndarlaga hefur skilað af sér tillög- um, eða svonefndri hvítbók, um lög- gjöf til verndar náttúru Íslands. Um leið hefur umhverfisráðherra lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, sem ekki þótti ástæða til að biði heildarendur- skoðunar laganna. Er þar einkum tekið á akstri utan vega, m.a. með skilgreiningu á hugtakinu vegur. Meðal þess sem nefndin leggur til í hvítbókinni eru fjórir nýir flokkar friðlýsingar (sjá töflu), skýrar verði kveðið á um almannarétt í náttúru- verndarlögum, nauðsynlegt sé að val- in vatnasvæði verði varðveitt óspillt, endurskoða þurfi heimild landeig- enda til að banna för og dvöl gang- andi fólks um afgirt óræktuð lönd og einnig telur nefndin rétt að íhuga til- flutning verkefna milli stofnana á sviði náttúruverndar og mögulega sameiningu þeirra. Er þar sameining Náttúrufræðistofnunar og Veiði- málastofnunar sérstaklega nefnd. Þá fjallar nefndin um verndun vatns og vatnasviða. Bent er á að efn- isreglur um nýtingu og umgengni um vatn sé ekki að finna í einum heild- stæðum lagabálki hér á landi, heldur séu ákvæði um þetta dreifð í löggjöf-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.