Morgunblaðið - 07.09.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011
Eftirfarandi lögun veiddu Stak-steinar lítt breytta úr potti
Evrópuvaktarinnar:
Sigurður KáriKristjánsson
spurði Steingrím J.
Sigfússon tveggja
efnislegra spurn-
inga: annars vegar
um afstöðu hans til
gagnrýni þingflokks
VG á iðnaðarráð-
herra vegna með-
ferðar þess ráð-
herra á málefnum
Byggðastofnunar,
hins vegar um
ályktun flokksráðs-
fundar VG um rannsóknarnefnd á
Líbíumálið.
Hver voru svör ráðherrans viðþessum efnislegu spurn-
ingum?
Þau voru m.a. þessi:
„Það er prýðilega starfhæf rík-
isstjórn í landinu og það stendur
ekki til að láta einhverja pörupilta
og stráka komast upp á milli stjórn-
arflokkanna.“
Hvað ætli valdi því að ráð-
herrann svarar spurningum um
efnisleg atriði í þessum tón?
Þegar Bjarni Benediktsson, for-maður Sjálfstæðisflokksins,
spurði ráðherrann um afstöðu hans
til ummæla forseta Íslands vegna
Icesave kvaðst hann skv. frásögn
Morgunblaðsins „ekki ætla að
leggja það á þing og þjóð að fara að
munnhöggvast við forseta Íslands“.
Var einhver að biðja um það? Það
var verið að spyrja þann ráðherra,
sem fór með Icesave-málið um af-
stöðu hans til harðrar gagnrýni for-
seta Íslands á ríkisstjórnina vegna
meðferðar hennar á Icesave.
Hvernig stendur á því að ráð-herrann getur ekki svarað
spurningu um það með efnislegum
hætti?
Sigurður Kári
Fátt um svör
STAKSTEINAR
Steingrímur J
Veður víða um heim 6.9., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 9 alskýjað
Akureyri 9 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 11 skúrir
Vestmannaeyjar 11 skýjað
Nuuk 5 alskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 12 skúrir
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 17 skýjað
Lúxemborg 17 skýjað
Brussel 16 skúrir
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 12 skúrir
London 17 skúrir
París 21 skýjað
Amsterdam 16 súld
Hamborg 16 skúrir
Berlín 21 skýjað
Vín 23 léttskýjað
Moskva 16 skýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 31 heiðskírt
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 28 léttskýjað
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 18 léttskýjað
Montreal 17 skýjað
New York 16 skúrir
Chicago 17 léttskýjað
Orlando 27 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:28 20:25
ÍSAFJÖRÐUR 6:27 20:35
SIGLUFJÖRÐUR 6:10 20:19
DJÚPIVOGUR 5:56 19:56
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Hárið á Aroni Bjarnasyni er mikil
höfuðprýði. Hann hefur safnað
dreddum í sjö ár en ætlar nú að
láta þessa miklu lokka fjúka fyrir
gott málefni. „Dreddarnir látnir
fjúka til góðs!“ er yfirskrift söfn-
unar sem Aron hefur efnt til í
gegnum samskiptasíðuna Facebo-
ok. Hann hefur ákveðið að leggja
sitt af mörkum til að sporna við
þeirri miklu hungursneyð sem er í
austurhluta Afríku og ætlar að
klippa af sér dreddlokkana ef hann
nær að safna hundrað þúsund krón-
um. Peningarnir renna beint til
Hjálparstarfs kirkjunnar, sem er
með neyðaraðstoð á svæðinu.
„Þetta byrjaði þannig að ég og
hljómsveitin sem ég er í, sem heitir
Tilviljun?, ákváðum að halda
styrktartónleika sem fara fram á
sunnudaginn. Síðan datt mér bara í
hug, því ég hef svolítið verið að
pæla í að klippa mig, að nýta tæki-
færið og reyna að safna pening í
leiðinni. Ég og bræður mínir þrír
sem eru með mér í hljómsveitinni
bjuggum í Eþíópíu í átta ár svo
þetta stendur okkur nærri. For-
eldrar okkar voru kristniboðar og
með hjálparstarf þar,“ segir Aron.
Hár eða halda?
Söfnunin hófst síðasta sunnudag
og stendur í viku. Viðbrögðin hafa
verið góð að sögn Arons sem er
viss um að upphæðin verði komin í
hundrað þúsund þegar þetta viðtal
birtist. Hann segir að nú sé
tækifærið fyrir þá sem
finnst hárgreiðslan hans
ljót að taka upp veskið
og leggja sitt af mörk-
um. Hann hefur efnt til
svolítillar keppni í kring-
um söfnunina, þeir sem
vilja að hann losi sig við
hárið eiga að skrifa Hár í
athugasemd þegar lagt
er inn á reikninginn en
þeir sem vilja að hann
haldi því skrifa Halda.
Á hann ekki eftir að sjá eftir
hárinu? „Dreddarnir eru mikill
partur af mér svo það verður lík-
lega sjokk að losna við þetta en það
er mikil huggun að vita að maður
er að styrkja gott málefni. Eldri
bróðir minn er líka með dredda,
hann var að segja að ef heildarsöfn-
unin kæmist upp í milljón þá myndi
hann klippa sig líka,“ segir Aron.
Hann á líka tvo yngri bræður með
dredda. „Við erum fjórir bræður á
aldrinum 14 til 23 ára og allir með
dredda. Við eldri bræðurnir erum
búnir að vera með þetta í sjö ár en
þeir yngri bara í tvö ár og ekki til-
búnir að klippa þá af sér,“ segir Ar-
on en það var systir þeirra bræðra
sem gerði dreddana í þá.
Lætur dreddana fjúka til góðs
Klippir af sér dreddlokka sem hann hefur safnað í sjö ár fyrir gott málefni
Peningarnir renna til hjálparstarfs í Afríku Bjó í átta ár í Eþíópíu
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Dreddadrengir Bræðurnir Markús, Aron, Birkir og Elías eru allir saman í hljómsveitinni Tilviljun? Aron hefur safn-
að dreddum í sjö ár en ætlar að klippa þá af nái hann að safna 100 þúsund kr. til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar.
Styrktartónleikar vegna hungursneyðar í Austur-Afríku fara fram sunnu-
dag 11. september kl. 20 í Fíladelfíu, Hátúni 2, í samstarfi við Hjálparstarf
kirkjunnar. Þar leika hljómsveitin Tilviljun?, tónlistarmaðurinn Pétur Ben
og sr. Guðmundur Karl Brynjarsson. Aðgangseyrir er 1.500 kr. og rennur
óskiptur til neyðarhjálparinnar í Afríku.
Þeir sem vilja styrkja hársöfnun Arons eða Hjálparstarf kirkjunnar
geta millifært inn á reikning hjálparstarfsins; Reikningsnr: 0334-26-
886 og kt: 4506700499. „Markmiðið með tónleikunum er að safna
hálfri milljón og markmið mitt með hárinu er að safna hundrað þús-
undum. Fyrir 500.000 kr. getur þú keypt korn fyrir 2000 manns í
þrjá mánuði svo þetta framtak okkar á vonandi eftir að framfleyta
mörgum,“ segir Aron.
Þið eruð ekki ein
STYRKTARTÓNLEIKAR