Morgunblaðið - 07.09.2011, Page 25

Morgunblaðið - 07.09.2011, Page 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011 Guðmundur tengdafaðir minn er horfinn héðan. Guðmundur Þorkell Björnsson ✝ GuðmundurÞorkell Björns- son fæddist í Reykjavík 11. júlí 1922. Hann lést á bráðamóttöku Landspítalans 15. ágúst 2011. Útför Guð- mundar fór fram frá Fossvogskirkju 26. ágúst 2011. Aðeins eru örfá ár síðan Stella kon- an hans kvaddi okkur. Nú eru þau búin að hitta Gunn- ar son sinn á nýjum stað. Örugglega fagnaðarfundir hjá þeim. Við sem eftir lifum erum það eig- ingjörn að við gleðjumst ekki yfir þeirra samfundum. Við hefðum öll viljað hafa þau lengur með okkur. En við á jörðinni ráðum engu, það eru æðri máttarvöld sem ráða. Guðmundur og Stella voru ein heild. Kvöldið áður en Stella kvaddi heimsótti ég hana á spít- alann. Þá sagði ég við hana: „Þegar þú hittir Gunnar, þá skilar þú kveðju frá mér.“ Hún kreisti höndina á mér svo fast, að ég finn það enn. En nú eru þau öll saman og geta rætt um þjóðmálin og politíkina. Þau voru aldrei sammála í pólitík- inni. En því miður fæ ég ekki höfuðverk af hávaðanum í þeim núna. Ég vildi frekar hafa höf- uðverk en missa þau öll. Því miður gat ég ekki kvatt Guðmund nógu vel, tókst að vísu að halda upp á 89 ára afmælið með honum í júlí. Guðmundur var þannig mað- ur að það fór ekki mikið fyrir honum, hann var samt með sín- ar skoðanir á hreinu, hvers manns hugljúfi. Það er (og var) bara eitt eintak af Guðmundi Þ. Björnssyni. Hann Guðmundur hefði ekki viljað lofrullu um sig, þess vegna segi ég: þakka þér Guð- mundur fyrir að hafa verið til, þú gafst svo mikið til okkar sem eftir lifum. Ég samhryggist ykkur Sirrý, Magga, Birna og Konni, missir ykkar er mikill. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Þín tengdadóttir, Kolbrún Jónsdóttir. Elsku frænka. Þá ertu farin frá okkur og komin aftur í faðm Jónína Björg Guðmundsdóttir ✝ Jónína BjörgGuðmunds- dóttir, bóndi og húsmóðir, fæddist á Dvergasteini við Seyðisfjörð 31. jan- úar 1937. Hún lést á Kirkjuhvoli 17. ágúst 2011. Útför Jónínu fór fram frá Breiðaból- staðarkirkju í Fljótshlíð 27. ágúst 2011. Árna þíns sem kvaddi okkur ekki fyrir löngu. Nú líð- ur þér vel en þú saknaðir hans svo mjög og þú misstir mikið þegar hann dó. Það er skrítið til þess að hugsa að geta ekki komið aftur til þín í kaffi- sopa inn að Teigi. Það var alltaf svo gott að heimsækja ykkur. Alltaf allt svo fínt hjá þér og þú tókst alltaf svo vel á móti okkur með fullt borð af kræsingum. Þegar ég var krakki og gamla stillimyndin á skjánum hjá RÚV á fimmtudagskvöldum komum við alltaf í heimsókn og það var alltaf jafn gaman og spennandi. Ég hlakkaði alltaf til fimmtu- daganna. Eins þegar við komum alltaf á annan í jólum í jóla- kaffið. Sérstaklega man ég eftir því þegar við urðum veðurteppt hjá ykkur ein jólin og fannst mér það alveg æðislegt og mikið ævintýri. Ég man eins og gerst hefði í gær að ég vonaði svo heitt og innilega að það yrði vont veður alla nóttina svo við þyrftum að gista hjá ykkur. En mér varð ekki að ósk minni í það skiptið því óveðrinu slotaði og við komumst heim fljótlega eftir miðnætti. Eftir að Árni lést komst þú oft á Selfoss til að útrétta og tókst mömmu með þér. Þá kom- uð þið kellurnar alltaf við hjá mér í kaffi og þótti mér mikið vænt um þær heimsóknir. Þú varst mikið hrifin af stelpunum mínum og þér fannst Guð- munda litla sérstaklega fyndin þegar hún var að gretta sig og ataðist þú í henni, henni til mik- illar skemmtunar. Þegar ég gifti mig í vor mættir þú að sjálfsögðu spræk á staðinn og ég man vel þegar þið amma á horninu kvödduð mig seint um kvöldið að þú sagðir mér að þetta væri það skemmtilegasta brúðkaup sem þú hefðir komið í, svo mikil var gleðin hjá þér. Elsku frænka takk fyrir allt og allt. Bjössi, Hrafnhildur, Hlín, Palli og krakkarnir. Megi góður Guð styðja ykkur og styrkja. Minningin um góða konu lifir. Helena Guðmundsdóttir. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Veitingastaðir TILBOÐ - TILBOÐ- TILBOÐ 990 kr. heitir réttir í hádeginu með gosi og 990 kr. kg af fiskrétti dagsins. S: 5173131 Grandagarði 11 Humarhlaðborð Humarhlaðborð öll kvöld - tilvalið fyrir starfsmannahópinn þinn, aðeins 35 mín. frá Rvk. Veitingastaðurinn Hafið Bláa - Borðapantanir í síma 483 1000 - Sjá www.hafidblaa.is Húsgögn Rýmingarsala á skrifstofu- húsgögnum Rýmingarsala á skrifstofuhúsgögnum í útibúi Arion banka í Grafarvogi, Foldatorgi 1-5. Skrifborð, hillur, stólar o.fl. Opið 7. og 8. sept. frá 12:30 til 18 báða dagana. Uppl. í síma 856 1488. Skemmtanir PARTÍ PARTÍ PARTÍ Nú er komið að því! Næstkomandi laugardag 10. sept. ætla fyrrverandi og núverandi starfs- menn Lyngáss að hittast í Fram- heimilinu Safamýri og eiga saman frábært kvöld. Húsið opnar kl. 19.00, verð er 4000 kr. með veitingum. Hvetjum alla til að mæta, skráning er hafin. Uppl. gefur Halla Jóns. hallajons@islandia.is Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Sófi til sölu Stakur DESIGNER leðursófi til sölu, Corbushe, dökkbrúnn að lit og ónotaður. Tilboð óskast í þennan sófa angela8819@gmail.com Fjarstýrðar innanhússþyrlur í úrvali Erum með mikið úrval af fjarstýrðum inni- og útiþyrlum, flugvélum, bátum og fl. Kíktu á síðuna Tactical.is og skoðaðu úrvalið. Netlagerinn slf. Sími 517 8878. RISASÖLUBASAR Þrastarnes 11, Garðabær Frá 12 - 2 föstudag 9. og laugardag 10. sept. Sjónvarp 47 ", i mac-tölva, barnavörur, húsgögn, leðursófasett, vefnaðarvara. Bæði nýtt og notað. Frábær verð í boði. Öll tilboð skoðuð. Verið velkomin! angela8819@gmail.com 12v ljós - Frábært úrval! Bjóðum mikið úrval af samtengjan- legum 12v ljósum úr ryðfríu stáli, hertu áli og plastefnum. Kíkið inn á www.gosbrunnar.is og sjáið úrvalið! Síminn er 695 4220. Óska eftir Kaupi gamla mynt og seðla Kaupi gömul mynt- og seðlasöfn. Geri tilboð á staðnum. Gull- og silfur- peningar. S. 825 1016, Sigurður. Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is - s. 551 6488. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald Bókhald og reikningsskil Ársreikningar, bókhald, laun, ráðgjöf og stofnun félaga. Reynsla, þekking, traust. Viðskiptaþjónustan, Dalvegi 16d, Kópavogi. vth.is / arni@vth.is / s. 517 0100. Við bjóðum alla bókhalds- þjónustu. Traust og gagnkvæmur trúnaður. www/fsbokhald.is. Fyrirtæki og samningar ehf, Suðurlandsbarut 46, 108 Reykjavík. S. 5526688 Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA Er komin móða eða raki á milli glerja? Móðuhreinsun ÓÞ. Sími 897-9809. Fellihýsi Góð geymsla fyrir fellihýsi og tjaldvagna Upphitað og loftræst. Steinsteypt og einangrað hús. 801 Selfoss. Uppl. s. 897 1731. Ferðavagnageymsla Borgarfirði Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi, báta og fleira í upphituðu rými. Gott verð. S. 612-6130. E-mail solbakki.311@gmail.com. Golden retriever hvolpar til sölu Til sölu hvítir golden retriever hvolpar, hreinræktaðir og verða ættbókarfærðir frá HRFÍ. Frábærir fjölskyldu- og veiðihundar með ein- staklega gott geðslag. Upplýsingar á art@mi.is. Dýrahald finnur.is ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL KRISTINSSON vélstjóri, Njarðvíkurbraut 32, Innri-Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 26. ágúst. Útför hans fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 8. september kl. 14.00. Kristinn Pálsson, Björg Valtýsdóttir, Elín Margrét Pálsdóttir, Sigurður S. Guðbrandsson, Vilhelmína Pálsdóttir, Ingólfur Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og dóttir, ANNA ÞÓRA PÁLSDÓTTIR, Grænukinn 27, Hafnarfirði, sem andaðist á heimili sínu miðviku- daginn 31. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. september kl. 15.00. Gróa Jóhannsdóttir, Arnaldur Sigurðsson, Guðný Jóhannsdóttir, Jón Einarsson, Fríða Jóhannsdóttir, Magnús Waage, Sigurður Borgar og Jóhann Snær Arnaldssynir, Ingunn Þóra og Eva Rún Einarsdætur, Arnar og Alex Jónssynir, Annika og Freyr Waage, Tinna Mjöll og Katrín Lilja, Gróa Guðmundsdóttir. ✝ Útför ástkærrar sambýliskonu, móður, tengdamóður, ömmu, dóttur, systur, mágkonu og frænku, HRUNDAR HELGADÓTTUR hjúkrunarfræðings, verður gerð frá Hallgrímskirkju föstudaginn 9. september kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu heiðra minningu hennar er bent á Minningarsjóð líknardeildar í Kópavogi, sími 543 1159. Hörður V. Sigmarsson, Eva Bjarnadóttir, Styrmir Goðason, Bragi Styrmisson, Snorri Örn Arnarson, Hervör Hólmjárn, Hildur Helgadóttir, Hörður Helgi Helgason, Elsa B. Valsdóttir, Guðmundur Jón Helgason, Lilja H. Ægisdóttir, Birgir Helgason og systkinabörn. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein", valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.