Morgunblaðið - 07.09.2011, Síða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
3 5
5 7 6
8 3 7 1
6 8 1 2
6 9 7
9 3 5
3
7 5 2
1 3 6
4 5
3 9
2 9 8
9 5 4 2
3 1
6 3 9
5 6 4
8 9 4 2 1
7 4 9
5 1 2 8
4 2
7 2
3 1 5
1 6 4
1 2
6 8 5
7 3
8 2 3 5 1 9 6 7 4
4 5 6 7 8 2 1 3 9
7 9 1 4 3 6 8 2 5
6 7 9 8 2 1 5 4 3
2 4 8 3 6 5 9 1 7
3 1 5 9 7 4 2 6 8
1 3 4 2 5 8 7 9 6
5 6 7 1 9 3 4 8 2
9 8 2 6 4 7 3 5 1
1 6 5 7 4 8 3 2 9
8 7 9 3 2 1 5 4 6
2 4 3 5 9 6 7 8 1
6 8 2 4 5 7 9 1 3
5 1 7 8 3 9 4 6 2
9 3 4 1 6 2 8 7 5
3 2 6 9 7 4 1 5 8
4 5 1 6 8 3 2 9 7
7 9 8 2 1 5 6 3 4
1 5 2 6 9 7 8 4 3
4 7 8 2 3 1 6 9 5
3 6 9 8 5 4 2 7 1
2 9 7 3 6 5 4 1 8
6 8 3 4 1 2 7 5 9
5 4 1 7 8 9 3 2 6
7 1 6 9 2 8 5 3 4
8 2 5 1 4 3 9 6 7
9 3 4 5 7 6 1 8 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 7. september,
250. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Hann veitti sálum vor-
um lífið og lét oss eigi verða valta á
fótum. (Sl. 66, 9.)
Víkverji er ekki þannig útlits aðhann valdi uppnámi og árekstr-
um þegar hann birtist á almanna-
færi fyrir fegurðar sakir. En nú
stendur það allt til bóta, svo er skyr-
inu fyrir að þakka, nánar tiltekið
norðlensku skyri. Víkverji borðar
iðulega skyr úr litlum dollum (og
stórum) og tók eftir því þegar hann
var að fletta álpappírnum ofan af
dollu af skyri með bananasplitti frá
KEA í gær að á það var letrað „feg-
urð, hreysti, hollusta“.
x x x
Víkverji hefur alltaf haldið að sásem gæti fangað fegurðina, sett
hana á dós og komið henni í hillur í
búðum myndi ekki þurfa að örvænta
um afkomu sína það sem eftir væri.
Og hvað gæti fólki þótt eftirsóknar-
verðara en fegurðarskyr, nema ef
vera skyldi sjálfur lífselixírinn. Þess
vegna botnar Víkverji ekkert í því að
norðanmenn skuli ekki gera meira
úr uppgötvun sinni, þótt annálaðir
séu fyrir hógværð.
x x x
Víkverji hefur nú borðað skyr fráKEA tvo daga í röð og mænt á
sjálfan sig í spegli til að sjá hvort
fegurðin komi ekki strax fram. Ekk-
ert bólar á henni enn, en Víkverji
mun ekki láta deigan síga. Honum
fyndist samt að framleiðandinn
mætti taka fram hvað þarf að borða
mikið af skyrinu og hversu oft. Eins
væri ágætt að vita hvort fegurðin
hyrfi aftur ef neyslu væri hætt – sem
sé hvort Víkverji þyrfti að borða
skyrið daglega það sem eftir væri
ævinnar ætti hann ekki að verða
ljótur aftur eða hvort sérhver feg-
urðarauki, sem skyrið veitti væri
varanlegur og til frambúðar.
x x x
Víkverja finnst líka að KEAmætti setja fyrir og eftir mynd-
ir á umbúðirnar. Það gæti gefið hon-
um einhverja hugmynd um hvað
væri í vændum héldi hann áfram
samviskusamlega að borða skyrið.
Eins kæmist Víkverji þá að því hvort
hann hefði sömu hugmyndir um feg-
urð og norðanmenn því hverjum
þykir sinn fugl fagur. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 loftkastalar, 8 af-
komandi, 9 gervallur, 10
skip, 11 japla, 13 æða yfir,
15 vinna, 18 heimshlutinn,
21 hrós, 22 kyrrsævi, 23 rán-
fugls, 24 viðskotaillur.
Lóðrétt | 2 lítils björns, 3
maðkur, 4 stór steinn, 5
geng, 6 hæðum, 7 þrjóska,
12 meis, 14 bókstafur, 15
vers, 16 ilmur, 17 ferðalög
án markmiðs, 18 skellur, 19
hittu, 20 líffæri.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 gegnt, 4 gegna, 7 ilmur, 8 leifa, 9 fet, 11 apar, 13 vill, 14
eyðni, 15 gróf, 17 tómt, 20 hrá, 22 eimur, 23 kuggs, 24 parts, 25
finna.
Lóðrétt 1 geiga, 2 gemla, 3 torf, 4 gölt, 5 geiri, 6 aðall, 10 eiður,
12 ref, 13 vit, 15 greip, 16 ólmar, 18 ólgan, 19 tuska, 20 hrós, 21
áköf.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Móðgunarlaust. N-Enginn.
Norður
♠ÁK97642
♥1053
♦8
♣42
Vestur Austur
♠G5 ♠D1083
♥G96 ♥742
♦9754 ♦63
♣DG106 ♣K973
Suður
♠–
♥ÁKD8
♦ÁKDG102
♣Á85
Suður spilar 6♦.
„STOPP – þrír spaðar.“ Norður er
gjafari og velur óheppilegan tíma til að
hindra. Makker hans í suður dregur
djúpt andann, svarar svo í sömu mynt:
„STOPP – sex tíglar“. Fleiri verða
sagnirnar ekki og út kemur ♣D.
Það væri móðgun við vestur að
dúkka fyrsta slaginn, ekki síst eftir
langa yfirlegu. Vestur mun þá setja
upp vandlætingarsvip og þrýsta ♦9 á
borðið í öðrum slag. Nei, betra er að
drepa strax og reyna að nýta ♦8 blinds
á heiðarlegan hátt. Fyrst er hjartað
kannað með ♥Á-K. Ef gosinn dettur,
verður tían innkoma og málið er dautt.
En ekki kemur gosinn og þá er ekki
um annað að ræða en spila ♥D líka.
Þegar hún heldur, er hjarta spilað í
fjórða sinn og ♦8 í borði leyst úr læð-
ingi.
7. september 1874
Sigurður Guðmundsson mál-
ari lést, 41 árs. Hann nam mál-
aralist, gerði leiktjöld og átti
mikinn þátt í stofnun forn-
gripasafnsins (Þjóðminja-
safnsins). Sigurður sá, ásamt
Sigfúsi Eymundssyni, um und-
irbúning þjóðhátíðarinnar á
Þingvöllum sem haldin var
mánuði áður en hann lést.
7. september 1933
Stórrigningu gerði á Suðvest-
urlandi. Ár flæddu út fyrir
farvegi og mikið tjón varð,
meðal annars á vegum og
brúm í Borgarfirði. Norður-
árdalur „var allur eins og haf-
sjór,“ sagði í Morgunblaðinu.
7. september 1939
Úr landsuðri, fyrsta og eina
ljóðabók Jóns Helgasonar pró-
fessors, kom út. „Maðurinn er
skáld,“ sagði Karl Ísfeld í Al-
þýðublaðinu.
7. september 1948
Gerð var fyrsta tilraun til
vöruflutninga í stórum stíl
með flugvélum þegar Gljáfaxi
flaug milli Reykjavíkur og
Fagurhólsmýrar í Öræfum.
Austur var flutt rúgmjöl,
hveiti, sykur, kaffi o. fl. en
nautgripakjöt af nýslátruðu til
baka.
7. september 1973
Mósaíkmynd Gerðar Helga-
dóttur á Tollstöðinni í Reykja-
vík var afhjúpuð. Myndin er
142 fermetrar og í henni eru
milljónir marglitra mósaík-
steina.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Það er bara venjulegur vinnudagur hjá mér í
dag. Hér verður bara unnið á fullu eins og flesta
aðra daga,“ segir Gylfi Gylfason, framkvæmda-
stjóri Símabæjar, en hann er 45 ára í dag. Að-
spurður segir hann að ekki verði nein veisluhöld í
tilefni af afmælinu. Hann hafi einfaldlega alltof
mikið að gera þessa dagana til þess.
„Ég er núna flest kvöld meðal annars að und-
irbúa námskeið um það hvernig fólk getur hag-
nýtt sér ebay-vefinn til þess að markaðssetja og
selja vörur sem byrja 20. september hjá Mími sí-
menntun. Svo er ég líka að setja saman mitt eigið
prógramm í þeim efnum sem byrjar í október. Þannig að það er nóg
að gera,“ segir Gylfi en hann stóð einnig fyrir slíkum námskeiðum
síðastliðinn vetur sem yfir 120 manns sóttu.
Gylfi hefur rekið verslunina Símabæ undanfarinn áratug en hún
sérhæfir sig í símafylgihlutum og farsímum. Reksturinn hefur smám
saman undið upp á sig og rekur Gylfi í dag nokkrar verslanir á ebay
þar sem hann selur meðal annars varahluti úr gömlum símum til er-
lendra kaupenda. „Það er einfaldlega þannig að það er hægt að selja
hvað sem er á ebay,“ segir Gylfi. hjorturjg@mbl.is
Gylfi Gylfason er 45 ára í dag
Enginn tími fyrir veisluhöld
Brúðkaup
Ragnheiður Lind Geirsdóttir
og Brynjar Ólafsson voru gefin
saman í Grensáskirkju 13.
ágúst 2011. Guðni Hjálmarsson
gaf þau saman. Brúðhjónin eru
búsett í Flórída.
Flóðogfjara
7. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.06 2,9 8.27 1,4 15.02 3,2 21.31 1,3 6.28 20.25
Ísafjörður 4.26 1,6 10.44 0,8 17.15 1,9 23.45 0,7 6.27 20.35
Siglufjörður 0.11 0,5 6.53 1,1 12.45 0,7 19.03 1,3 6.10 20.19
Djúpivogur 5.01 0,8 11.43 1,8 18.23 0,9 5.56 19.56
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Einhver segir ekki alla söguna, en það
er erfitt að vera alveg viss. Varastu að byrgja
hlutina inni. Gerðu hvaðeina sem gerir þig
glaða/n.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Nú er komið að því að taka ákvörðun
svo þú verður að taka af skarið. Ekki dæma
þann sem gaf sér þessi ráð of fljótt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Samræður við vin eða maka ganga
ekki jafnvel og þú hefðir kosið. Hertu upp
hugann og reyndu að halda þínu striki.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þeir tímar geta komið að maður er
eins og á milli tveggja elda – heimilis og
vinnustaðar. Þér verður á að hrósa mann-
eskju sem kann ekki að meta það.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er eins og aðgerðir þínar hafi öfug
áhrif við það sem þú áttir von á. Að eltast við
hjörtu getur tekið sinn toll.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Eitthvað verður til þess að setja allt á
annan endann hjá þér í dag. Allt virðist kosta
of mikið, vera of mikil fyrirhöfn eða tilgangs-
laust.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú sækir í einveruna þessa dagana og
ert ekki í skapi til að vera í félagsskap. Ef þú
auglýsir hæfileika þína eiga tækifærin auð-
veldari aðgang að þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur lengi reynt að fá kunn-
ingja þinn til að skila ákveðnum hlut. Leiðin
framundan liggur bara upp á við.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Hvatvísi í innkaupum gæti komið
þér í vanda. Brettu upp ermarnar og taktu
fram verkfæratöskuna.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Nafnspjald þitt ætti að vera vinur
af bestu gerð. Ekki ögra makanum og gára
vatnið bara af því að þér leiðist. Vertu opin/n
fyrir áliti annarra.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Einblíndu á hagnýt smáatriði í
dag. Ef þér finnst einhver ganga of langt
skaltu segja honum eða henni frá því.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Margur verður af aurum api og þótt
peningar séu hreyfiafl margra hluta þá fer því
fjarri að þeir séu það sem mestu máli skiptir í
lífinu. Láttu langanir þínar í ljós strax í upp-
hafi sambands.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 d6 6. g4 a6 7. Bg2 Rc6 8. Rxc6
bxc6 9. e5 dxe5 10. Dxd8+ Kxd8 11.
Bxc6 Hb8 12. g5 Rd7 13. b3 Kc7 14. Bg2
h6 15. g6 f5 16. Bb2 h5 17. Hg1 Hh6 18.
Bf1 Bc5 19. Ra4 Bb4+ 20. Kd1 Bb7 21.
a3 Bd6 22. Bc3 Hf8 23. Ke1 h4 24. Hd1
Bf3 25. Be2 Bxe2 26. Kxe2 Hb8 27. Hd3
Rf6 28. Hgd1 Rd5 29. Bd2 Hxg6 30. c4 e4
31. Hd4 Rf4+ 32. Bxf4 Bxf4 33. Rc5 Ha8
34. b4 h3 35. Hd7+ Kc6 36. Rb3 Bc7
Staðan kom upp í opnum flokki heims-
meistaramóts 20 ára og yngri sem lauk
fyrir skömmu í Chennai á Indlandi.
Ítalski alþjóðlegi meistarinn Alex Rom-
baldoni (2.459) hafði hvítt gegn spænska
stórmeistaranum Ivan Lopez Salgado
(2.626). 37. Ra5+! Kb6 svartur hefði orð-
ið mát eftir 37. … Bxa5 38. H1d6#. 38.
H1d6+! og svartur gafst upp enda mát
eftir 38. … Bxd6 39. Hb7#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.