Morgunblaðið - 07.09.2011, Page 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞÚ ÁST
GULLFISKINN
MINN ER ÞAÐ
EKKI?
HANN
ER Á BETRI
STAÐ OG MÉR
LÍÐUR VEL
HAFÐU ENGAR ÁHYGGJUR ÉG
ÆTLA EKKI AÐ SEGJA ÞÉR ÞAÐ!
Á ÉG AÐ
SEGJA ÞÉR FRÁ
SVOLITLU
SÆTU SEM
SYSTIR MÍN
GERÐI?
MÉR DETTUR FÁTT Í
HUG SEM MÉR ÞÆTTI
EINS LEIÐINLEGT
GÓÐ EIGINKONA VERÐUR AÐ VAKNA Á UNDAN
MANNINUM SÍNUM. HÚN VERÐUR AÐ HAFA TIL
FÖTIN HANS, ELDA STAÐGÓÐAN MORGUNVERÐ,
ÚTBÚA NESTI HANDA HONUM OG KYSSA HANN BLESS
EN EFTIR ÞAÐ GETUR HÚN LAGT SIG
FRAM AÐ HÁDEGI OG FARIÐ SVO AÐ
VERSLA MEÐ VINKONUM SÍNUM
HÉÐAN Í FRÁ MUN
ALLT SEM ÞÚ GERIR,
SEM HUNDUR, VERA
SKRÁÐ OG ÞÉR GEFIN
EINKUNN FYRIR
FRAMMISTÖÐU ÞÍNA
ÞEGAR ÞÚ
ERT BÚINN AÐ FÁ
HUNDALEYFIÐ ÞITT
AFTUR ÞÁ MUN ÉG
LÁTA ÞIG Í FRIÐI
GOTT OG
VEL EN ÁÐUR
EN VIÐ BYRJ-
UM ÞÁ ÞARF
ÉG AÐ MÍGA
HELDUR EKKI
NÓGU GÓÐU
JAFNVÆGI,
STENDUR OF
NÁLÆGT TRÉNU
ÞÚ
HLÝTUR
AÐ VERA
AÐ GRÍN-
AST!!?
ÞIG LANGAÐI AÐ
ENDURVEKJA RÓMANTÍK-
INA Í SAMBANDINU, VIÐ
SKULUM BYRJA Á ÞVÍ SEM
ÞÚ GAFST MÉR Á VALEN-
TÍNUSARDAGINN
ÞAÐ
VÆRI
YNDÆLT
EN
KLUKKAN
ER AÐ
VERÐA
11
SVONA NÚ,
KVEIKJUM Á
KERTUNUM OG
SVO SKAL ÉG
NUDDA ÞIG MEÐ
ÞESSARI OLÍU
ÁSTIN?
ÉG VEIT EKKI HVER ÞÚ ERT, EN ÉG RÁÐLEGG ÞÉR
AÐ SKILA ÞESSARI ÓMETANLEGU HAUSKÚPU!
EF ÞÚ VILT
FÁ HANA...
GRÍPTU
ÞÁ!
ÉG VERÐ AÐ
BJARGA HENNI
ÉG Á EKKERT
SÖKÓTT VIÐ HANN!
ÉG ÆTLAÐI AÐ LOKKA
TIL MÍN KÓNGULÓAR-
MANNINN, EKKI
IRON MAN!
Pestadreifing er
líkamsárás
Flestir venjulegir
menn munu hika við að
ganga að öðru fólki og
gefa því einn á snúðinn,
jafnvel þótt viðtakand-
inn eigi fyrir kveðjunni.
Upp úr unglingsárum
og sumir fyrr, hafa
nefnilega flestir orðið
afhuga líkamsárásum.
Við þeim liggja auk
þess refsingar, og það
eins þótt enginn var-
anlegur skaði sé af
árásinni. Kinnhestur er
refsiverður, enda rýfur
hann friðhelgi líkama annars manns.
En talsverður fjöldi fólks virðist ekki
hika við annars konar form líkams-
árása. Hver hefur ekki lent í því að
upp að honum er kominn pestargeml-
ingur, smitandi allt og alla í kringum
sig? Sumir mæta jafnvel í heimsóknir í
önnur hús, með hálsbólguna, og dreifa
henni í allar áttir. Nú eða með grútk-
vefaða krakka með sér, sem gerir
sama gagn við pestadreifinguna. Aðrir
bjóða gestum heim, en taka ekki fram
að heimiliskrakkinn sé með bráðsmit-
andi kveisu – og auðvitað er krakkinn
hafður innan um gestina allt kvöldið,
eins og tíðkast á íslenskum nútíma-
heimilum þar sem víðsýnið skín. Þeir,
sem vilja ná sem flestum, beita hins
vegar gjarnan því bragði að fara smit-
andi í farþegaflug. Þannig geta menn
jafnvel náð að smita
heila vél og skemma frí-
ið fyrir fjölda fólks.
Varla ætlast nokkur til
að nútíma Íslendingur
breyti eigin áætlunum,
bara til að smita ekki
aðra? Á dögunum var
ég í heimsókn hjá for-
eldrum nýfædds barns.
Birtust þar ekki frænk-
ur þess nýfædda með
krakkaskara með sér,
allir með vonda háls-
bólgu að eigin sögn.
Barnið var því næst
hrifsað úr fangi móður
sinnar og upphófst óg-
urlegt kjass, milli þess
sem menn sugu upp í nefið með látum
sem hefðu sómt sér vel í tónverki eftir
Jón Leifs. Menn ættu að spyrja sig
hvort þeir vildu frekar fá sakleys-
islegan kinnhest eða vera smitaðir af
margra daga kveisu. Þegar þeir hafa
svarað því, þá átta þeir sig á því að það
er tilraun til líkamsárásar þegar fólk
æðir af sóttarsænginni út í bæ, bara af
því að háttvirt það sjálft langar út.
Kvefþreyttur borgari.
Seðlaveski tapaðist
Seðlaveski tapaðist í Bónus í Skeifunni
í fyrradag. Uppl. í s. 557-1265 eða 698-
0655.
Ást er…
… að hjálpa til í
samfélaginu.
NYTJAMARKAÐUR
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnust./postulín kl. 9,
vatnsleikf. kl. 10.50, útsk., postulín/bíó kl.
13.
Árskógar 4 | Handav./smíði/útskurður
kl. 9. Heilsugæsla kl. 10.
Boðinn | Álfa- og tröllasmiðja kl. 10. Bón-
usrúta kl. 13.30. Vatnsleikfimi kl. 9.15
(lokaður hópur).
Bólstaðarhlíð 43 | Glerlist allan daginn,
handavinna, spiladagur.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Spil, handavinna og spjall kl. 13.30.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofa í Gullsmára opin á mán. og mið. kl.
10-11.30, Gjábakka á mið.kl. 15-16. Fé-
lagsvist spiluð í Félagsh. Gullsmá. mán. kl.
20.30 og Félagsh. Gjábakka mið. kl. 13,
fös. kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-
Hrólfar kl. 10 frá Stangarhyl 4.
Félagsheimilið Gjábakki | Handav.
leiðb. kl. 9, botsía kl. 9.30/10.30, fé-
lagsvist kl. 13 og viðtalst. FEBK kl. 15-16.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist
kl. 9, ganga kl. 10. Postulín/kvennabrids
kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Kvennaleikf. í Sjálandi kl. kl. 9.15/10, í Ás-
garði kl. 11, vatnsleikf. í Sjálandi kl. 12.30/
14.30, brids kl. 13, Jónshús opið kl. 9.30-
16.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Leir/mósaík kl. 9. Botsía í
íþróttah. kl. 10. Kaffispjall í krók kl. 10.30.
Handav. kl. 13. Fyrsti tími í tálgun kl. 13.
Dagskrá í Seli hefst síðar í mán.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl.
9, handav./tréútskurður. Vatnsleikfimi kl.
9.50. Þorvaldur með harmonikku kl. 10.
Spilasalur frá hád. Kynning kl. 15 á Fagra-
bergi. Á morgun kl. 10.30 helgistund.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Setrið kl. 10. Heitt á könnunni, kl. 11
bænaguðsþjón. í kirkju, súpa/brauð kl.
12, brids kl. 13.
Hraunsel | Pútt kl. 10, línudans kl. 11,
handav. kl. 13, bingó kl. 13, bókmkl. verð-
ur 2. og 4. miðvikudag í mánuði, hefst 14.
sept. kl. 10.30.
Hvassaleiti 56-58 | Opnað kl. 8. Vinnu-
stofa hjá Sigrúnu kl. 9. Samverust. kl.
10.30, lestur á nýrri bók hefst.
Hæðargarður 31 | Hringborðið kl. 8.50.
Stefánsganga kl. 9. Gáfum.kaffi kl. 15.
Leirmótun/framsögn hefst nk. mið.
Handav. kl. 9. Prjónahorn kl. 13 nk. mán.
Bókmh. nk. þri. Uppl. 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í
Kópavogsskóla byrja kl. 14.40, framh. kl.
15.30.
Korpúlfar Grafarvogi | Listasmiðja kl.
13.30 á morgun.
Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9. Bankinn
kemur kl. 9.30-10. Félagsvist kl. 14.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja. Bók-
band/handav. kl. 9, Bónus kl. 12.20, fram-
haldss. kl. 12.30, dans kl. 14, Vitatorgs-
bandið.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Ferð um Suð-
urland 15. sept. kl. 13, fararstjóri. Safnið
Tré og list skoðað, kaffihlaðborð í Hafinu
bláa, uppl./skrán. í s. 411 9450.
Af og til fletti ég SkrudduRagnars Ásgeirssonar, enda
gætir þar misjafnra grasa. Þar er
þessi vísa eftir Pál Jónsson skálda,
hringhend stikluvik:
Auðnu slyngur einn þá hlær
annar grætur sáran,
þriðji hringa fold sér fær,
fjórða stinga dauðans klær
Hér er gáta eftir Kristleif Þor-
steinsson á Stóra-Kroppi:
Einfætling ég úti sá,
ei til ferða laginn.
Báðum öxlum ber hann á
bull og ragn á daginn.
Jósep Skaftason læknir kallaði
Benedikt Einarsson í Hnausakoti í
Miðfirði (1796-1859)
„hinn fræga ormalækni“ og am-
aðist við honum en Kristleifur á
Kroppi segir að margir hafi sótt á
fund Benedikts og flestir fengið
bót meina sinna. Benedikt fékkst
ekki aðeins við meðalalækningar
heldur líka skurðlækningar, skar
t.d. mein úr brjóstum kvenna,
stundum með góðum árangri.
Mann kól á fótum og leitaði til
Benedikts:
Hann á steini hnífinn dró,
hvergi linur var hann.
Tána eina af mér hjó
allar hinar skar hann.
Sagt er að Benedikt hafi verið
þunglyndur og til þess bendir þessi
staka:
Lifði ég við gleði í gær,
gætt skal þó að hinu:
Dag fyrir liðinn dróst ég nær
dauðans takmarkinu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Tána eina af mér hjó