Morgunblaðið - 21.09.2011, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.09.2011, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2011 era marglyttur fiskveiðar svarthol reiningar knadeild nutúlkun sráðgjöf avísindi arfélag ruleiki hjarta rnám túlkunar leiðbeiningar klefi lífmassi svifryk lægðarmiðja fartölva þýska ljóstillífun tannhjól járn fræðimaður stærðfræði fóður enska gull rökgreining rafeindalitógrafía metan markaðsrannsóknir Atomes Crochus snjókoma termóplast upplýsingaveitur Vísindavefurinn markaðssvið viðskipta- og raunvísindasvið sólskin félagsvísindasvið undur alheimsins lagadeild fiskar og ferðir þeirra í sjó og ferskvatni lokaverkefni salt viðskiptadeild tölvunarfræðideild bakteríur og Vísindasmiðja tækni- og verkfræðideild víðförlir hvalir - fylgst með ferðum hvala með gervitunglasendum sálfræði vor rannsóknastöð Austurlandsakademían franska Orku- og tækniskóli þjóðardýrðlingar djúpfar mengun öld hvalir mamma lás vifta vísindamaður öreind ráðherra veraldarvefur Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fjölskylda stærðfræðiþrautir skipulag rusl jafnvægi rannsóknastofa samstarf mengunarmælir gas lektor varmageislun málvísindi varalestur teygni já örverur veðurfræði bókmenntaverk tilraunaglas orð starfsfólk mynstur gervifótur Vitvélastofnun Íslands kraftur ljósleiðari iðnfræðsla hveitikorn frumgreinar skýjaþykkni Íslenskar orkurannsóknir sjónvarp líffræði sameind áhersla loft gps sólskin gæðastýring Hafrannsóknastofnun þjóðminjar þrífótur alþjóðlegur vetur Nýsköpunarmiðstöð Íslands nanó forseti blóðþrýstingur hamingja repjuolía lengdarbaugur vísindasmiðja kokhlust ár sköpun hjartagátt lausnir ljós augnlinsa K Roche Nim hljóðmynd tj ð þráðlaust gunarbátur t ljósap a Á Vísindavöku gefst kostur á að hitta vísindamenn úr hinum ýmsu fræðigreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra! H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Þeim lands- mönnum sem sáu heilsíðuauglýsingu Landssambands lög- reglumanna (LL) í Morgunblaðinu laug- ardaginn 17. sept- ember sl. hefur ef- laust verið brugðið enda gat þar að líta sáran og blóðugan lögreglumann. Stað- reynd málsins er hinsvegar sú að þetta er sú staða sem lögreglumenn finna sig alloft í, þ.e. að koma heim til sín, í lok vinnudags, sárir bæði á lík- ama og sál. Sem betur fer er staðan sú, í okkar samfélagi, að fæstir Ís- lendingar upplifa nokkurn tíma þær aðstæður sem lögreglumenn finna sig í er þeir gegna störfum sínum. Ég ætla að láta hugann reika örfáa mánuði aftur í tímann. Mánuði sem allir Íslendingar muna væntanlega eftir eins og þeir hafi gerst í gær. Ég var kominn heim, í lok vinnudags, á gamlársdag árið 2008 og var farinn að huga að matseld fyrir fjölskyld- una fyrir kvöldið. Kvöld sem ég ætl- aði að eyða með konu, börnum og öðrum nánum fjölskyldumeðlimum. Þar sem ég stend við súpupottinn að leggja lokahönd á súpuna á undan aðalréttinum hringir hjá mér síminn. Á hinum endanum var minn næsti yf- irmaður sem kallaði mig til vinnu fyr- irvaralaust vegna átaka sem brotist höfðu út við Hótel Borg þar sem ver- ið var að sýna frá Kryddsíld Stöðvar 2. Ég mátti gjöra svo vel að varpa frá mér skyldum mínum og loforðum um náðugt eftirmiðdegi og kvöld með fjölskyldunni til að svara neyðarkalli undirmannaðs lögregluliðs sem var að störfum á þessum tíma. Alls ekki eitthvað sem ég taldi eftir mér, síður en svo, en lýsandi fyrir margar uppá- komur í lífi og starfi lögreglumanns. Nokkrum vikum síðar fann ég sjálfan mig standandi framan við Al- þingi Íslendinga þar sem skæðadrífu af grjóti, eggjum, skyri, málningu, saur og þvagi svo eitthvað sé nefnt rigndi yfir mig og vinnufélaga mína, sem þarna voru staddir „í vinnunni“ við að verja starfsfrið og helgi Al- þingis. Ég man sérlega vel eftir einu atviki eitt þessara kvölda, þar sem ég ásamt hópi lögreglumanna var send- ur til að ráða niðurlögum elds sem kveiktur hafði verið á svipuðum stað og jólatréð, sem íbúar Óslóborgar í Noregi árlega gefa Reykvíkingum hafði áður staðið, en búið var að kveikja í því, svo sem frægt er orðið. Við gengum af stað í átt að eldinum og ruddum okkur svo leið í gegnum hóp gargandi og gólandi fólks sem safnast hafði í kringum eldinn. Er við vorum að ráða niðurlögum eldsins og búa okkur undir það að fara til baka kemur að mér karlmaður, líklega á milli fimmtugs og sextugs, og spark- ar þessi annars ágæti landi minn af verulegu afli í neðri hluta baks míns, þannig að verulega tók í. Svo öflugt var þetta spark þessa samlanda míns að ég var lengi á eftir að jafna mig af því! Ég hef ekki hugmynd um hver þessi karlmaður er og algerlega var útilokað, undir þessum kring- umstæðum, að reyna að fara að standa í handtöku á honum, vegna þess ástands sem þarna var. Ég vona hins vegar heitt og innilega, hans vegna, að hann hafi feng- ið verðskuldaða útrás fyrir reiði sína vegna hrunsins með því að ganga í skrokk á mér. Mér hinsvegar leið ekk- ert betur með mínar skuldir á bakinu til við- bótar við þetta kröftuga spark þessa samlanda míns! Ég gæti fyllt nokkra Mogga með sögum sem þessum úr mínu starfi. Sönnum sögum þar sem m.a. koma við sögu kjaftshögg, átök við útúrdópaða einstaklinga, ógnanir með eggvopnum, skotvopnum og ótal margt fleira! Myndin sem fylgdi aug- lýsingu LL í áðurnefndu laugardags- blaði Moggans segir hinsvegar allt sem segja þarf en textinn sem birtist með henni er hinsvegar til frekari út- skýringa. Lögreglumenn eru fyrir löngu orðnir hundleiðir á innantómum lofs- yrðum stjórnvalda um ágæti okkar á ögurstundu. Við vitum hvað við get- um. Við vitum að við erum hluti af mjög góðri heild og góðu lögregluliði. Við vitum að Ísland getur verið stolt af sinni lögreglu. Við vitum að það er stórhættulegt að fjársvelta almenna löggæslu í landinu. Við vitum að lög- reglan er undirmönnuð. Við vitum að lögreglan er í fjársvelti og hefur ver- ið um áraraðir. Við vitum að fjöldi lögreglumanna í landinu er kominn undir öryggismörk. Við vitum líka að þeir sem skrifa í fjölmiðla, kortéri fyrir kosningar, um nauðsyn þess að efla löggæslu hafa sjaldnast nokkurt vit á því sem þeir eru að skrifa um. Við vitum líka að greinar með yfirskrift á borð við „Það er stórhættulegt að svelta al- menna löggæslu í landinu“ eru ekk- ert annað yfirskriftirnar. Við höfum lesið aragrúa slíkra greina stjórn- málamanna úr öllum flokkum sem, þegar til kastanna kemur, gera ekk- ert annað en að skrifa innihaldslitla texta með fullt af orðum sem segja ekki nokkurn skapaðan hlut. Þegar þessir sömu stjórnmálamenn komast á valdastóla þá er alltaf eins og eitt- hvað allt annað en öryggi lands- manna og góð og öflug löggæsla skipti meira máli. Þannig er þetta bara, því miður og þannig hefur þetta bara, því miður, alltaf verið. Um þetta er m.a. hægt að lesa í bók sem gefin var út árið 1938 í Reykja- vík og reyndar allar götur síðan í ara- grúa skýrslna og greinargerða sem unnar hafa verið um löggæslumál þjóðarinnar. Um þetta bera einnig glöggt vitni launakjör lögreglu- manna um áratugaskeið. Froðu- snakk!! Súpugerð Eftir Snorra Magnússon » Lögreglumenn eru fyrir löngu orðnir hundleiðir á innantómum lofsyrðum stjórnvalda um ágæti okkar á ögurstundu. Snorri Magnússon Höfundur er formaður Landssambands lögreglumanna. Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.