Morgunblaðið - 21.09.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.09.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2011 Nú hefur Alþjóðagjaldeyrissjóð-urinn, sem forystumenn rík- isstjórnarinnar töldu fyrir nokkr- um vikum að hefði „útskrifað Ísland með láði“ úr prógrammi sínu, lækkað hagvaxtarspána fyrir landið.    Þetta hlýtur aðkalla á að Jó- hanna Sigurð- ardóttir og Stein- grímur J. Sigfússon boði til annars blaðamannafundar þar sem upplýst verði að fyrri fund- ur þeirra hafi verið grín. Bara lauf- létt gamanleikrit í sumarlok.    Jóhanna verður líka að útskýraað skýrslan um efnahagsmálin sem hún flutti þinginu í byrjun september hafi verið lokaþáttur leikritsins og beri ekki að taka al- varlega.    Hún þarf að útskýra fyrir fólkiað hún hafi ekki meint þau orð sín að ýmislegt bendi til að hag- vöxturinn hafi verið vanmetinn. Annars gætu einhverjir haldið að þau hefðu ekki verið sögð í gríni heldur alvöru.    Forsætisráðherra verður líka aðhalda fund til að benda lands- mönnum á að fullyrðingar hennar um að fyrirliggjandi verkefni auki „svo sannarlega efnahagsumsvif og hagvöxt næsta árs“ hafi verið liður í samkeppni hennar við borgar- stjórann í Reykjavík um bestu póli- tísku kómedíuna.    Að öðrum kosti gætu landsmenntrúað því að hún trúi því að ríkisstjórnin hafi haldið vel á efna- hagsmálunum og að hún hafi raun- verulega útskrifast með láði.    Og þá gæti hún lent í því að af-skrifast með háði. Jóhanna Sigurðardóttir Afskrifuð með háði STAKSTEINAR Veður víða um heim 20.9., kl. 18.00 Reykjavík 9 skýjað Bolungarvík 8 skýjað Akureyri 10 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 8 rigning Vestmannaeyjar 8 skýjað Nuuk 3 heiðskírt Þórshöfn 11 léttskýjað Ósló 13 skýjað Kaupmannahöfn 15 skýjað Stokkhólmur 15 skýjað Helsinki 15 léttskýjað Lúxemborg 16 skýjað Brussel 17 skýjað Dublin 12 skýjað Glasgow 13 léttskýjað London 17 skýjað París 18 skýjað Amsterdam 17 skýjað Hamborg 17 léttskýjað Berlín 17 heiðskírt Vín 12 alskýjað Moskva 17 heiðskírt Algarve 27 heiðskírt Madríd 28 heiðskírt Barcelona 23 léttskýjað Mallorca 26 léttskýjað Róm 22 léttskýjað Aþena 23 skúrir Winnipeg 12 skúrir Montreal 17 alskýjað New York 17 skúrir Chicago 18 skýjað Orlando 30 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 21. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:08 19:35 ÍSAFJÖRÐUR 7:12 19:41 SIGLUFJÖRÐUR 6:54 19:24 DJÚPIVOGUR 6:37 19:05 Ágúst Ármann Þor- láksson tónlistarmaður lést á heimili sínu að í Neskaupstað 19. sept- ember sl. 61 árs að aldri. Ágúst fæddist á Skorrastað í Norðfirði 23. febrúar 1950. Hann var sonur hjónanna Þorláks Friðrikssonar og Jóhönnu Ármann. Til sjö ára aldurs ólst Ágúst upp á Eskifirði en fluttist þá á Skorra- stað ásamt foreldrum sínum. Haustið 1968 settist hann síðan að í Neskaupstað. Ágúst lauk tónmenntakennara- prófi frá Tónlistarskólanum í Reykja- vík 1973 og kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar árið 2004. Hann lagði stund á framhaldsnám að prófi loknu auk þess að sækja endurmenntun við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tón- skóla þjóðkirkjunnar 1995-1996. Kennsluferil sinn hóf Ágúst á Akranesi og kenndi þar við Tónlistar- skólann og Brekkuskóla 1973-1974. Hann starfaði sem kennari við Tón- skóla Neskaupstaðar 1974-1982 að undanskildu skólaárinu 1977-1978 en þá sinnti hann kennslu við Tónlistar- skóla Njarðvíkur ásamt því að gegna starfi organista við Njarðvíkurkirkju. Ágúst var síðan skólastjóri Tónskóla Neskaupstaðar 1982-2010. Organisti Norðfjarðarkirkju og Mjóafjarðar- kirkju var hann á árunum 1974-1977, 1980-1985 og frá 1996 til dauðadags. Organistastarfi við Grafarvogskirkju gegndi hann 1995-1996. Ágúst var forstöðumaður Kirkju- og menning- armiðstöðvar Fjarðabyggðar á Eski- firði 2010-2011. Í haust hóf hann að kenna á ný við Tónskóla Neskaupstaðar. Ágúst var áratugum saman helsti forystu- maður austfirsks tón- listarlífs. Fyrir utan að stjórna kirkjukórum sinnti hann margvísleg- um störfum fyrir Kór Fjarðabyggðar og átti mikinn þátt í að byggja upp Snælandskórinn, kór Kirkjukórasam- bands Austurlands, sem stjórnarmaður og for- maður í Kirkjukórasam- bandinu. Báðum þessum kórum stjórnaði Ágúst við ýmis tæki- færi auk þess að stjórna fjölda ann- arra kóra. Ágúst lék í fjölda dans- hljómsveita en hann hóf að leika fyrir dansi árið 1964. Þá var hann einn af stofnendum Blús-, rokk- og djass- klúbbsins á Nesi (Brján) sem starfað hefur í meira en tvo áratugi. Ágúst hlaut menningarverðlaun Sambands sveitarfélaga á Austurlandi árið 2007. Fyrir utan málefni tengd tónlistinni tók Ágúst virkan þátt í félagsstörfum. Hann starfaði lengi innan Íþrótta- félagsins Þróttar og var formaður þess um eins árs skeið. Hann sat í stjórn Starfsmannafélags Neskaup- staðar og gegndi þar einnig for- mennsku um eins árs skeið. Í stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar sat Ágúst 1998-2010 og í félagsmálaráði Nes- kaupstaðar í átta ár. Hann var félagi í Lionsklúbbi Norðfjarðar og starfaði innan Frímúrarareglunnar á Austur- landi. Eftirlifandi eiginkona Ágústs er Sigrún Halldórsdóttir. Synir þeirra eru Halldór Friðrik, Bjarni Freyr og Þorlákur Ægir. Barnabörnin eru þrjú. Andlát Ágúst Ármann Þorláksson Á síðasta fundi umhverfis- og sam- gönguráðs Reykjavíkur var lögð fram „ný skýrsla Ólafs K. Nielsen og Jóhanns Óla Hilmarssonar“ eins og segir í fundargerð. Skýrslan fjallar um fuglalíf Tjarnarinnar árið 2010 og var gerð í desember í fyrra. Fulltrúar sjálfstæðismanna lögðu fram eftirfarandi bókun á fundin- um: „Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgönguráði telja ámælisvert hversu miklar tafir urðu á kynningu skýrslu um alvar- legt ástand fuglalífs á Tjörninni. Skýrslan var tilbúin fyrir 9 mán- uðum, en var ekki lögð fram í ráðinu fyrr en nú um mánaðamótin ágúst/september. Hefði ráðið viljað bregðast við þeim ábendingum sem fram koma í skýrslunni fyrir sum- arið 2011, var ráðinu gert það ómögulegt vegna þessa. Það er mikilvægt að ráðið taki tillit til þeirra ágætu ábendinga sem fram koma í skýrslunni svo fuglalíf á Tjörninni geti blómstrað á ný. Í þeirri vinnu verður að hugsa til- lögur að lausnum heildstætt með til dæmis tilliti til friðlands í Vatns- mýri til að allar aðgerðir til að bjarga fuglalífinu séu nægilega vel samræmdar til árangurs.“ Tafir á kynningu skýrslu ámælisverðar Stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar tekur undir áskorun Kvenfélaga- sambands Ísland til Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, um að heimila sölu á heimabakstri í fjáröflunarskyni. „Frá stofnun Slysavarnafélags Íslands árið 1928 hafa slysavarnadeildir félagsins selt heimabakað góðgæti. Með slíkri sölu hafa þær fjármagnað öflugar slysavarnir og greitt fyrir björgunartæki og búnað björg- unarsveita, landsmönnum öllum til heilla. Ljóst er að heimabaksturinn er meðal mikilvægustu fjáröflunarleiða sem slysavarnadeildir hafa yfir að ráða í dag,“ segir m.a. í ályktun Landsbjargar. Heimabakað góðgæti verði leyft Aðalfundur SF verður haldinn á Grand Hótel v/Sigtún Reykjavík föstudaginn 23. september 2011 kl. 11:00 Skýrsla stjórnar Arnar Sigurmundsson formaður SF Ársreikningur SF 2010 Kosning í stjórn og kjör endurskoðanda Ræða Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Eru möguleikar að ná sátt um sjávarútveginn? Jón Eðvald Friðriksson framkvæmdastjóri Fisk Seafood hf Góðir - Betri - Bestir Framþróun í íslenskum sjávarútvegi Sveinn Margeirsson forstjóri Matis ohf Stjórn SF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.