Morgunblaðið - 21.09.2011, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.09.2011, Blaðsíða 9
BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is Allir þrír sem ákærðir eru í Black Pi- stons-málinu svonefnda neituðu sök, beðnir um að taka afstöðu til fram- haldsákæru í málinu fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur í gærmorgun. Málatilbúnaður ákæruvaldsins hefur tekið nokkrum breytingum frá því sem var „vegna upplýsinga sem ekki voru fyrirliggjandi við útgáfu ákæru ríkissaksóknara frá 3. ágúst 2011“, líkt og segir í framhaldsákærunni. Fyrir þann sem sat aðalmeðferð málsins í lok síðasta mánaðar kemur framhaldsákæran nokkuð spánskt fyrir sjónir. Með því að ákæra þriðja manninn virðist nefnilega að fyllt hafi verið upp í þær gloppur sem í fram- burði fórnarlambsins voru. Birtist í bílnum og ók Sem dæmi má nefna að við aðal- meðferðina var fórnarlambið spurt að því hvers vegna það hefði ekki flúið frá kvölurum sínum þegar því var gert að bíða eitt í bifreið við Eggertsgötu í klukkutíma eða einn og hálfan. Svar- aði maðurinn því þá til að fyrr um kvöldið hefði honum verið hótað lík- amsmeiðingum og að fjölskylda hans yrði fyrir skaða reyndi hann flótta. „Það er ekki hægt að lýsa forgangs- röðuninni þegar þú ert í svona að- stöðu,“ sagði fórnarlambið þá. Í framhaldsákærunni segir hins vegar að þriðji maðurinn, Brynjar Logi Barkarson, hafi verið í bílnum umrætt sinn og ekki aðeins það, held- ur ekið með fórnarlambið á brott með- an þeir biðu eftir sakborningi sem sinnti erindi í íbúð við Eggertsgötu. Fyrir utan það að ekki var minnst á veru Brynjars Loga í bílnum við aðal- meðferðina virðist sem ákæruvaldinu hafi láðst að ákæra hann fyrir akstur án ökuréttinda. Á umræddum tíma hafði Brynjar nefnilega ekki náð 17 ára aldri og hafði þar af leiðandi ekki ökuréttindi. Brynjar varð 17 ára um miðjan þennan mánuð. Jafnframt var fórnarlambið spurt nokkuð nákvæmlega út í veru sína í iðnaðarhúsnæði þá um nóttina en samkvæmt upphaflegri ákæru var maðurinn læstur þar inni í glugga- lausu rými yfir nóttina. Við aðalmeð- ferðina kom í ljós að ekki var hægt að læsa manninn inni í iðnaðarhúsnæð- inu. Skýringin á því hvers vegna hann flúði ekki um nóttina kemur einnig fram í framhaldsákærunni. Sam- kvæmt henni var Brynjar Logi nefni- lega í iðnaðarhúsnæðinu alla nóttina og varnaði honum útgöngu með hót- unum um líkamsmeiðingar. Ekki var þó minnst á veru Brynjars í húsnæð- inu áður, við aðalmeðferðina. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins lagði fórnarlambið, 22 ára karlmaður, fram kæru á hendur Brynjari Loga nokkrum dögum eftir aðalmeðferðina, og af ákærunni má ráða að þáttur Brynjars hafi verið verulegur. Fórnarlambið minntist þó ekki einu orði á Brynjar í framburði sínum, jafnvel þegar hann var spurð- ur nákvæmlega út í málsatriði. Brynjar Logi var handtekinn í byrj- un mánaðar og yfirheyrður um málið. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins viðurkenndi hann þátt sinn í mál- inu að mestu, eins og getið er í fram- haldsákærunni. Sömu heimildir herma að það hafi hann gert af ótta við að verða hnepptur í gæsluvarðhald. Það hafi komið skýrt fram af svörum hans, hann játti því sem lögregla spurði um og spurði í kjölfarið hvort hann yrði nokkuð úrskurðaður í varð- hald ef hann svaraði á þann veg. Átti að bera vitni í málinu Þegar í dómsal kom í gærmorgun og taka átti afstöðu til ákæruatrið- anna neitaði Brynjar Logi sök að öllu leyti, þrátt fyrir svör sín hjá lögreglu. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa haft í fórum sínum 8,9 grömm af am- fetamíni þegar hann var handtekinn í byrjun mánaðar, en neitaði einnig sök í þeim ákærulið og sagði að um íblönd- unarefni hefði verið að ræða, fjögur grömm en ekki tæp níu. Í málinu liggur ljóst fyrir að Brynj- ar Logi var á einhverjum tíma á vett- vangi í Hafnarfirði, þar sem líkams- árásirnar fóru meðal annars fram, í maí sl. Til stóð að boða hann sem vitni fyrir dómara til að skýra frá því sem hann þá sá. Það hefur hins vegar breyst og verður hann spurður út í sakargiftir þegar aðalmeðferð heldur áfram. Fyllt í gloppur fórnarlambs Fyrir dóm Davíð Freyr Rúnarsson og Júlíus Ríkharð Júliusson mæta fyrir dómara þegar aðalmeðferð fór fram í málinu í lok síðasta mánaðar.  Atburðarrásin í Black Pistons-málinu breyttist töluvert með framhaldsákæru  Þriðji sakborningurinn neitaði sök fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2011 Mennirnir tveir, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, 33 ára, og Davíð Freyr Rúnarsson, 28 ára, voru upphaflega ákærðir fyrir að hafa haldið ungum karlmanni, fæddum 1989, frá kvöldi þriðju- dags 11. maí sl. fram að hádegi daginn eftir. Á þeim tíma eiga þeir báðir að hafa gengið í skrokk á unga manninum, notað til þess vopn á borð við þykkar rafmagnssnúrur, belti, slíðrað skrautsverð og hníf, auk þess að kýla og sparka. Við aðalmeðferð játaði Davíð Freyr á sig líkamsárás en líkt og Ríkharð neitaði hann að hafa svipt manninn frelsi. Í framhaldsákæru eru allir mennirnir ákærðir fyrir frels- issviptingu og tilraun til ráns en Brynjar Logi Barkarson ekki fyr- ir líkamsárás. Það sem virtist vera til- tölulega einfalt mál í byrjun hef- ur breyst töluvert. Til stendur að klára aðalmeðferð 12. októ- ber nk.og kveða upp dóm fáum vikum síðar. Einn játaði líkamsárás BLACK PISTONS-MÁLIÐ Hafrannsóknaskipið Árni Frið- riksson byrjar í næstu viku loðnu- mælingar úti fyrir Vestfjörðum og Norðurlandi. Þessar rannsóknir eru fyrr á ferðinni en oftast áður og er talið að hafís muni síður koma í veg fyrir mælingar í byrjun október heldur en þegar kemur fram í nóv- embermánuð. Heimilt er að hefja loðnuveiðar 1. október og hefur sjávarútvegs- ráðherra gefið út rúmlega 180 þús- und tonna upphafskvóta. Líklegt má telja að einhver skip haldi til loðnu- veiða fljótlega eftir mánaðamót. Mæling á íslensku sumargots- síldinni í næsta mánuði Árni Friðriksson byrjaði árlegt haustrall Hafrannsóknastofnunar um helgina og Bjarni Sæmundsson heldur frá Reykjavík í dag. Þá er í næsta mánuði fyrirhuguð mæling á íslensku sumargotssíld- inni. Sá stofn hefur verulega látið á sjá eftir að alvarlegrar sýkingar varð vart í honum fyrir tveimur ár- um. aij@mbl.is Loðnumæl- ingar fyrr á ferðinni en áður Veiðar Loðnuskip út af Stafnesi. Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti í gær að minnast þess á næsta ári að þá verða liðin 40 ár frá heims- meistaraeinvíginu í skák milli þeirra Bobbys Fischers og Boris Spasskys 1. júlí til 3. september 1972. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi lagði fram tillögu þessa efnis og var hún samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Samkvæmt tillögunni verður efnt til sérstakrar afmælisdagskrár og sýningarhalds. Leitað verður sam- starfs við Skáksamband Íslands, Skákakademíu Reykjavíkur og tafl- félögin í borginni. Borgarráð skipar starfshóp til að annast undirbúning málsins og koma með tillögu að dag- skrá. Í greinargerð með tillögunni segir m.a.: „Umrætt einvígi er án efa fræg- asta skákkeppni sögunnar en það vakti á sínum tíma mikla athygli langt út fyrir raðir skákáhugamanna vegna aðstæðna í heimsmálum. Kalda stríðið var í hámarki og fjöll- uðu margir fjölmiðlar um einvígið eins og uppgjör milli austurs og vest- urs þar sem fremstu skákmeistarar Sovétríkjanna og Bandaríkjanna mættust við taflborðið. Samskipti keppendanna einkenndust af mikilli spennu framan af mótinu og urðu ýmsir atburðir í tengslum við það ekki síður fréttaefni en einstök skák- úrslit. Reykjavík var í brennidepli heimspressunnar í rúma tvo mánuði vegna einvígisins og hafði það mikla og jákvæða landkynningu í för með sér fyrir Ísland.“ Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Einvígið Boris Spassky situr við skákborðið en Bobby Fischer stormar um sviðið í Laugardalshöllinni í einvígi aldarinnar sem fram fór árið 1972. Einvígis aldarinnar verður minnst 2012 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Ný sending Hönnunarlínan Priza INCQC 2012 G05 Mikið úrval af fallegum sængurfatnaði Skólavörðustíg 21a, 101 Rvk HAUSTMARKAÐUR LAGERSALA Laugavegi 63 • S: 551 4422 Á LAXDAL VETRAFATNAÐI Í KJÖRGARÐI 2. HÆÐ RÝMUM FYRIR NÝJUM VETRAR FATNAÐI 30%-50%-70% AFSLÆTTIR VETRAKÁPUR - VETRARÚLPUR - ULLARJAKKAR - PEYSUR - SKINN O. M. FL OPIÐ 13-18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.