Morgunblaðið - 21.09.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.09.2011, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2011 Ertu námsmaður? Viltu leigja stóra íbúð fyrir lítinn pening? Á Ásbrú í Reykjanesbæ eru rúmgóðar og vel búnar námsmannaíbúðir sem ætlaðar eru einstaklingum, pörum eða fjölskyldufólki sem stundar nám hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi, hjá Keili eða í öðru háskólanámi á höfuðborgarsvæðinu. Íbúðirnar eru allar rúmgóðar og aðstaða eins og best verður á kosið. Svæðið er mjög fjölskylduvænt og öll helsta þjónusta í seilingarfjarlægð, s.s. líkamsræktarstöð, veitingastaður, grunnskóli og leikskólar. Gjaldfrjálsar rútuferðir eru milli Ásbrúar og Reykjavíkur. Nánari upplýsingar er að finna á vefslóðinni: www.keilir.net/keilir/nemendaibudir Einnig má hafa samband við húsnæðissvið Keilis í síma 578 4000. Dæmi um íbúðir og leiguverð 3 herbergja íbúðir 106 - 110 m2 69.081 kr. 4 herbergja íbúðir 135 - 145 m2 85.979 kr. 5 herbergja íbúðir 164 - 182 m2 104.659 kr. 6 herbergja íbúðir 203 - 210 m2 123.065 kr. Innifalið er sjónvarp og internet. Hrafn Eiríksson útskrifaðist með BSc- gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík í vor og hélt í kjölfarið bein- ustu leið til Oxford þar sem vann í tvo mánuði að rannsóknarverkefni í upplýs- ingalíffræði. „Upplýsingalíffræði sam- einar tölvunarfræði, stærðfræði og líf- fræði. Það voru tveir kennara minna í HR sem hjálpuðu mér að komast í þetta og þetta var frábær reynsla, svo ekki sé meira sagt,“ segir Hrafn en verður síðan dálítið dularfullur þegar hann á að svara því hvað hann sé að gera í dag. Hann ljóstrar þó upp að hann hafi, ásamt félaga sínum, fengið styrk hjá Ný- sköpunarsjóði til að vinna að verkefni sem þeir hafi gengið með í koll- inum í nokkra mánuði. Nú sé sá styrkur uppurinn og hann vinni að því hörðum hönd- um að sækja um fleiri til að geta haldið áfram. „Í stuttu máli varðar þetta hönnun á hugbúnaði fyrir snjallsíma,“ segir Hrafn. Hann hafi trú á því að styrkirnir muni skila sér og þá sé stefnan að vinna ótrauður áfram að verkefninu. Hann hefur ekki áhyggjur af því að verða atvinnulaus verði raunin önnur. „Nei, því fer fjarri. Ég veit að ég gæti hvenær sem er hætt við þetta verkefni og verið kominn með vinnu viku síðar. Og örugglega ágæta vinnu,“ segir Hrafn. Fólki með hans menntun hafi reynst tillölulega auðvelt að fá vinnu þrátt fyrir efnahagsástandið. Bóla sem á eftir að springa? „Það er eitt með þessi tölvufyrirtæki á Íslandi að þau eru öll að leita að góðu fólki. Ég þekki engan sem útskrifaðist með mér sem er ekki búinn að fá vinnu. Og margir fengu strax á fyrsta og öðru ári vinnu hjá stórfyrirtækjum eins og Skýrr, t.d. sumarvinnu. Þetta er merki- leg staða akkúrat núna. Síðan veit mað- ur ekkert hvort þetta er bóla sem á eftir að springa,“ segir Hrafn. Hann segist vita það fyrir víst að ein- hverjir velji að fara í nám í tölv- unarfræði vegna þess að tölv- unarfræðingum og fólki í tölvugeiranum hafi almennt gengið betur en mörgum að fá vinnu. „Og líka einfaldlega vegna þess að þetta er oft á tíðum vel borgað,“ segir hann. Hvort það séu réttu forsendurnar við val á námi sé síðan annað mál. Hefur engar áhyggjur af því að fá ekki vinnu Haustin eru annasamur tími í Háskólaprenti en þá eru allar vélar keyrðar á fullt við kennslubókagerð og prentun lokaritgerða. Eftir rólega sumarvertíð tvöfaldast álagið í upphafi annar, segir Björgvin Ragnarsson, framkvæmdastjóri prentsmiðjunnar. „Þetta getur verið mikið álag stundum. Í vor myndaðist til dæmis biðröð út á götu, þá voru um 20 manns inni að bíða og svo í kring- um 15 úti. Þetta eru stórir hópar sem eru að útskrifast úr fjölmennustu fögunum og það verður oft mikið líf og fjör hérna hjá okkur,“ segir Björgvin, sem lofar samdægurs af- greiðslu ritgerða sé þeim skilað á tíma. Hann segist ekki hafa tekið saman tölur um umsvif prentsmiðjunnar á markaði en giskar á að þar séu prentuð í kringum 70% lokaritgerða á há- skólastiginu. Prentsmiðjan hefur sérhæft sig í þjónustu við háskólastigið sem Björgvin segir nauðsyn- legt ætli menn að þjónusta það á annað borð. „Það er erfitt fyrir prentstofur að fylgjast með því hvaða kröfur er verið að gera innan há- skólanna. Reglurnar um frágang eru mjög mismunandi eftir deildum,“ segir hann. Pappírinn hafi áfram vinninginn Til þess að hægt sé að vinna hratt og vel og til að forða nemendum frá því að þurfa að end- urprenta ritgerðir vegna vitlauss frágangs fylgist Háskólaprent vel með hvaða kröfur eru gerðar á hverjum tíma. En er þetta ekki eitthvað sem nemendurnir eiga sjálfir að fylgjast með? „Nemarnir eru að hugsa um allt annað en fráganginn. Þú vilt ekkert fá að vita hvernig á að líma hana eða hefta, þú vilt bara fá ritgerð- ina þína!“ svara Björgvin og hlær. „Svo eru þau nú oft illa sofin á þessum tíma.“ Auk þess að hafa sérhæft sig í þjónustu við háskóla og framhaldsskóla, hefur Háskóla- prent einnig sérhæft sig í að prenta bækur í litlu upplagi og þangað koma m.a. upprenn- andi ljóðskáld sem vilja sjá verk sín á prenti. Þessi möguleiki hefur einnig verið mikið nýtt- ur innan Háskóla Íslands, svo dæmi sé tekið. „Þetta þýðir að kennari sem er með 30-40 manns í bekk getur samið eða tekið saman bók, við prentum hana og nemendurnir kaupa hana hjá okkur,“ segir Björgvin. Einnig hafi aukist mjög að nemendum sé gefinn kostur á því að nálgast ýmislegt námsefni á pdf-formi sem þeir geta svo valið hvort þeir lesa af tölvuskjánum eða láta prenta út. En þrátt fyrir öra þróun hvað þetta varðar telur Björgvin að pappírinn muni áfram hafa vinninginn. „Við höfum verið að undirbúa okk- ur fyrir rafbókavæðinguna en ég spái því nú samt að næstu 10-15 árin verði pappírinn áfram mikið notaður.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Annir Björgvin Ragnarsson í Háskólaprenti. Illa sofnir nemar bíða í röðum eftir ritgerðum  Tvöfalt álag í Háskólaprenti í upphafi annar Hrafn Eiríksson, BSc í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.