Morgunblaðið - 04.10.2011, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011
Ný samsteypustjórn vinstri- og miðflokka tók
formlega við völdunum í Danmörku í gær undir
forystu Helle Thorning-Schmidt, sem gegnir emb-
ætti forsætisráðherra fyrst kvenna í sögu lands-
ins. Alls eru níu konur í 23 ráðherraembættum í
nýju stjórninni og þær eru því 39% ráðherranna.
Áður höfðu leiðtogar tveggja stjórnarflokk-
anna, Jafnaðarmannaflokksins og Sósíalíska
þjóðarflokksins, sagt að stefnt yrði að því að konur
fengju helming ráðherrastólanna.
Sósíalíski þjóðarflokkurinn er með sex ráðherra
í stjórninni og þeirra á meðal eru þrjár konur. Þær
fara með heilbrigðismál, umhverfismál og
utanríkisviðskipti.
Jafnaðarmenn fengu ellefu ráðherraembætti og
konur gegna fimm þeirra. Auk forsætisráðu-
neytisins fara konurnar fyrir vinnumála-, félags-
mála-, menntamála- og matvælaráðuneytunum.
Miðflokkurinn Radikale Venstre fékk sex ráð-
herraembætti og leiðtogi hans, Margrethe Vesta-
ger, er eina konan í ráðherraliði flokksins. Hún fer
með efnahags- og innanríkismál í stjórninni.
Konurnar valdameiri
Tim Knudsen, prófessor í stjórnmálafræði við
Kaupmannahafnarháskóla, kveðst hafa búist við
því að konur fengju um helming ráðherraembætt-
anna. Danskir jafnaðarmenn hafi áður krafist þess
að konur yrðu minnst 40% fulltrúa í sveitarstjórn-
um í Danmörku og það hlutfall hafi ekki náðst í
nýju stjórninni.
Í ríkisstjórn borgaralegu flokkanna undir for-
ystu Lars Løkke Rasmussens gegndu konur
helmingi ráðherraembættanna.
Tim Knudsen bendir þó á að kvenráðherrarnir í
nýju ríkisstjórninni eru mun valdameiri en kon-
urnar í ríkisstjórn borgaralegu flokkanna. Konur
gegna nú t.a.m. tveimur valdamestu ráðherraemb-
ættunum. „Hvað völdin áhrærir hafa konurnar
eflst,“ hefur fréttavefur Berlingske eftir Knudsen.
Ráðherrasveitin endurspeglar hlutfall kvenna á
þinginu. Konur eru nú 39,7% fulltrúanna á danska
þinginu og fleiri en nokkru sinni fyrr. bogi@mbl.is
Konur tæp 40% ráðherranna
Dönsku vinstriflokkarnir höfðu stefnt að því að konur fengju helming ráðherraembættanna
Kvenráðherrarnir í ríkis-
stjórn Helle Thorning-
Schmidt eru mun valdameiri
en konurnar í ríkissjórn
borgaralegu flokkanna.
Nýbúi í ráðherrastól
» Á meðal ráðherra nýju ríkis-
stjórnarinnar er Manu Sareen,
sem fæddist á Indlandi. Hann
varð fyrsti innflytjandinn til að
gegna ráðherraembætti í Dan-
mörku.
» Sareen fer með jafnréttis-
og kirkjumál. Hann hefur m.a.
lofað að beita sér fyrir því að
samkynhneigð pör fái að gift-
ast í kirkjum landsins.
Skyttur í bæverskum búningum hleypa af
byssum upp í loftið á lokadegi bjórhátíðarinnar
Oktoberfest í München í gær. Milljónir manna
fóru til borgarinnar til að taka þátt í bjórhátíð-
inni sem var haldin í 178. skipti. Hátíðin var fyrst
haldin í tengslum við brúðkaup Lúðvíks krón-
prins og Teresu prinsessu 12. október 1810. Hún
hefur hafist í september frá árinu 1872 vegna
þess að veðrið er þá yfirleitt betra en í október.
Reuters
Byssuskyttur kveðja bjórhátíðina
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Kristin þjóðarbrot í Mið-Austurlönd-
um óttast að arabíska vorið verði til
þess að íslamistar komist til valda og
kúgi kristna minnihlutahópa í löndum
á borð við Sýrland. Þessi ótti hefur
orðið til þess að kristnir menn hafa
klofnað í afstöðunni til einræðis-
stjórnarinnar í Sýrlandi.
„Kristnir menn hafa miklar áhyggj-
ur af framíðinni vegna þess að hreyf-
ingar íslamista eru áhrifamiklar,“ hef-
ur fréttaveitan AFP eftir Abdallah
Abu Habib, varaformanni samtaka
maróníta, stærsta hóps kristinna
manna í Líbanon. „Við göngum núna í
gegnum breytingatímabil og kristnir
menn óttast að það geti markað enda-
lok minnihlutahópa í arabalöndum.“
Fall einræðisstjórna í Túnis,
Egyptalandi og Líbíu hefur orðið til
þess að hreyfingar íslamista hafa hasl-
að sér völl í stjórnmálunum ásamt ver-
aldlegum hreyfingum. Íslamistar taka
einnig þátt í uppreisnunum í Sýrlandi
og Jemen.
Áætlað er að um 87% íbúa Sýrlands
séu múslímar og um það bil tíu af
hundraði kristinnar trúar. Meðal
múslíma eru súnnítar fjölmennastir,
um 74% landsmanna, alavítar eru um
það bil 11% og sjítar um 5%. Bashar
al-Assad, forseti Sýrlands, og helstu
bandamenn hans eru úr röðum ala-
víta.
Sumir kristnu Sýrlendinganna hafa
tekið þátt í uppreisninni gegn einræð-
isstjórn Assads. Aðrir hafa hins vegar
stutt stjórnina af ótta við að fall henn-
ar verði til þess að súnnítar kúgi
kristna minnihlutann og hefni sín á
honum vegna meintrar þjónkunar
hans við stjórnina. Þeir sem stutt hafa
stjórn Assads óttast að uppreisnin
leiði til borgarastríðs milli súnníta,
alavíta, sjíta, drúsa og kristinna
manna.
Kristnu Sýrlendingarnir óttast að
þeirra bíði svipuð örlög og
kristna minnihlutans í
Írak eftir innrásina í
landið árið 2003. Áætlað
er fyrir innrásina hafi
kristnir íbúar Íraks
verið um það bil
800.000 til 1,2 milljónir en þeim hefur
nú fækkað í 400.000.
Kristnir Egyptar óttast einnig aukin
áhrif íslamista. Koptar hafa orðið fyrir
árásum múslíma í Egyptalandi.
Beiti sér fyrir lýðræði
Patríarki maróníta í Líbanon hvatti
nýlega Sýrlendinga til að gefa Assad
annað tækifæri til að standa við loforð
sín um lýðræðisumbætur, ella væri
hætta á borgarastríði „þar sem kristni
minnihlutinn yrði helsta fórnarlambið“.
Nokkrir stjórnmálaskýrendur telja
þó ekki mikla hættu á valdatöku og
harðstjórn íslamskra öfgamanna. Þeir
segja að almenningur í arabalöndunum
sætti sig ekki lengur við einræðis-
stjórnir, hvorki veraldlegar né trúar-
legar. Þótt íslamistar geti notið góðs af
arabíska vorinu og komist til áhrifa í
kosningum geti þeir ekki knúið fram
öfgastefnu sína og stofnað íslamskt
ríki.
AFP hefur eftir Zyad Maged, pró-
fessor í stjórnmálafræði í París, að þótt
ótti minnihlutahópanna sé skiljanlegur
réttlæti hann ekki stuðning við einræð-
isherra. Lausnin felist í raunverulegu
lýðræði þar sem réttindi minnihluta-
hópa séu virt.
Kristnir óttast kúgun
Kristin þjóðarbrot í Mið-Austurlöndum hafa áhyggjur af því að fall einræðis-
herra geti orðið til þess að íslamistar komist til valda og kúgi minnihlutahópa
Knut Storberget,
dómsmálaráð-
herra Noregs,
hefur viðurkennt
í viðtali við
norska dagblaðið
Aftenposten að
yfirvöldum hafi
orðið á mistök í
tengslum við
fjöldamorðin í
Útey og Ósló 22.
júlí. Hann viðurkennir einnig að
sem ráðherra beri hann ábyrgð á
því sem miður fór en segist þó ekki
telja ástæðu til þess að hann segi af
sér vegna málsins.
Norsk lögregluyfirvöld hafa ver-
ið gagnrýnd fyrir hversu langan
tíma það tók að senda lög-
reglumenn til Úteyjar. Síðustu
daga hafa norskir fjölmiðlar greint
frá vísbendingum um að hægt hefði
verið að bjarga 20 ungmennum í
Útey ef lögreglumenn hefðu komið
á staðinn fimmtán mínútum fyrr.
Alls biðu 69 manns bana í skotárás
fjöldamorðingjans í Útey.
Viðurkennir að
norskum yfirvöldum
hafi orðið á mistök
Knut
Storberget
Rockefeller-
háskóli segir að
Ralph Steinman,
sem tilkynnt var í
gær að fengi
Nóbelsverðlaunin
í læknisfræði í ár,
hefði dáið af völd-
um krabbameins
í brisi á föstudag-
inn var, 68 ára að
aldri.
Steinman, sem var kanadískur
frumulíffræðingur, fékk Nóbels-
verðlaunin ásamt tveimur öðrum
vísindamönnum fyrir rannsóknir á
ónæmiskerfi mannslíkamans.
Göran Hansson, sem situr í verð-
launanefndinni, segir að hún hafi
ekki vitað um andlát Steinmans þeg-
ar ákveðið var að veita honum verð-
launin.
Nóbelsverðlauna-
hafi látinn
Ralph
Steinman
Dómstóll á Ítalíu
sýknaði í gær-
kvöldi hina
bandarísku
Amöndu Knox af
ákæru um morð
á meðleigjanda
sínum, Meredith
Kercher. Hún
var látin laus
seint í gærkvöldi
eftir fjögurra ára
fangelsisvist. Fjöldi fólks safnaðist
fyrir utan dómshúsið og hrópaði
„morðingi“ og „skömm“.
Amanda Knox
fundin saklaus
Amanda
Knox
Helstu hreyfingar stjórnarand-
stöðunnar í Sýrlandi segjast
hafa tekið höndum saman og
myndað sýrlenskt þjóðarráð
sem eigi að koma á lýðræði í
landinu. Þetta virðist vera
stærsta skrefið til þessa í til-
raunum til að sameina stjórnar-
andstöðuna sem hefur verið
mjög sundruð. Þjóðarráðið
hvetur til friðsamlegrar baráttu
gegn einræðisstjórninni en
hermt er að nokkrir uppreisn-
arhópar hafi gripið til
vopna til að verjast
árásum öryggissveita.
Óttast er að stjórn
Assads notfæri sér
þetta til að herða
árásirnar og að borg-
arastríð blossi upp.
Telja hættu á
borgarastríði
ÞJÓÐARRÁÐ STOFNAÐ
Friðsamur mótmæl-
andi í Sýrlandi.