Morgunblaðið - 04.10.2011, Síða 21

Morgunblaðið - 04.10.2011, Síða 21
að gefa honum nammi. Ef ég á nammi. Axel Örn Baldursson. Elsku afi Haffi er dáinn. Okkur finnst skrýtið að fara á Garðatorg- ið og sjá ekki afa í stólnum sínum að lesa fréttablaðið. Besta minningin okkar um afa er þegar við vorum uppi í sum- arbústað að hjálpa honum að slá túnið og við fengum alltaf nammi í verðlaun. Afi var alltaf góður við okkur og hjálpaði okkur ef eitthvað var að. Við urðum voða leiðar þegar við fréttum að afi væri veikur og þeg- ar við sáum að honum leið illa á spítalanum. En nú líður honum mikið betur af því að hann er kominn til guðs. Takk elsku afi Haffi fyrir allar góðu stundirnar með þér. Guð geymi þig. Afastelpurnar þínar, Sólveig Ágústa og Kolbrún Björk. Elsku afi. Ég er búin að byrja nokkrum sinnum á kveðjubréfi til þín, en einhvern veginn verður það mér ofviða. Mig langar því að telja upp allt það sem ég mun allt- af muna og sakna: Kálbögglar í Látalæti og bjúgu á Garðatorginu. Svartir sokkar og stutt- ermaskyrta á sólarströnd. Örin sem gerðu þig að hetju. Óhvikul bílaráðin. Bunki af dagblöðum við sófann. Útvarpsfréttirnar. Hlýjan gagnvart okkur. Nýbakað brauð í morgunmat. Greinilegt stoltið á merkisdögum lífs okkar. Að vita að þú værir alltaf þarna, sterkur og traustur. Mér þykir það svo leitt að hafa ekki getað komið og kvatt þig í síðasta sinn. Ég sakna þín. Arna. Elsku afi, það er sárt að þurfa að kveðja þig en ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að eyða tíma með þér síðustu dagana. Ég á eftir að sakna þess að hitta þig á Garðatorginu og í Látalæti, sakna þess að hlusta á fréttirnar á hæsta hljóðstyrk, sakna þess að sjá nýjustu græjuna þína og sakna þess að spjalla um það hvernig ég og fólkið mitt höfum það. Þú gleymdir aldrei að spyrja um mömmu mína og biðja fyrir kveðju. Við fórum líka oftar en einu sinni í gegnum það af hvaða fólki hann Ragnar minn er kom- inn, nokkuð sem þú vissir upp á hár en þér þótti mikilvægt að ég vissi. Þú hafðir mikinn áhuga á fólki og þín leið til að sýna mér væntumþykju var að spyrja hvernig fólkið mitt hefði það og forvitnast um það hverra manna kærastinn minn væri. Þú varst líka duglegur að sýna væntum- þykju í verki og alltaf mættur til að hjálpa ef þörf krafði. Þá sér- staklega ef bíllinn bilaði því við- gerðirnar voru jú þín sérgrein. Eitt af því sem fylgir því að full- orðnast er að kynnast foreldrum, ömmum og öfum upp á nýtt, sjá þau í nýju ljósi og kynnast marg- brotnum persónuleika þeirra. Þegar ég óx úr grasi fórst þú frá því að vera afi brandarakarl sem átti alltaf sælgæti í bílskúrnum og afi sem sagðist vera með svo stór- an maga af því hann gengi með folald í maganum yfir í að vera afi sem var hörkutól, hrjúfur á yfir- borðinu en viðkvæmur inn við beinið, góðhjartaður, hjálpsamur og vinmargur. Ég mun búa að því að hafa þekkt þig elsku afi og vil ég þakka fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og okkur fjölskyld- una í Háberginu sem var nú ekki svo lítið í gegnum tíðina. Þú pass- aðir upp á okkur á þinn hátt. Meg- ir þú hvíla í friði og minning þín lifa í gegnum okkur sem eftir stöndum. Þóra Björk Ágústsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Hafstein Sölvason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011 ✝ Egill SteinarIngimundarson fæddist í Hafn- arfirði 24. nóv- ember 1960. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 27. sept 2011. Móðir hans var Steinunn Snjólfs- dóttir, fædd 1934. Faðir Ingimundur Jónsson vélstjóri, fæddur 1926. Þeim varð sjö barna auðið. Þau eru Jórunn f. 1958, Jón Ingi f. 1959, d. 1978, Valur f. 1962, Oddný f. 1964, Sig- urður f. 1966, Kristinn f. 1968. Egill var í sambúð með Ragn- heiði Evu Birgisdóttur. Þau eignuðust 2 börn: 1) Eygló Ýr Evudóttir f. 1984, maki Jón Ingi Gunnarsson og börn þeirra Ingi Rafn, Óskar Erik og Herdís Eva. 2) Egill Ingi f. 1996. En þau slitu samvistum. Þau bjuggu í Hafn- arfirði og Garðabæ. Egill bjó seinast í Keflavík. Egill starfaði mikið við beitningu, var á sjó, keyrði vörubíl og vann ým- is störf sem til féllu. Útför Egils fer fram í dag, þriðjudaginn 4. október 2011, í Keflavíkurkirkju og hefst at- höfnin kl. 13. Elsku Egill. Fyrir mörgum ár- um dreymdi mig draum. Jón Ingi bróðir okkar kom til mín og vildi sýna mér staðinn sinn í himna- ríki. Þar var stór salur og fallegur og þar inni var stór og fallegur flygill sem hann sýndi mér. Ég veit núna að hann var ætlaður þér. Það hafa orðið fagnaðar- fundir þegar þið hittust aftur. Og þú ert örugglega núna að prófa flygilinn og pabbi og mamma hjálpa þér að aðlagast nýja staðn- um. Elsku bróðir. Þú fékkst allar Guðsgjafirnar. Þú varst tónlist- armaður, íþróttamaður, heim- spekingur og húmoristi. Svo ertu líka fallegasta sál sem ég hef kynnst, það var alltaf svo gaman að tala við þig, þú varst skemmti- legur og ljúfur og svo varstu bara svo vel að þér í öllum sköpuðum hlutum. Margt kemur upp í hugann þegar ég hugsa um þig þegar þú varst lítill drengur skítugur upp fyrir haus alltaf að spila fótbolta. Þegar þú spilaðir á flautuna sem var næstum jafn stór og þú. Þeg- ar við sömdum lög uppi í herberg- inu mínu í Vinaminni og ætluðum að verða heimsfrægir tónlistar- menn. Þegar þú eldaðir handa mér pastað og við hlógum eins og tröll. Þegar þú fórst að vera með henni Evu. Hún var stóra ástin í lífi þínu og þú stóra ástin hennar. Þið eignuðust tvö yndisleg börn og þrjú barnabörn. Saga ykkar er falleg, sértök og erfið. En hún Eva okkar stóð alltaf með þér og gerir enn þótt þið séuð löngu hætt saman. Líf þitt var ekki alltaf auðvelt, krumla alkóhólismans hélt þér löngum stundum og undan henni komst þú ekki síðustu ár. Mér þykir svo vænt um hvað fólk talar fallega um þig og þótti vænt um þig, bæði börn og fullorðnir. Ég er svo glöð yfir símtalinu sem við áttum um daginn, þú ræddir um börnin þín og þú varst svo stoltur af þeim eins og alltaf. Þú varst nýbúinn að hitta barnabörnin þín og varst að springa úr monti út af þeim. Við ræddum líka um tónlist og himnaríki, þú sagðir að himna- ríki væri til, að þannig væri það bara og þar væri yndislegt að vera. Og ég veit, elsku bróðir, að þú ert kominn þangað núna. Faðmaðu drenginn minn frá mér og alla þá sem mér eru kærir. Ég veit að hvíti flygillinn mun hljóma hátt í himnaríki og þegar við hitt- umst aftur muntu spila fyrir mig á hann. Við börnin þín og þá sem elskuðu þig vil ég segja. Leyfum sorginni að hafa sinn gang. Lærum af lífi Egils Steinars. Yljum okkur við góðu minning- arnar. Styrkjum hvert annað og höfum kærleikann að leiðarljósi. Elsku bróðir. Njóttu þín á nýja staðnum, spilaðu og syngdu og ég veit að þú verður hamingjusamur og heimsfrægur í himnaríki. Með ást og virðingu Þín systir, Jórunn. Kæri vinur. Þú varst mesti húmoristinn. Þú varst besti beitningarmað- urinn. Þú varst skemmtilegastur. Þú varst stundum erfiður. Þú varst stundum blankur. Þú varst ljúfmenni. Þú varst vinur minn. Ég ætlaði að halda öll mín heit og ögrandi móti bylgjunum leit. en skipið mitt festina í stormi sleit og stefndi undan vindi og sjó. Sumir fara nauðugir, en sigla þó. Svo hraktist ég einn yfir úthöf blá og ókunnar strendur og lýði sá, þar brenndi ég sál mína eitri á, sem ógæfunornin mér bjó, Sumir eiga vita, en villast þó. Og nú er svo komið, að ég er ekki annað en skuggi af sjálfum mér, og bátinn minn viljandi ég brast við sker og mundi þig… mundi þig þó. Ég veit, að þú beiðst og bíður mín eins björt og sólin, eins ilmandi og vín. Ég heyri í bylgjunum hjartaslög þín og hlusta og stari út á sjó, en ég er bundinn í báða skó. (Davíð Stefánsson.) Nú skilja leiðir um sinn en þú varst alltaf vinur minn. Þinn mágur, Pétur H. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíldu í friði, elsku Egill, og takk fyrir allt. Þín mágkona, Jónína. Elsku frændi okkar. Við viljum þakka þér fyrir þann tíma sem við áttum saman og munum alltaf varðveita minningarnar sem við eigum um þig. Við vildum kveðja þig með ljóði: Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Jón Ingi, Berglind Nanna, Sandra Sif og Sunna Björk. Egill Steinar Ingimundarson HINSTA KVEÐJA Elsku bróðir. Þó að ævi þín sé öll er mikið til að minnast. Við studdum hvor annan (þú veist hvað ég meina.) Engum treysti ég betur en þér. Hvíl í friði, yndislegi bróðir. Kristinn. ✝ Bjarney ErlaSigurðardóttir (Baddý) fæddist í Reykjavík 30. sept- ember 1957. Hún andaðist á heimili sínu, Malarási 4, hinn 23. september 2011. Foreldrar Bjarn- eyjar Erlu voru hjónin Guðrún Jens- dóttir og Sigurður Páll Sigurjónsson. Þau skildu. Guðrún giftist seinni eiginmanni sínum, Halldóri Steingrímssyni, 1971. Sigurður kvæntist Huldu Breiðfjörð Lárusdóttur, en hún lést 1992. Sonur þeirra er Brynj- ar Ágúst Sigurðsson. Eiginkona Brynjars Ágústs er Vilma Guðmunds- dóttir og eiga þau tvö börn, Sigurð og Huldu Nínu. Núver- andi eiginkona Sig- urðar er Alda Viggósdóttir. Bjarney Erla var á dagheimilinu Lyngási í nokkur ár. Þá fór hún tvö sumur í sumardvöl að Sólheimum í Grímsnesi. Sól- heimar urðu síðan hennar heim- ili í liðlega þrjátíu ár. Á Sól- heimun stundaði Bjarney Erla skóla og síðar vann hún í kerta- gerð og við garðyrkjustörf. Fyrir rétt tíu árum fluttist Bjarney Erla til Reykjavíkur og dvaldi fyrst um sinn hjá móður sinni og fósturföður, þar til hún fluttist á sambýlið í Stuðlaseli 2. Þá stund- aði hún vinnu í Bjarkarási. Bjarney Erla stundaði nám í pí- anó- og orgelleik hjá Fjölmennt. Bjarney Erla naut þess að ferðast og fór með móður sinni og fóst- urföður um hálendi Íslands auk annarra landshluta. Ferðir til Evrópu og þá að aka um fögur landsvæði voru hennar mesta yndi og þá helst til Þýskalands, Austurríkis, Sviss og Ítalíu. Auk þess hafði Baddý komið til flestra landa Evrópu. Einnig var ferðast til Bandaríkjanna og Kanada. Sólarlandaferðir voru einnig vin- sælar. Ferðir með skemmti- ferðaskipum voru þó efstar á vin- sældalistanum. Útför Bjarneyjar Erlu fer fram frá Árbæjarkirkju í Reykja- vík í dag, þriðjudaginn 4. október 2011, og hefst athöfnin klukkan 15. Hún Baddý hefur kvatt þennan heim aðeins einni viku fyrir 54. afmælisdaginn sinn. Hún naut þess að fá að vera í faðmi ástríkra foreldra til síð- ustu stundar, þrátt fyrir erfið veikindi. Hún var alveg fram í andlátið þessi ljúfa stúlka sem bar sig vel og kvartaði ekki. Eftir stóraðgerð síðastliðið vor bjó hún í foreldrahúsum og sagðist vera í sumarfríi, en hún hafði ekki þrek til að vinna og naut einstakrar hjúkrunar for- eldranna og hjúkrunarfólks sem kom á heimilið. Það var alltaf stutt í brosið og gam- ansemina hjá henni og hún var tilbúin að njóta þess sem hægt var. Baddý bjó í mörg ár á Sól- heimum í Grímsnesi og naut sá staður mikillar vinnu frá for- eldrum hennar þar sem fóst- urfaðir hennar starfaði með Lionsklúbbi sem styrkti stað- inn af miklum rausnarskap. Seinna flutti Baddý til Reykja- víkur þar sem hún bjó í sambýli fyrir þá sem þurftu aðstoð við daglegt líf. Hún stundaði vinnu í Bjarkarási en dvaldi með for- eldrum sínum um helgar og í öllum fríum. Baddý hafði afar gaman af tónlist og spilaði á orgel og henni þótti gaman að dansa. Hún var dugleg við prjónaskap og ýmislegt fleira handverk. Hún ferðaðist mikið með for- eldrum sínum, bæði innan lands og utan, og fyrir tveimur árum fór hún með þeim í sigl- ingu á stóru skemmtiferðaskipi sem sigldi um Miðjarðarhafið. Hún naut þess að vera fallega klædd og nota smekklega skartgripi og var studd í því af móður sinni sem var dugleg að sauma á hana flíkur samkvæmt tísku hvers tíma. Við undirrituð áttum þess kost að ferðast með Baddý og foreldrum hennar í jeppaleið- angri inn á öræfi Íslands og einnig vorum við með þeim í skemmtisiglingu tvisvar á suð- rænum slóðum. Það var sama hvort Baddý var í skjólfatnaði uppi á hálendi Íslands, í brak- andi sólarhita um borð í skipi eða að skoða grísku eyjarnar, þá var hún alltaf í góðu skapi, brosmild og gamansöm. Hún gekk með okkur mislanga leið- angra, en sýndi aldrei þreytu- merki né amasemi yfir skipu- lagi ferðanna. Hún var þögull hlustandi ef orðum var ekki beint til hennar og greip aldrei inn í með óskum um að gera eitthvað annað. Hún var æv- inlega eins og hugur manns. Það er mannbætandi að kynn- ast stúlku með alla þessa góðu eiginleika og hér með þökkum við Baddý samfylgdina. Við vottum foreldrum henn- ar okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning hennar. Matthildur og Jón Freyr. Elsku Baddý, þá ert þú nú farin frá okkur og eftir sitjum við með söknuð og góðar minn- ingar. Þau eru ófá fjölskyldu- og jólaboðin sem við höfum verið saman þar sem þú lékst stundum á píanóið okkar í Logafoldinni og við dönsuðum í kringum jólatréð. Þú varst ótrúlega dugleg að spila eftir eyranu og gast spilað flest ef þú þekktir lagið. Þú varst líka alltaf glöð og í góðu skapi. Við vitum að þú verður fallegur engill á himnum. Sofðu rótt, sofðu rótt, nú er svartasta nótt. Sjáðu sóleyjarvönd geymdu’ hann sofandi í hönd. Þú munt vakna með sól Guð mun vitja um þitt ból. Góða nótt, góða nótt, vertu gott barn og hljótt. Meðan yfir er húm situr engill við rúm. Sofðu vært, sofðu rótt eigðu sælustu nótt. (Jón Sigurðsson frá Kald- aðarnesi) Halldóra, Sigríður, Oddný og fjölskyldur. Kveðja frá Bjarkarási Í dag kveðjum við kæra sam- starfskonu, Bjarneyju Erlu Sigurðardóttur eða Baddý eins og hún var nefnd meðal vina sinna. Hún hóf störf í Bjark- arási árið 2002 en hafði fram að því lifað og starfað um árabil á Sólheimum í Grímsnesi. Fyrstu árin vann hún við pökkun og aðra verkefnavinnu en fluttist á Betri stofuna þegar þar var opnað og fékk þá tækifæri til að einbeita sér meira að hann- yrðum. Baddý var mikil hannyrða- kona og vandvirk í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hún naut þess líka þegar Betri stof- an breyttist í snyrtistofu og dömurnar fóru heim í helgarfrí- ið með fallega andlitsförðun. Henni þótti skemmtilegt að prjóna á Betri stofunni og vinna við skapandi starf í Smiðjunni. Hafa margir keypt handverkið hennar í Smiðjubúð Bjarkaráss. Árið 2007 lék Baddý á hljóm- borð á opnunarhátíð Listar án landamæra og 2008 tók hún þátt í samsýningu Listar án landamæra í Ráðhúsi Reykja- víkur fyrir hönd Bjarkaráss og sýndi þar verk unnin úr þæfðri ull. Baddý var ein af þessum konum sem maður ber ósjálf- rátt virðingu fyrir. Hún var mikil dama og bar sig glæsi- lega, var ávallt bein í baki og snyrtilega til fara. Hún var með sterka réttlætiskennd og lá ekki á skoðunum sínum þeg- ar svo bar undir. Hún var líka skemmtileg, rík af kímnigáfu og hafði gaman af tónlist og dansi. Við kveðjum Baddý með söknuði en erum jafnframt þakklátar fyrir að hafa fengið að kynnast henni og hennar fólki. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Við vottum Guðrúnu og Hall- dóri ásamt öllum í Stuðlaseli 2 okkar dýpstu samúð. Valgerður Unnarsdóttir, Þórhildur Garðarsdóttir. Bjarney Erla Sigurðardóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Eiginmaður minn, SVEINBJÖRN MARKÚSSON kennari er látinn. Fyrir hönd aðstandenda, Anna Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.