Morgunblaðið - 10.10.2011, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.10.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2011 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Miele þvottavélar og þurrkarar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Bolvíkingar eru langefstir í leikhléi á Íslands- móti skákfélaga með 27,5 vinninga af 32 mögu- legum. Í fjórðu og síðustu umferð fyrri hlutans sem fram fór í gær unnu Bolvíkingar Eyjamenn 6-2. TR er í öðru sæti með 19 vinninga eftir 5,5- 2,5 sigur á Fjölni. Hellismenn eru þriðja með 18 vinninga eftir 4-4 jafntefli við b-sveit Bolvíkinga. Akureyringar lögðu svo Máta, 4,5-3,5. Á meðfylgjandi mynd má sjá A-sveit Bolvík- inga tefla á mótinu. Frá vinstri eru í röð; Loek Van Wely, Kuzubov, Baklan, Stelios, Jóhann Hjartarson og Bragi Þorfinnsson. Bolvíkingar með öflugustu skáksveitina Morgunblaðið/Ómar Icelandair auglýsti eftir flugmönnum til starfa í atvinnu- auglýsingum helgarinnar vegna aukinna umsvifa. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir aug- lýsingarnar vera í samræmi við þær áætlanir sem félagið hefur fyrir næsta ár en þá er gert ráð fyrir stærstu áætl- un í 75 ára sögu félagsins. „Við erum að bæta við nýjum áfangastað í Bandaríkjunum og auka við tíðni á aðra staði. Við gerum ráð fyrir að vaxa um 15% á næsta ári svo það kallar á fleiri flugmenn og fleiri starfsmenn víðar um fyrirtækið. Við erum fyrst og fremst að auglýsa eftir flug- mönnum til starfa fyrir næsta sumar, yfir háönnina.“ Hafsteinn Pálsson, formaður Félags íslenskra atvinnu- flugmanna, segir það fagnaðarefni þegar auglýst er eftir flugmönnum. „Við gleðjumst yfir því að fyrirtækið sé að treysta sína undirstöðu og óska eftir fleiri flugmönnum.“ Í nýliðnum septembermánuði flutti Icelandair 168 þús- und farþega sem er mesti farþegafjöldi í september í sögu félagsins og jafngildir 15% aukningu frá síðasta ári. Farþegaaukning varð mest á ferðamannamarkaðnum til Íslands, eða um 24%. Farþegar hjá Flugfélagi Íslands voru tæp 30 þúsund í september sem er aukning um 9% frá því í fyrra. ingveldur@mbl.is Aukin umsvif á næsta ári kalla á fleiri starfskrafta Morgunblaðið/Ernir Aukning Icelandair flutti 168 þúsund farþega í sept- ember sem er mesti fjöldi í september í sögu félagsins.  Icelandair gerir ráð fyrir að vaxa um 15% árið 2012 „Ég tel engan vafa leika á að stjórnarmanni í fyrirtæki beri að fá slíkar upplýs- ingar sé eftir því leitað. Aðgangur stjórnarmanna að gögnum er mjög ríkur, ekki síst hjá opinberum fyrirtækjum,“ segir Kjartan Magnússon, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokks og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykja- víkur. Ráðið var í stöðu fram- kvæmdastjóra fjármála hjá OR í vor og hinn 20. maí óskaði Kjartan eftir gögnum um hverjir aðrir sóttu um stöðuna. „Forstjóri réð í umrætt starf og kom stjórnin ekki að því. Á fundinum óskaði ég eftir að fá það uppgefið, í trúnaði, hvaða umsækj- endur hefðu verið um stöðuna. Nú 5 mánuðum síðar hef ég ekki enn feng- ið þær upplýsingar.“ Meirihluti stjórnar fékk álit frá innri endurskoðanda hjá OR sem gat ekki mælt með því að stjórnin fengi upplýsingarnar og vísaði til að trún- aður þyrfti að ríkja um ráðninguna. Kjartan er ósammála því áliti. „Nú- verandi stjórn virðist vera að taka upp sömu leyndarhyggju og stunduð var í stjórn OR á árunum 2000-2006. Horfið var frá henni á síðasta kjör- tímabili en nú er gamla fyrir- komulagið snúið aftur. Ég held áfram að berjast fyrir að fá þessar upplýsingar svo ég geti myndað mína skoðun á því hvort þarna hafi verið faglega staðið að verki eða ekki.“ Neitað um upplýsing- ar hjá OR Kjartan Magnússon  Snúa að ráðningu sem forstjórinn sá um Fjöldi smærri skjálfta hefur mælst á Hellisheiðinni um helgina og er talið að upptök þeirra megi rekja til nið- urdælingar affallsvatns við Hellis- heiðarvirkjun. Orkuveita Reykjavík- ur dælir niður köldu vatni til að ná hringrás í kerfið á svæðinu og halda þrýstingi á einstaka holum. Vatnið streymir um sprungur og misgengi í jörðunni og virkar þá eins og hvati á höggun og hnik í jarðlögunum sam- kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Ekki er enn vitað um fjölda skjálftanna. Áfram kippir á Hellisheiði Anna Björns- dóttir, fegurð- ardrottning og leikkona, fékk sem svarar 230 milljónum kr. fyrir að benda bandarísku alrík- islögreglunni, FBI, á dvalarstað James „Whitey“ Bulgers, sem verið hafði á flótta í 16 ár. Frá þessu var greint í Boston Globe um helgina. Bulger er talinn bera ábyrgð á a.m.k. 19 morðum og hefur gerst sekur um fjárkúgun, eiturlyfjasölu og peningaþvætti. Anna, sem starfað hefur sem leik- kona í Bandaríkjunum, sá mynd af Bulger á CNN og þóttist kannast við manninn sem líktist nágranna hennar í Santa Monica í Kaliforníu. Hún reyndist hafa rétt fyrir sér og fær að launum 230 milljónir kr. Fær 230 milljónir fyrir ábendingu til alríkislögreglunnar Anna Björnsdóttir Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalm@mbl.is Um 300 kg af dínamíti og þónokkru af kjarna, hvellhettum og sprengi- hnöllum var stolið úr sprengiefna- gámi verktakafyrirtækisins Háfells í Þormóðsdal ofan við Hafravatn í síð- ustu viku. Jóhann Gunnar Stefáns- son, framkvæmdastjóri Háfells, seg- ir að efnin hafi verið geymd í viðurkenndum sprengiefna- geymslum sem lúti eftirliti og um- sjón Vinnueftirlitsins. „Öryggi og að- búnaður var allur í lagi af okkar hálfu og það þurfti logsuðutæki til að komast að efnunum sem ber vott um einbeittan brotavilja.“ Einungis tvö fyrirtæki flytja inn sprengiefni á Ís- landi og fáir verktakar notast við sprengiefni í dag. Því ætti markaður fyrir stolin sprengiefni að vera lítill sem enginn. „Ég furða mig á því að menn skuli stela þessu. Það er ekki gert neitt með þessu annað en að gera gagn eða skemma. Þetta er ekki vara sem þú kemur í verð á Ís- landi,“ segir Jóhann og bætir því við að hægt sé að valda töluverðu tjóni með þetta miklu magi af sprengiefni. „Það er hægt að sprengja fleiri rúm- metra af bjargi með þessu og þetta gæti jafnað hús við jörðu, fleiri en eitt og fleiri en tvö.“ Rannsókn máls- ins stendur enn yfir og hefur ekki borið árangur enn sem komið er. Ekki er vitað í hvaða tilgangi efn- unum var stolið en varsla þeirra er stóhættuleg. Lögreglan biður alla þá sem kunna að hafa upplýsingar um málið að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000 eða 800 5005. Sprengiefnin ófundin  Mikil hætta stafar af geymslu sprengiefnanna og geta þau valdið gífurlega miklu tjóni  Málið er enn óupplýst Morgunblaðið/Júlíus Hætta Sprengiefnin geta valdið mjög miklu tjóni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.