Morgunblaðið - 10.10.2011, Page 9

Morgunblaðið - 10.10.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2011 Landssöfnun SEM samtakanna, sem fór fram í beinni útsendingu Stöðvar 2 á föstudagskvöld, skilaði alls 19 milljónum króna í peningum og um sex milljónum í vinnuframlagi og gjöfum. Tilgangur söfnunarinnar var að safna fjármunum til að standa straum af viðgerðum á SEM húsinu við Sléttuveg 3 í Reykjavík. Að sögn Haraldar Sigþórssonar, formanns Húsnæðisfélags SEM samtakanna, munu SEM-félagar fara yfir stöðuna og kanna hvernig hægt sé að nýta þetta fjármagn sem best. „Við erum afar þakklát þjóð- inni fyrir að bregðast svona vel við beiðni okkar og það er mikil hvatn- ing og styrkur að sjá hversu margir eru reiðubúnir til að standa við bakið á okkur,“ segir Haraldur í frétta- tilkynningu. Söfnunarsímar eru opn- ir fram á mánudagskvöld, 904-1001, 904-1003 og 904-1005. Einnig er hægt að leggja inn á reikning SEM. Nítján milljónir króna söfnuðust til handa SEM samtökunum Söfnun SEM húsið við Sléttuveg 3. Keppendurnir Rannveig Kramer og Guðrún H. Ólafsdóttir höfnuðu í gær í sjötta sæti í sínum flokki á Arnold Class- ics Europe- keppninni í fitness á Spáni. Kristbjörg Jónasdóttir hafnaði í öðru sæti í „módel- fitness“ síð- asta föstudag og Alexandra Sif Nikulásdóttir og Unnur Kristín Óladóttir komust í 15 manna úrslit í sínum flokkum. Þetta þykir besti árangur sem Íslendingar hafa náð á erlendri grundu í líkamsræktar- keppnum. Íslenskir keppendur hafa tekið þátt í fleiri mótum á undanförnum árum en aldrei náð svona góðum árangri áður. Mótið er haldið af Alþjóðsambandi lík- amsræktarmanna og er kennt við Arnold Schwarzenegger, sem var sjálfur staddur á mótinu ásamt syni sínum. Arnold Classics Europe mótið þykir eitt af sterk- ustu líkamsræktarmótum í Evrópu. mep@mbl.is Stæltar Guðrún H. Ólafsdóttir og Rannveig Kramer lentu í 6. sæti. Þrír Íslend- ingar í verð- launasæti Silfur Kristbjörg Jónasdóttir í 2. sæti. SVIÐSLJÓS Andri Karl andri@mbl.is Sveitarfélög hér á landi virðast varla hafa gefið því gaum að 1. apríl 2015 tekur gildi bann við innflutn- ingi og sölu kvikasilfurspera. Það væri í sjálfu sér ekki vandamál nema fyrir þær sakir að 31 þúsund lampar á ljósastaurum hér á landi eru gerðir fyrir kvikasilfursperur. Ekki hefur verið ákveðið hvaða leið verður farin til framtíðar en Danir áætla sem svo að um 80 þúsund krónur kosti að skipta út hverjum ljósastaur. Ætti þá hverju manni að vera ljóst að kostnaðurinn er drjúg- ur fyrir fjárvana sveitarfélög. Um er að ræða Evrópureglur og hafa sveitarfélögin vitað í hvað stefndi um nokkurra ára skeið. Í bágbornu efnahagsástandi er auð- velt að velta verkefnum sem þess- um á undan sér, en þegar upp er staðið hefði eflaust verið betra að sýna fyrirhyggju og hefjast þegar handa við að skipta út staurum til að dreifa kostnaðinum. En í hvað á að skipta? „Það er engin spurning að ljós- tvistur er framtíðarljósgjafi í götu- lýsingu og ég held að það séu lang- flestir sammála um það,“ segir Guðjón L. Sigurðsson, formaður Ljóstæknifélags Íslands. Til útskýr- ingar er tekið fram að ljóstvistar eru perur með ljósdíóðum, eða LED-perur. Ekki gott að gera borgina gula Á morgun verður haldinn fundur um rekstur götulýsingar og notkun ljóstvista í götulýsingu þar sem annars vegar kemur fram yfirmað- ur hjá Orkuveitu Helsinki og hins vegar fulltrúi frá Philips sem er mjög framarlega í framleiðslu á ljóstvisti. Guðjón bendir á að Orkuveita Helsinki rekur jafn stórt kerfi og ís- lenska kerfið í heild, eða um 84 þús- und lampa. „Þeir eru ekki að fara í ljóstvistavæðingu eins og sumir. Þeir ætla að hinkra aðeins lengur. En þeir eru engu að síður að skipta út tugum þúsunda lampa, þannig að það er svipuð staða og uppi er hér. Hann er að reyna að natríumvæða jafn mikið og hann getur, en hann veit það að hann getur ekki gert það í miðbænum og á vissum svæð- um, þannig að hann bíður með að skipta út þar eins lengi og hann getur.“ Aftur skal útskýra að natríum- lampar eru notaðir aðallega til móts við kvikasilfurslampa. Í Reykjavík eru 14.300 natríumlampar og um 14 þúsund kvikasilfurslampar. En hvers vegna að skipta ekki alfarið yfir í natríum? „Gera borgina gula. Það er ekki sú leið sem ég myndi mæla með og trúi því ekki að menn vilji fara þá leið, því gula ljósið er með mjög slæma litarendurgjöf. Maður sér ekki munin á grænum og bláum bílum í slíkri lýsingu. Það er því ekki sú leið sem menn ættu að fara.“ Helstu rökin gegn ljóstvisti tengjast kostnaði. Stofnkostnað- ur við slíkar perur þykir nokkuð hár. Guðjón bendir þó á að bæði fari hann lækkandi og svo verði að horfa á rekstrarkostnað og viðhaldskostnað einnig. Kvika- silfursperur eiga að duga í tuttugu þúsund ljóstíma sem er um það bil fimm ára notkun. Orkuveitan skipti þeim áður út á þriggja ára fresti en vegna sparnaðar er það nú gert á fjögurra ára fresti. Lamparnir duga í um fimmtán ár en ef ekki er skipt um peru fyrir tuttugu þúsund ljós- tíma getur peran eyðilagt lampann. Þá dugir búnaðurinn í lömpunum í tíu til fimmtán ár. „Þessir ljóstvistar duga í fimmtíu til hundrað þúsund tíma og ef látið er loga í fjögur þúsund klukku- stundir á ári eru það í minnsta kosti 12,5,“ segir Guðjón en bætir við að allt bendi til þess að það sé nær hundrað þúsund tímunum og því 25 ár. Í flestum tilvikum þarf að skipta um lampa um leið og perur þegar að ljóstvisti kemur en þó er farið að framleiða lampahús sem hægt er að skipta um ljóstvist í. „En það er kannski ekkert vit í að nota lampa- hús sem búin eru að vera í notkun í tuttugu ár. Þá er alveg jafn gott að skipta öllu út.“ Að öðru leyti er ekkert viðhald sem fylgir ljóstvistinum og líkt og greint er frá annars staðar á þess- ari síðu er orkunotkunin minni en lýsingin jafn góð. Önnur lönd hætt kaupum Ljóst er að framtíðarsýn vantar hjá sveitarfélögum hér á landi þeg- ar kemur að götulýsingu. Guðjón segir að sama andvaraleysis hafi ekki gætt hjá löndunum í kringum okkur en þau hafi hugað að banninu 2015 fyrir nokkrum árum og gert ráðstafanir. „Þetta er búið að liggja lengi í loftinu og aðlögunartíminn hófst árið 2008 eða 2009. Ég veit til þess að mörg lönd hættu að kaupa kvikasilfurslampa fyrir þremur ár- um, vitandi að hann myndi ekki duga nema í átta ár, þegar ending hans er skráð í fimmtán. Ísland hef- ur hins vegar verið að kaupa kvika- silfurslampa allt fram á síðasta ár.“ Framtíðin björt í ljóstvisti  Bannað verður að flytja inn og selja kvikasilfursperur í Evrópu 1. apríl 2015  Skipta þarf um lampa á þrjátíu þúsund ljósastaurum og er vinnan á byrjunarreit Morgunblaðið/Frikki Peruskipti Borgarstarfsmenn munu hafa nóg að gera á næstu árum við að skipta um perur og lampa, en bann við kísilperum tekur gildi í apríl 2015. Settir voru upp 22 lampar með ljóstvist í mars síðastliðnum víðs vegar um Reykjavík, s.s. á hluta Hringbrautar, hluta Skeiðarvogs og í Grafarvogi. Að sögn Guðjóns L. Sigurðs- sonar, formanns Ljóstækni- félagsins, er ljóst að ekki er minna ljós af þeim en lömp- unum sem fyrir voru. Þá voru gerðar mælingar fyrir og eftir skiptin og í ljós kom að lamparnir með ljóstvist notuðu 61% minni orku. Þá er ráðgert að setja upp lampa í hluta Borgartúns, s.s. í grennd við skrifstofur Reykjavíkurborgar og Vega- gerðarinnar, í tilraunarskyni sem Philips gefur. Til stend- ur að lamparnir verði settir upp síðar í þessum mánuði. Spara má orku um 50-60% PRÓFUN Í REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.