Morgunblaðið - 10.10.2011, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2011
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Landeyjahöfn er á röngum stað og
hefði átt að rísa nokkru vestar í
Bakkafjöru þar sem minni sand-
burður er og auðveldari og hættu-
minni innsigling. Hafnargarðar
Landeyjarhafnar eru rangt hann-
aðir, þar sem menn hafa ofmetið
skjólið af Eyjum og loka þarf hafn-
armynninu fyrir hafáttum með því að
sigla inn í höfnina
úr vesturátt.
Þetta er mat
Halldórs B. Nel-
lett, fram-
kvæmdastjóra
aðgerðasviðs
Landhelgisgæsl-
unnar og skip-
herra til margra
ára, sem sendi
Siglingastofnun
og fleiri hagsmunaaðilum ítarlega
greinargerð fyrir tæpu ári, með ýms-
um ábendingum og athugasemdum.
Var greinargerðin send á hönnuði
hafnarinnar; þá Gísla Viggósson og
Sigurð Áss Grétarsson hjá Siglinga-
málastofnun, Elliða Vignisson, bæj-
arstjóra í Vestmannaeyjum, og Árna
Johnsen þingmann, auk þess sem
einn skipstjóra Herjólfs fékk grein-
argerðina í hendur. Halldór hefur
ekkert heyrt frá Siglingastofnun en
Elliði og Árni sögðu greinargerðina
gott innlegg í umræðuna.
Hönnunin hulin ráðgáta
Halldór segist hafa sem áhuga-
maður um bættar samgöngur milli
lands og Eyja tekið saman þessa
greinargerð. Hann hafi lengi verið
þeirrar skoðunar að mögulegt væri
að gera hafnaraðstöðu norðan Vest-
mannaeyja, til að stytta siglingaleið-
ina til lands.
„Það er mér hins vegar hulin ráð-
gáta hvernig mönnum datt í hug að
byggja höfnina yst á sandeyri sem er
opin fyrir öllum hafáttum og þar að
auki að hafa hafnarmynnið opið til
suðurs. Þarna hefur landið gengið
fram vegna sandburðar um 400
metra á 90 árum. Með þessu er bæði
verið að kljást við erfitt sjólag í öllum
hafáttum og síðan endalausan sand-
burð,“ segir Halldór.
Hann býr að langri reynslu í sigl-
ingum gegnum árin, fyrst á frakt-
skipum og síðar með varðskipum
Landhelgisgæslunnar, sem leitað
hafa vars í hafáttum norðan Eyja.
Hann er því vel kunnugur sjólagi á
þessum slóðum og hefur að auki
margoft flogið þarna yfir með flug-
vélum og þyrlum Gæslunnar, þar
sem góð yfirsýn hefur fengist á sjó-
lag í sterkum suðlægum vindáttum.
Halldór telur að höfnin hafi átt að
vera 2-3 km vestar í Bakkafjöru. Þar
sé minni sandburður og meira skjól
fyrir austan- og austsuðaustan-
áttum. Hafnargarðarnir séu of stutt-
ir og misráðið hafi verið að hafa hafn-
armynnið opið beint til suðurs.
Nauðsynlegt sé að brimbrjótarnir
nái út fyrir grunnbrotin og hafn-
argarðarnir nái lengra út og til vest-
urs, svo mynda megi skjól fyrir
ríkjandi austlægum og suðaust-
lægum vindáttum.
Halldór segir í greinargerð sinni
að með þessum breytingum á höfn-
inni vinnist margt.
Í fyrsta lagi muni skip komast í
skjól og betra sjólag þegar þau sigla
inn fyrir varnargarðinn í verstu og
algengustu vindáttunum.
Í öðru lagi verði sandburður trú-
lega ekki eins mikið vandamál og
verið hefur í hafnarmynninu, þar
sem varnargarðar myndu ná út á
meira dýpi.
Í þriðja lagi yrði öruggara að sigla
inn um hafnarmynnið. Herjólfur og
Baldur hafi þurft að sigla inn um
mynnið þvert á straumstefnu og al-
genga vindstefnu og til að það takist
þurfi að hafa talsverða ferð á skip-
um, sem aftur skapi aðra hættu eða
hreinlega valdi því að skipin verði
stjórnlaus.
Í fjórða lagi verði minni frátafir
vegna veðurs og þá aðallega vegna
ríkjandi suðaustanátta. Auðveldara
yrði líka fyrir dýpkunarskip að at-
hafna sig í hafnarmynninu.
Halldór segist vel gera sér grein
fyrir að þessi útfærsla á Landeyja-
höfn sé dýrari framkvæmd og að í
suðvestanbrælum geti sigling inn
hafnarmynnið orðið erfið.
„Höfnin verður ekki færð úr þessu
en ég get fullyrt að oftar verður fært
í hana með þessum breytingum á
hafnargörðum og þá með skipi sem
er með minni djúpristu en Herj-
ólfur,“ segir Halldór.
Með greinargerðinni fylgdu ýmis
önnur gögn, m.a. loftmyndir af höfn-
unum í Hirtshals í Danmörku og
Ijmuieden í Hollandi en báðir liggja
þessir bæir fyrir opnu hafi. Þar voru
varnargarðar hannaðir til að varna
því að haföldur kæmust inn í hafn-
armynnið.
Það er mat Halldórs að verði
Landeyjahöfn ekki breytt verði hún
aðeins sumarhöfn og varla það, líkt
og reynslan hafi sýnt. Skipstjórar
Herjólfs séu ekki öfundsverðir að
þurfa að sigla inn höfnina við þessar
aðstæður og þó að grunnskreiðari
skip eins og Baldur eigi kannski auð-
veldara með þetta þá sé höfnin samt
sem áður varasöm eins og hún var
hönnuð.
Hugmynd Halldór telur að hönnun varnargarða Landeyjahafnar hafi átt að vera öðruvísi, til að
verja höfnina betur fyrir ríkjandi sunnanáttum, með því að hafa innsiglinguna úr suðvestri.
Landeyjahöfn og hafnargarðurinn
Hugmynd Halldórs B. Nellet að breyttri legu varnargarðsins
Fyrir opnu hafi Varnargarðar og mynni Landeyjahafnar eru fyrir opnu Atlantshafinu og í
ríkjandi sunnanáttum gengur brimið beint inn í höfnina. Þarna er ölduhæðin um 4 metrar.
Rangur staður og röng hönnun
Skipherra hjá Landhelgisgæslunni segir Landeyjahöfn á röngum stað í Bakkafjöru og hafnar-
garðinn vitlaust hannaðan Sendi Siglingastofnun greinargerð sem ekki hefur verið svarað
Danmörk Höfnin í Hirtshals.
Holland Höfnin í Ijmuieden.
Morgunblaðið/RAX
Landeyjahöfn Erfiðlega hefur gengið fyrir Herjólf að sigla til Landeyjahafnar, sér í lagi að vetri til.
Danska seglskipið Dragör strand-
aði í Bakkafjöru í Austur-
Landeyjum 6. desember árið 1920,
eða fyrir rúmum 90 árum. Um var
að ræða fjórmastra flutningaskip,
600 smálestir að stærð, á leið frá
Kaupmannahöfn til Ísafjarðar að
sækja fisk til útflutnings. Því voru
engar vörur um borð en áhöfnin
taldi 11 skipverja. Í frétt Morg-
unblaðsins, 8. desember, sagði
m.a. um strandið:
„Skipið er svo hátt uppi í fjöru,
að gengið varð út í það þurrum
fótum um fjöru í gær. Eru því lítil
líkindi til að því verði náð út, þó
enn sé það óskemmt að öllu leyti.“
Í niðurlagi fréttarinnar var þess
getið að ekki væri afráðið hvort
reynt yrði að bjarga skipinu og
koma því á flot. Af því varð hins
vegar aldrei.
Að sögn Halldórs liggur flakið
nú þar sem fjaran var fyrir um 90
árum, eða í ríflega 400 metra fjar-
lægð frá sjó, skammt norðnorð-
austur af Landeyjahöfn. Halldór
segir legu flaksins í dag vera til
vitnis um þann mikla sandburð
sem þarna er. Sandburður muni
halda áfram fyrir tangann sem
Landeyjahöfn er byggð á.
Flakið liggur 400 metra frá sjó
DRAGÖR STRANDAÐI Í BAKKAFJÖRU ÁRIÐ 1920
Dragör Danskt fjórmastra seglskip.
Halldór B. Nellett
Þrautasigling
» Frá því að Landeyjahöfn var
tekin í notkun sumarið 2010
hafa siglingar milli hennar og
Vestmannaeyja gengið erf-
iðlega, sér í lagi síðasta vetur
er þær lágu niðri mánuðum
saman og Herjólfur varð að
sigla til Þorlákshafnar.
» Eyjamenn hafa fyrir löngu
misst þolinmæðina yfir þessu
ástandi og efndu nýlega til
mótmæla, þar sem Sigl-
ingastofnun var krafin svara
um stöðu Landeyjahafnar.
» Breiðafjarðaferjan Baldur
leysti Herjólf af í september og
þá var mun oftar hægt að sigla
að Bakkafjöru.
» Samráðshópur um áætl-
unarsiglingar milli lands og
Eyja samþykkti fyrir helgi að
óska eftir því við Vegagerðina
að finna hentugra skip en Herj-
ólf, sér í lagi yfir veturinn.