Teningur - 01.06.1989, Page 38
FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON
ÖRSÖGUR
BÚKONAN
Ekki fóru allir legsteinar sem viö
smíðuðum upp í kirkjugarð. Dag einn
vorum við Sigurður Pétursson bíl-
stjóri sendir með legstein sem var
fullbúinn að öðru leyti en því að á
hann vantaði dánardægur. Við áttum
að afhenda hann á þriðju hæð í blokk
einni. Við hringdum dyrabjöllunni og
gömul góðleg kona kom til dyra. Flún
bauð okkur innfyrir og gaf okkur kaffi
og með því. í íbúðinni var allt með lát-
lausum blæ, innan um fjölskyldu-
myndir héngu krossar og helgimynd-
ir. Þegar við höfðum drukkið kaffið
bað konan okkur að fylgja sér með
steininn niður í geymslu. Þar komum
við honum fyrir innan um kartöflu- og
hveitisekki, sláturtunnu, hangikets-
læri og súrsaðan hval.
ÓVÆNTUR VIÐGERNINGUR
Einhverju sinni var ég að vinna við að
pakka niður myndlistarsýningu einni á
Kjarvalsstöðum. Auk mín unnu að
verkinu smiður og vörubílstjóri sem
keyrði sýninguna niður á hafnar-
bakka. Eftir að við vorum búnir að fara
eina ferðina niður eftir bauð smiður-
inn okkur í kaffi heim til sín sem við
og þáðum. Þegar við komum inn í
íbúðina var þar slangur af gamal-
mennum sem voru að bjástra við að
koma löpp undir borð. Er þau urðu
okkar vör greip um sig mikil gleði í
hópnum og var strax hafist handa um
að útbúa kaffiborðið. Boðnar voru
fram dýrindis tertur og smurt brauð
með lostætu áleggi. Þegar allir eru
sestir að borðum hófst skyndilega
ákaft bænahald og sálmasöngur
mikill, mér og vörubílstjóranum til
mikillar undrunar. Flelgistund þessi
varði nokkrar mínútur, en hætti þá jafn
skyndilega og hún hafði hafist og var
þá tekið að ræða dægurmál að nýju
eins og ekkert hefði í skorist.
ABSTRAKTLISTAKONAN
Milli Skúlagötu og Laugavegs fyrir
ofan Fllemm er bakgarður allstór. í
vetrarharðindum leituðu stórir hópar
af smáfuglum og dúfum þar skjóls.
Ástæðan var sú að gömul kona gaf
þeim þegar snjór lá yfir jörðu. Hafði
hún þann háttinn á að strá fóðrinu
þannig að það myndaði útlínur frum-
formanna, hrings þrí- eða ferhyrn-
ings. Síðan gæddu fuglarnir formin lífi
með því að raða sér upp á útlínurnar.
Árni Óskarsson skrádi