Teningur - 01.06.1989, Blaðsíða 55
hamskipti hans í andliti vera ákveðið
listform.
- Ég gerði hann í hvítu postulíni
aðeins vegna þess að þannig var
hann mest elegant, og einnig til að
staðfesta þá skoðun mína að breyt-
ingar hans á sjálfum sér tel ég mun
meira abstrakt en nokkur önnur
formalísk listaverk. Þessi hugmynd,
að hann sé viljugur til þess að breyta
andliti sínu með uppskurði ef það
mætti verða til þess að gera plötu
hans þá mest seldu í öllum heimi, sú
hugmynd finnst mér áhrifamikil. Það
að hann skuli gera allt sem til þarf,
fórna öllu. Þessi metnaður að gera
hvað sem þarf til að ná til fólks og
verða eins áhrifamikill og hægt er.
Slíkt er manni mikil hvatning. Michael
Jackson vinnur með hina hreinu
abstraksjón. Hann notfærir sér kyn-
hrif á mjög nákvæman hátt, hver ein-
asta hreyfing hans, hver einustu svip-
brigði sín notar hann til þess að stjórna
því hve langt hann leiðir áhorfandann
hverju sinni. Varðandi konur í minni list,
þá krefst ég þess að fá að tjá mitt kyn-
ferði. Ég trúi því að listamenn verði að
notfæra sér sjálfa sig og einnig áhorf-
andann, þeir taka þá ábyrgð, og ef
einhverjir femínistar og kvenréttinda-
konur ætla að segja manni að það
megi ekki sýna ber konubrjóst, að
maður geti ekki gert mynd af konu í
baði, þá er það bara hrein della. Ég
get gert það sem mér sýnist í list, og
mér finnst einmitt kynlíf mjög spenn-
andi viðfangsefni í list, mjög gott
meðal til tælingar og mér finnst að
listin eigi að vera ein stór tæling.
- En hefur þú hitt Michael Jackson?
- Nei síðast þegar við áttum að
hittast hafði hann fengið flensuna, en
lögfræðingurinn minn er búinn að
ákveða annan dag, ég flýg líklega til
Los Angeles í maí til að hitta hann.
- En hefur hann séð verk þitt af
honum og hvernig líkaði honum?
- Já, hann hefur séð Ijósmyndir af
því. Ég held að hann sé ekki annað en
ánægður með það sem við erum að
gera, styðji það heilshugar.
- Ertu að reyna að framkalla
ímyndir sem geta gengið hvar sem er
um heiminn?
Michael Jackson og Bubbles", postulin, 1988
Hvolparöð", pólýkrómaður viður, 1988
„Ýttimdir med banaiitetinu", tré, 1988
53