Teningur - 01.06.1989, Síða 54
sköpun menningar. Michael Jackson
upplýsir unga krakka um líkama
þeirra, um fullnægju kynlífs, hann
gerir þaö betur en þau eiga eftir að
gera sjálf með sinni eigin hversdags-
legu reynslu. Hann upplýsirþau betur
um það hvernig kynferðisleg fullnæg-
ing er, hvernig tilfinning það er, og
hefur áhrif á líkama þeirra og hreyf-
ingar. Hin kynferðislega reynsla þeirra
mun.örugglega verða í sambandi við
þá reynslu sem þau fengu við að
horfa á myndbandið við lag hans.
- Hver var hugmyndin á bakvið
auglýsingarnar þinar sem birtust í
ýmsum listatímaritum fyrir síðustu
sýningu?
- Mér viröist að flestir listamenn í
New York, flestir þeir ungu, noti ritað
mál til stuðnings verkum sínum, til
þess að varpa betra Ijósi á þau. Ég
vildi hinsvegar sýna fram á það að ég
gæti verið án þessa og einungis not-
ast við sjónrænan stuðning, eins og
ég hef reyndar alltaf gert. í stað þess
að hafa sýningarskrá með hefð-
bundnum inngangi, taldi ég að
skemmtilegra væri að gera þessar
auglýsingar og beina þeim að
ákveðnum hópum lesenda. Til þess
að skýra þetta með dæmi, þá var
auglýsingin sem birtist í Artforum, þar
sem ég stend við skólatöflu sem full
er af áróðri og ítroðslu fyrir framan
mjög unga krakka, sjö ára bekkinga,
aldur sem í raun er alltof viðkvæmur
gagnvart slíkum áróðri. (Á töfluna var
skrifað: Notfærum okkur almenning,
upp með útþynninguna! Exploit the
masses, Banality as the savior).
Þessu beindi ég gegn lesendahópi
þessa blaðs, fólkinu sem hatar mig út
af lífinu, var að leyfa því að sýna mér
tennur sínar, leyfa því að hata mig
enn meir vegna þess að ég var að
taka framtíðina frá því, ég var að spilla
ungdóminum, framtíðarfólkinu. Og ef
þeir geta ekki samþykkt þessar hug-
myndir, um það að notfæra sér
almenning og notfæra okkur bana-
lítetið, útþynninguna, þá eru þeir bara
eins og litlu börnin í auglýsingunni. Þá
taldi ég aö svínamyndin færi vel í
FlashArt vegna þess að ritstjóri þess
er svo mikið fyrir harðlínuna, hann vill
Lúðvík fjórtándi", ryðfrítt stál, 1986
alltaf fá það óþvegið svo ég lét hann
fá það, hina fullkomnu niðurlægingu,
ég niðurlægði mig þar, með þessum
svínum, ég kallaði mig svín áður en
lesandinn fékk til þess tækifæri. Eftir
það gæti álit hans á mér ekki annað
en farið upp á við.
- Hvernig urðu þau til, þessi síð-
ustu verk?
- Ég læt hugmyndir bergmála í mér.
Eftir að ég gerði stálstytturnar 1986,
ferðaðist ég mikið um Evrópu og fékk
strax mikinn áhuga á rokkokkóinu og
barokkinu og bara öllum þessum evr-
ópska kúltúri, þeim bæverska og öllu
postulíninu, hinum ýmsu söfnum og
höllum. Ég lét þessi áhrif, þessar
myndir, bergmála í mér. Smám
saman þráði ég það frelsi að þurfa
ekki að hafa verk mín eintóma tilbún-
inga (Readymades), heldur vildi ég
frekar nota áhorfandann, almenning
sem tilbúning, Readymade, fá fram
einstaklingsbundin viðbrögð.
- Þúhefursagtaðþúhafnirkitschi
vegna hinna kynferðislegu áhrifa
þess?
- Verk mín eru ekki kitsch, þau eru
á mörkum þess að vera það, en eru
Héri", ryðfrítt stál, 1986
það ekki. í sambandi við hið kynferð-
islega hef ég einkum rætt um það í
samhengi við óttann við notkun hand-
arinnar í sköpun verksins. Mér hefur
alltaf fundist, í gegnum reynslu mína
sem málari og mína löngu stúderingu
á málverkum, að með því að nota
hendurnar við gerð listaverka sé sú
hætta fyrir hendi að maður týni
sjálfum sér í sköpuninni og láti tælast
af einhverskonar sjálfsfróun burt frá
upphaflegu markmiði sínu og endi
með allt annan hlut í höndunum en
ætlunin var í upphafi. „0 þetta ersvo
gott, svo gaman" segir þú við sjálfan
þig og fyrr en varir er brauðrist orðin
að fíl. En ég nota kynferði mikið í
mínum verkum, í síðustu verkunum
eru það einkum litirnir sem eru kyn-
ferðislegir. Ég nota kynlíf til þess að
ná til fólks, það er eitt af mínum helstu
vopnum.
- Þessi verk virðast manni túlka
þjóðfélag þar sem enginn mismunun
er greinanleg. Blökkumanninn Michael
Jackson gerir þú hvítan. Var það gert
af fagurfræðilegum ástæðum einum,
að gera hann meira rokkokkó og
barokk? Ég efast ekki um að þú álítir
52