Svart á hvítu - 01.01.1979, Blaðsíða 14

Svart á hvítu - 01.01.1979, Blaðsíða 14
fyrir að svo geti orðið. Hags- munasamtök þessi sem ná til allra leikara, risu upp og héldu því fram að tilraunaleikhúsin væru að féfletta leikara, þar sem þeir fengju lítil sem engin laun fyrir vinnu sína á meðan leik- húsin sjálf stórgræddu! Áttu leikarar á tímabili ekki að fá aó leika með okkur nema þeir fengju 75 dali á viku sem þýddi að öllum tilraunaleikhúsum yrði lokað. Leikarar andmæltu þessu harðlega og að lokum komumst við að samkomulagi við samtök- in, að sýna hvert verk aðeins tólf sinnum, verð miða mætti ekki vera hærra en þrír dalir og að- eins hundrað sæti seld á hverja sýningu. Þetta þýðir að við kom- um sléttir út og leikararnir fá alltaf smáupphæð í lokin. Leik- húsið sjálft fær smá styrki frá hinu opinbera (t. d. The National Endowment of the Arts og New York State Council). Ef þeir hækka, sem vonandi gerist, þá fá leikararnir hærri laun. En allt er gert til að spara. Við vinnum þrjú hér að staðaldri og gerum allt, teiknum og búum til leik- mynd og búninga, veljum leik- ara, stjórnum leikritum, seljum miðana o. s. frv. Svo ég snúi mér aftur að starfseminni, þá höfum við hald- ið leikhátíð undanfarin þrjú ár, og er þetta eina leikhátíðin sem haldin er af tilraunaleikhúsi í New York, en þau eru hvorki meira né minna en um 275 að tölu. Leikhátíðir vekja alltaf meiri athygli en venjulegar leiksýn- ingar og eru alveg prýðileg tækifæri til að kynna óþekkt leikhúsfólk. Við höfum að vísu alltaf nokkra vel þekkta hópa með til þess að trekkja fólk að, en aðaltilgangurinn er að koma fram með eitthvað algjörlega nýtt. Eins og er þá er ég á þönum til að kynna mér starfsemi svo- kallaðra „Lofts" hópa fyrir næstu leikhátíð, sem verður frá 1. október til 31. desember. Þetta eru hópar fólks sem semja og flytja verk mest megnis fyrir sjálfa sig og eigin kunningja, verk sem ekkert venjulegt leik- hús tæki í mál að sýna. Margir þessara hópa eru alveg ótrúlega góðir og það er einmitt meðal þessa fólks sem nýjungar verða til í leiklistinni. Hvað er nýtt að gerast í leik- húsunum í dag og hver heldur þú að framtíð tilraunaleikhús- anna verði? Það er svolítið erfitt aó segja hverjar helstu nýjungarnar í leikhúsinu eru, það er svo margt að gerast. Það sem mikið ber á núna er sameining dans og leiks. Þessi sameining hefur al- veg sett gagnrýnendur út af lag- inu, þeir vita ekkert í sinn haus, hvort t. d. leikgagnrýnendur eða dansgagnrýnendur eiga að fjalla um málið. Um framtíð tilraunaleikhús- anna get ég aðeins sagt að ég óttast fátt meira en að þau verði viðurkennd af yfirvöldum og al- menningi. Eins og er, þá eru all mörg leikrit á Broadway, sem eiga uppruna sinn að rekja til off-off Broadway leikhúsa eins og t. d. ,,Da“, „Aint misbehav- en“, „On Golden Pond“ og „The Course Line". Sum off-off Broadway leikhús hafa tekið upp þann sið að sýna aðeins verk sem þau telja að verði á Broad- way eftir nokkur ár. Ekki vil ég nú halda því fram að fátækt geri listamenn góða, en það er ótrú- legt hversu marga góða hluti er hægt að gera þó pyngjan sé tóm. Því miður þá fylgir miklum pen- ingum og frama oft dauði sköp- unar og nýjunga sagði Jon aö lokum og með það var hann rokinn til stefnumóts við einn af „Lofts" hópunum sínum. Ég undirritaður/undirrituð óska eftir að gerast áskrifandi að „Svart á hvítu" frá og með........tölublaði. Nafn: ......................................................................... Heimilisfang: ................................................................. Sími: ......................................................................... Sendist til Gallerí Suðurgötu 7,101 Reykjavík. 12 SVART Á HVÍTU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Svart á hvítu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.