Svart á hvítu - 01.01.1979, Blaðsíða 64

Svart á hvítu - 01.01.1979, Blaðsíða 64
í framleiðslu sinni að þeir gera sér grein fyrir því aó einskiptnir fjöl- miðlar hafa lágmarks notagildi nú á tímum. Margir þeirra draga þó harla grunnfærnar ályktanir. Þeir gefa t. d. neytandanum tækifæri til að raða sjálfur saman því efni sem hann fær afhent. Sérhver lesandi á sjálfur að skrifa sína eigin bók. Slíkar tilraunir til að framkalla víxlverkun (sem raunverulega stríðir gegn formgerö bókmiöilsins) leiöa til einskis: ein- tómur hávaði sem leiðir ekki til skil- merkilegra víxlskipta. Þær gervi- lausnir sem Concept-list býöur upp á byggja á þeim einföldu mistökum aö álíta að þróun framleiðsluaflanna muni gera alla vinnu óþarfa. Með sömu rökum mætti áætla að hægt væri að láta tölvu annast skipulagn- ingu efnalegrar framleiðslu með aðstoð tilviljunarforrits (random generator). Sem betur fer ganga kerfisfræöingar ekki með slíka óra. 21. Þaö leiðir af þessum hugleið- ingum, að „listamaðurinn'1 í hefð- bundnum skilningi — við skulum kalla hann höfund — verður að líta á það sem markmið sitt að gera sig óþarfan sem sérfræðing, á sama hátt og lestrarkennarinn, svo dæmi sé tekið, hefur þá fyrst lokið ætlun- arverki sínu, þegar hans er ekki lengur þörf. Eins og allt námsferli er þetta víxlverkandi: sérfræöingurinn verður að læra alveg jafn mikiö eða jafnvel meira af þeim ósérmenntaða sem öfugt; aðeins þannig tekst honum að afnema félagslegt hlut- verk sitt. Þangaö til verður félagsleg gagn- semi hans fyrst og fremst vegin samkvæmt því að hve miklu leyti honum tekst að nýta frelsandi þætti fjölmiðlanna og þróa þá. Ekki verður fram hjá því horft aö höfundurinn þarf að heyja baráttu sem oft er æði mótsagnakennd til að ná settu marki og mörg tæknileg vandamál bíða úrlausnar. Hlutverk hans í barátt- unni er samt augljóst. Hann á að starfa sem fulltrúi fjöldans. En þá fyrst getur hann horfið í fjöldann þegar fólkið sjálft er orðið að höf- undum, höfundum sögunnar. 22. „Hugurinn er svartsýnn, vilj- inn bjartsýnn". (Antonio Gramsci) 1) Hér er átt viö þýska heimspekinginn Herbert Marcuse (f. 1898); um kenninguna um „þrúgandi um- buröarlyndi" má lesa í An Essay on Liberation (aths. þýí). 2) Iskra (Neistinn), rússneskt tímarit, 1901 — 05. Bolsévískt undir stjórn Leníns þar til í Nóvember 1903, en eftir þaó undir stjórn mensévikka (aths. þýö.). 3) Víöa í Evrópu er hægt aö halda fundi í gegnum síma. Samkvæmt beiöni er hægt aö fá tiltekin númer tengd saman, þannig aö fleiri en tveir geta ræöst viö í einu (aths. þýö.). 4) Einbylgju-smáraviötæki: útvarpsviötæki sem aö- eins er hægt aö stilla á eina stöö (aths. þýö.). 5) Hvaö varöar „hversdagsleg" og „einföld" fyrir- bæri er nákvæmni og skýringarhæfni líkans Newtons jöfn líkani Einsteins. En auk þess aö skýra einföld fyr- irbæri, skýrir kenning Einsteins ýmiss önnur atriöi eins og t. d. samband á milli efnis og orku og veitir okkur þannig dýpri skilning á eöli efnisheimsins. Munurinn á þessum tveimur kenningum felst fyrst og fremst í þeim eðllsmun sem á þeim er en ekki í nákvæmnismun (aths. þýö ). 6) Sjá: Morö á einfaldri aödáun — spjallaö viö Ro- bert Filiou; Svart á hvítu, 2. tbl. 2. árg. (aths. þýö.). 62 SVART A HVlTU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Svart á hvítu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.