Svart á hvítu - 01.01.1979, Blaðsíða 57

Svart á hvítu - 01.01.1979, Blaðsíða 57
meðan leynilögreglan þrengir sér inn á heimilin og hlerar kunningja- samtöl, leikur þjóðfélagið þann skrípaleik að þykjast hafa allt aö trúnaðarmáli og þykist hafa smá- smugulegustu áhyggjur af verndun einkalífsins þó að ekkert sé hins vegar friðhelgt nema kúgararnir. Aðeins með skipulagningu og sam- vinnu er hægt að rífa þessa pappírsveggi niður. Samskiptanet sem hnýtt er í slíkum tilgangi geta auk eiginlegs notagildis verið vís- bending og dæmi um skipulagslíkan sem hefði pólitískt notagildi. í sósíalísku hreyfingunum hefur día- lektíkin milli aga og sjálfkvæðis (spontaneity), miðstýringar og vald- dreifingar, valdstjórnar og valdaf- neitunar lengi hringsólað á sama bletti. Net-útbreiðslulíkanið sem byggt er á víxlverkunarlögmálinu getur gefið vísbendingar um hvern- ig vinna eigi bug á þessu ástandi: fjöldadagblað sem bæði er skrifað og dreift af lesendum sjálfum, vídeónet pólitískt virkra hópa, o. s. frv. Þegar innra samræmi fjölmiðl- anna er náð, eyðileggja þeir einka- framleiðslumáta borgaralegrar menntastéttar róttækar og hraðar en samanlögð góð áform þeirrar sömu stéttar og með mun meiri ár- angri en hinn existensíalíski stéttar- flótti. Virkt vinnu- og námsferli breytir einstaklingshyggju mennta- stéttanna — sósíalismi þeirra er mjög persónulegur og grundvallast oft á tíðum á hugmyndinni um sjálfsfórn — og veitir þeim nýjan pólitískan skilning og hefur þannig áhrif á breytni þeirra. 11. Ein ersú fullyrðing sem allt of víða er viðtekin, sem sé sú að kapí- talismi nútímans lifi á framleiðslu gerviþarfa. Þetta er í besta falli hálf- sannleikur. Niðurstöður hinna víð- lesnu bandarísku félagsfræðinga svo sem Vance Packard hafa tak- markað gildi þótt ekki séu þær gagnslausar. Kenningar þeirra um hvernig hægt sé að vekja þarfir með auglýsingum og gervifyrningu hluta, skýra engan veginn það aðdráttarafl og það dáleiðsluvald sem fjölda- neyslan virðist hafa yfir almenningi. Sá hluti borgarastéttarinnar sem telur sig vera pólitískt upplýstan hampar mjög kenningunni um ,,neysluþvingun“, sem kemur mjög vel heim og saman við fordómana um hversu smáborgaralegt og spillt láglaunafólkið sé orðið og hversu vel það falli inn í kerfið. Aödráttarafl fjöldaneyslunnar felst hins vegar ekki í því að verið sé að smygla gerviþörfum inn í fólk heldur sýnir hún hvernig gróðahyggjunni hefur tekist að beina fullkomlega eólileg- um og ósviknum þörfum inn á rang- ar brautir, þörfum sem jafnframt eru forsenda auglýsingaiönaðarins. Sósíalísk hreyfing á hvorki að af- skrifa né hæðast að slíkum þörfum heldur taka þær alvarlega, rannsaka þær og nýta þær pólitískt. Þetta á einnig við um vitundar- iðnaöinn. Orsök þess að fjölmiðl- arnir skuli vera eins ómótstæðilegir og raun ber vitni er ekki að finna í neinu slungnu bragði, neinu sér- stöku ,,trixi“ sem þeir beiti heldur í hinu að í þeim fær frumkraftur raunverulegra félagslegra þarfa út- rás og það þrátt fyrir öfugsnúna notkun þessara sömu fjölmiðla. Þarfir fjöldans eru enn sem fyrr ó- plægður akur þar sem enginn virðist hafa áhuga á að rannsaka þær, að minnsta kosti ekki meðan þær eru nýtilkomnar sögulega séð. Þær ná áreiðanlega langt út fyrir þann ramma sem verkalýðshreyfingin setur baráttu sinni. Á sama hátt og vöru- og vitundariðnaðurinn spanna í vaxandi mæli svið hvor annars í framleiðslunni, fléttast huglægt saman hið hlutstæða og hið óhlut- stæöa hjá einstaklingnum. Þetta á sér félagslegar og sálrænar orsakir (t. d. félagsleg viðurkenning, við- miðunarmunstur) en einnig nýjar og mjög mikilvægar orsakir sem við getum kallað útópískar eða af út- ópískum toga. Frá efnishyggjusjón- armiði eru báðar þessar orsakir afar mikilvægar. Henri Lefebvre hefur stungið upp á hugtakinu sjónarspil (spectacle) til að tákna núverandi stig fjölda- neyslunnar. Vörur, sýningarglugg- ar, borgarumferð, auglýsingar, stórverslanir, táknheimur, frétta- dreifing, umbúðir, arkitektúr og framleiðsla fjölmiðlanna mynda saman eina heild, tiltekna sviðsetn- ingu, sem er ráðandi alls staðar jafnt á torgum og strætum sem á heimil- um. Viðkvæðið ,,Bo Bedre" breytir jafnvel algengustu búsáhöldum í sviðsmuni í þessari daglegu hátíð og blætiseðli vörunnar skyggir á notagildi hennar. Sóunin sem þessi stöðuga veisla hefur í för með sér er afleiðing þjóðskipulagsins. Annað kemur og til. Þessi mikla neysla og vöruflóð leiðir fólk í þá villu að verið sé að útrýma skorti hverju nafni sem hann nefnist. Allt hið svívirðilega og klúra við þessa veislu stafar af því að þessa ósk er ekki hægt að uppfylla. Jafn lengi og skortur ríkir verður notagildið það eina sem máli skiptir, nokkuð sem einungis verður breytt með blekkingu. Stórkostleg blekk- ing af þessu tagi er því aðeins hugsanleg, að hún eigi sér stuóning í þörf fjöldans. Þessi þörf, hin útóp- íska þörf, er til staðar. Þaó er krafan um nýtt umhverfi, um nýtt fegurðar- mat, sem ekki er einskorðað við „fagrar listir". Það er langt í frá að allar þessar óskir fái útrás í leikregl- um kapítalismans. En þær búa í manninum og verða ekki bældar lengur. Vöruleikritið er smjörþefur og jafnframt skopstæling á útópísk- um aðstæöum. Töframáttur fjölmiölanna er enn eitt dæmið um svipað ósamræmi. Þeir eru svar við almennri þörf fyrir andlega fjölbreytni (sem fær efnis- CONSUMERS NAME COMMODITIES NAME THE ACT OF CONSUMING IS AM ACT OF IMAGINATION DRAWING TEXT DATl Of CONSUMTOON Neyslan er hugverk. „Vöruleikritið er skopstæling á útópískum aðstæðum." SVART Á HViTU 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Svart á hvítu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.