Birtingur - 01.12.1955, Page 8
ROBERT UESNOS:
Þrjú Ijóð
Robert Desnos er fxddur í l’arís árið 1900, dáinn árið
1945 í fangabúðum l’jóðverja í Tere7,in í Tékkóslóvakíu.
llelztu verk: Corps et biens (Gallimard). Fortune (sama
útg.). Choix de poémes (Ed. de Minuit).
Skuggar trjánna í vatninu
Svona líka tæru og hreinu
Getur þaff veriff aff slíkur spegill,
þungur af slýi og þungur af skýjum og þungur
af dauða
Spegli ykkur svona réttilega
Marteinn fiskimaður
Ég greini liti þína
Ég greini liti blómanna
Og liti prammanna sem fara hjá
Og allt þetta er ekki annaff en speglun
í skitugu vatni, fullu af slýi og óhollustu.
Leggjumst á gangstéttina
Undir heitri sól, undir þveginni sól
í góðum ilmi ryksins
Af gengnum degi
Áður en nóttin rís
Og við eygjum í ræsinu
Spegilmynd æðandi skugga
Og blóffflekk sjónhringsins
Og fyrstu stjörnuna yfir húsunum
(1942)
Þú gengur fyrstu götu til hægri
Þú fylgir árbakkanum
Þú ferð yfir brúna
Þú berff aff dyrum á húsinu
Sólin skín
Áin rennur
í glugga skelfur rósapottur
Bifreið ekur eftir bakkanum hinumegin
Þú snýrff þér aftur aff glafflegu nágrenninu
Án þess aff taka eftir aff dyrnar hafa opnazt aff
baki þér
Húsfreyja stendur í dyrunum
Húsið er fullt af rökkri
En á borðinu sést geislinn
Geisli dagsins á ávexti og flöskum
Á tindiski og húsgagni
Og þú stendur kyrr á þröskuldinum á milli
Heims sem er fullur af þínum líkum
Og einmanaleika þíns sem dunar
Af öllum heiminum.
Jón Ósliar íslcnzkaði.
6