Birtingur - 01.04.1956, Qupperneq 29
C. F. A. Voysey:
íbúðarhús
1901
Verkíræðingar
19. aldar
Þessir menn hreinsuðu andrúmsloftið og sneru fyrstir baki við dauð-
um reglum listaskólanna. William Morris lét til dæmis reisa sér hús í
bóndabæjarstíl, sem var gjörbylting á þeim tímum og varð að vissu leyti
fyrsti vísir nútíma byggingarlistar. 1 kjölfar fyrrnefndra manna komu
aðrir, sem voru að vísu ekki að reyna að skapa nútíma byggingarlist, er
við nefnum svo nú á dögum, en voru óháðir fortíðinni og reyndu að reisa
hús með tilliti til þess efniviðar, er þeir höfðu yfir að ráða. Þannig var til
dæmis um C. F. A. Voysey, sem reisti aðallega sveitasetur í algjörlega
nýjum stíl, og Norman Shaw, er fyrstur lét reisa svokölluð garðahúshverfi,
sem eru fyrirmynd ótölulegra húsaþyrpinga í útjöðrum stórborganna.
Að vissu leyti er þó upphafs nútíma lista að leita í verkfræðilegum
byggingarframkvæmdum, stórbrúm, jámbrautarstöðvum, hafnarskemm-
um, sýningarsölum. Verkfræðingar 19. aldar eru fyrstu nútíma húsa-
meistarar að því leyti, að þeir notuðu stálbita og stálgrindur löngu áður
en ihúsameistarar höfðu gert sér grein fyrir nytsemi þeirra við smíði nú-
tíma húsa. En verk þessara fmmherja geta vart talizt til byggingarlistar
vegna þess, að þau skorti bæði stíl og fegurð.
Á meginlandinu tók einnig að roða af nýjum degi eins og í Englandi.
Ein fyrsta tilraunin, sem gerð var þar til að skapa nútíma stíl, nefndist
Art Nouveau, á þýzku Jugendstil. Hún skar sig úr endurvakningarhreyf-
ingum þeim, er áður getur, að því leyti að reynt var að snúa algjörlega baki
við fortíðinni og skapa eitthvað nýtt. Upphafsmaður hennar var Belginn
Henri van de Velde. Hann beitti sér fyrir að listamenn og húsameistarar
ræddu gildi innri gerðar og forms fyrir byggingarlist, en eini árangur
þeirra viðræðna varð uppfinning nokkurra blómamunstra. Enn í dag geta
þeir, sem ganga niður í neðanjarðarbraut Parísar, séð leifar þessarar
tízkustefnu í vafningum járngrindanna, sem umlykja niðurstigið. Art
Nouveau átti miklu fylgi að fagna á heimssýningunni í París árið 1900.
27