Birtingur - 01.04.1956, Page 39

Birtingur - 01.04.1956, Page 39
að segja strax farinn að taka afleiðingum þess, að honum er ljóst, að hann er staddur í hversdags- legu umhverfi. Sumt af því, sem hann sýnir nú eru virðingarverðar tilraunir til að móta efnið sam- kvæmt listrænum kröfum. Með öðrum orðum: Vinnulagið er stórum viðfelldnara en fyrr. Hins vegar er súbjektíf afstaða til málverksms nær ó- breytt. Hafsteinn Austmann Þótt Hafsteinn Austmann hafi ekki málað lengi, kveður hann sér hljóðs á þann hátt, að menn hljóta að leggja við hlustirnar. Af eldri myndum varð fátt ráðið um hæfileika hans en nýju olíumálverk- in taka af allan vafa. Hér er gott málaraefni á ferð. Einkum virðist litarkenndin upprunaleg, eins og raunar hjá flestum íslenzkum málurum, sem ein- hver töggur er í. Aftur á móti hefur hann orðið fyrir sterkum áhrifum af „stílum“ eldri listamanna og leitar að persónulegu tjáningarformi, þótt ekki verði annað sagt en hann leysi sum verkefnin með prýði. Hafsteinn Austmann: Vatnslitamynd 37

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.