Birtingur - 01.12.1957, Side 26
Thor Vilhjálmsson:
SYRPA
Kirsuberjalaus garður
Það var dapurlegt hversu til tókst um
fyrstu sýningu Þjóðleikhússins á verki eftir
Tsékov, þá ráðamenn hússins uppgötvuðu
loksins þann höfund við það að Leikfélag
Reykjavíkur sýndi Þrjár systur eftir hann.
Kirsuber jagarðurinn er öndvegisverk
Tsékov, segir J-L. Barrault, einn mesti leik-
húsmaður Frakka sem setti það á svið í
París: .... „Kirsuberjagarðurinn fæðist í
þögn,“ segir hann. . .
Allt byggist á því að skapa sterkan geð-
blæ með óendanlega fínlegum tilbrigðum,
hver leikari verður að leggja sitt til í hinni
miklu hljómsveit sviðsins, finna sannleik
hlutverks síns og leggja hann fram í réttu
og hnitmiðuðu samræmi við hina túlkend-
urna svo að þessi mikla fúga mannsálna nái
að hljóma. Hin yfirlætislausa en dýra músík
sem liggur í verkum Tsékov er óskilgreinan-
legri en flestar aðrar leikbókmenntir, það
liggur ekki ljóst fyrir öllum að hin einföldu
orð sem leikara er ætlað að bera fram eru
lykill að hjarta, og líka einskonar geðblæv-
arrím í mynztrum verksins, ómissandi tónn
í heildarbyggingunni.
Ég held að enginn leikari geti leikið Tsékov
án djúprar og auðmjúkrar einlægni. Þar get-
ur ekkert leikbragð bjargað, á tækni einni er
óhugsandi að leika Tsékov, allt kernur að inn-
an, orðin sem Tsékov leggur leikaranum til
eru farvegur fyrir þær tilfinningar sem liggja
honum djúpt í brjósti og leynast, hafa ekki
verið kallaðar fram og formaðar, slíkan sjóð
eiga flestar manneskjur, og það vissi Tsékov.
Hann gefur leikaranum réttinn til þess að
vera manneskja á sviðinu í krafti þess sem
býr í honum sjálfum, hans eigin sannleikur í
leynum djúpsins er kallaður fram og gefið
mál og gerfi til að lifa í sammannlegri sin-
fóníu. 1 slíku hlutverki reynir á leikarann
hvort hann er maður.
Á sýningu Þjóðleikhússins skorti einlægn-
ina, annað hefði verið hægt að fyrirgefa. Við
getum ekki krafizt leiktækni eins og gerist í
höfuðborgum út um lön.din En einlægni eig-
um við að heimta af þeim sem reyna að túlka
Tsékov. Ekki veit ég hvað hefur helzt vakað
fyrir leikstjóranum Walter Hudd. Ég efast
um hann sé heppilegur til að stjórna þessu
viðfangsefni, mig grunar að hann skilji
Tsékov ekki. Ég hef heyrt að í Kaliforníu
séu þeir að reyna að búa til Camenbert-ost
en séu svo þrifnir og hreinlátir að þeir byrji
á því að drepa vandlega alla þá gerla sem
byrla ostinum þann keim og eiginleika sem
gera hann að heimsfrægu lostæti. Líkt held
20
Birtingur