Birtingur - 01.12.1957, Síða 32
sónu lófatak og lofgerðarrullu, þetta voru
allt vandaðir listamenn og fágaðir sem unnu
svo fallega saman og nutu sínbeztí samsöngn-
um og það var hreinn Mozart sem við heyrð-
um.
Loks má nefna þær gleðifréttir úr tónlist-
arlifinu að ný hlið hefur komið fram á hinum
fjölbreytilegu hæfileikum útvarpsstjórans
sem tilkynnti nýlega að útvarpið hefði stofn-
að til samkeppni um sönglög við nokkur kvæði
Jónasar Hallgrímssonar. I fréttaauka sagði
hann frá dómnefnd sem skyldi dæma verkin,
og taldi sjálfan sig fyrstan þeirra sem skipa
þessa dómnefnd útvarpsins. Hann gat þess
að fyrstu verðlaun fyrir lag við stutt ljóð
væru 1500 krónur, það mun samsvara auka-
tekjum ihans af dagskrárfé útvarpsins á ein-
um vel heppnuðum sunnudegi (erindi til á-
bætis sunnudagssteikinni: um menningarmál
til meltingarörvunar krónur 1000,00 plús
þátturinn Á bókamarkaðnum krónur 500,00,
samtals krónur 1500.00). Það er ánægjulegt
að vita að þarna er uppsiglandi tónlistarráðu-
nautur sjálfs síns og er sami maður sagður
hafa 30 þúsund krónur árlega fyrir að vera
bókmenntaráðunautur útvarpsins, ráðleggja
sjálfum sér um bókmenntir. Ennfremur er
þessi maður formaður Þjóðleikhússráðs þar
sem hann kvað sitja fyrir framsóknarflokk-
inn, jafnframt mun honum vera greitt það
kaup sem bókmenntaráðunauti er ætlað, auk
þess er hann í leikritavalsnefnd hússins, ekki
veit ég betur en öll þessi embætti séu launuð.
Þessutan hefur maðurinn tíma og afgang af
vitsmunum og starfsorku auk víðsýni til að
vera fulltrúi sjálfstæðisflokksins í mennta-
málaráði og bókmenntaráðunautur þess. Ég
veit ekki um aðra menn sem hafi verið
treyst til þess að vera opinberum stofnunum
til ráðuneytis um bókmenntir.
Fiskkerið forna!
Froskur stekkur ofan í
Plomp segir vatnið
Furu-ike ya
Kawazu tobi-komu
Mizu no oto
Basho (1644—1694)
26 Birtingur
Teiknað og þýtt úr japönsku hefur
Pierre Naert