Birtingur - 01.12.1957, Blaðsíða 35
og hverfa frá samkeppni um teikn-
ingu ráðhússins?
1. Það er upphaf þessa máls, að fram-
kvæmdastjóri ráðhússnefndar, Þór Sandholt,
arkitekt sneri sér til Arkitektafélags íslands
með beiðni um að félagið aðstoðaði við und-
irbúning og framkvæmd samkeppni um teikn-
ingar að ráðhúsi fyrir Reykjavík. Málaleitan
þessari var játað, og var málinu — eins og
lög félagsins mæla fyrir — vísað til sam-
keppnisnefndar, sem átti fundi með fram-
kvæmdastjóranum. Málið kom þó strax fyrir
félagsfund að nýju, þar sem fyrirspurnir
framkvæmdastjórans snerust fljótlega um
slík afbrigði frá samkeppnisreglunum, að
nefndin gat ekki svarað án þess að leita
álits félagsins. Gekk málið síðan nokkrum
sinnum milli félagsins og nefndarinnar, og
var að síðustu orðið samkomulag um öll at-
riði önnur en bann við þátttöku meðlima ráð-
hússnefndar, en á slíkt bann vildi ráðhúss-
nefnd ekki fallast. Á fundi í Arkitektafélag-
inu, þar sem þessi mál voru til umræðu, hafði
framkvæmdastjóri ráðhússnefndar þó lýst
því yfir, að ef Sigvaldi Thordarson sæti næsta
fund ráðhússnefndar, teldi hann útilokað, að
hann gæti velsæmis vegna tekið þátt í sam-
keppninni, því þá yrði farið að ræða húsa-
skipun og tilhögun hússins ■— en Sigvaldi
var einn af meðlimum ráðhússnefndar.
Eftir þetta mun það hafa verið aðalstarf
ráðhússnefndar að semja „prógram" fyrir
ráðhúsið, það er að segja: ræða og ákveða
alla innbyrðis tilhögun hússins. Þegar þess-
um störfum var lokið, varð sú breyting á,
að Sigvaldi Thordarson sagði sig úr nefnd-
inni, en í hans stað kom Guðmundur Vigfús-
son, bæjarfulltrúi. Sigvaldi hafði ekki séð
ástæðu til að segja sig úr nefndinni fyrr,
þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar félagsmanna
í þá átt.
Þess skal að lokum getið, að eftir að ráð-
hússnefnd hafnaði kröfu Arkitektafélagsins
um útilokun ráðhússnefndar frá þátttöku í
samkeppninni, samþykkti meirihluti sam-
keppnisnefndar A.l. samkeppnisútboðið, eins
og það lá fyrir frá hendi bæjarins. Meirihluti
nefndarinnar var Sigvaldi Thordarson, arki-
tekt og Gísli Halldórsson, arkitekt og bæj-
arfulltrúi.
2. Nei, enda hefur ráðhússnefnd ekki borið
við að afsaka þá framkomu sína, og varpar
sú þögn skærara ljósi yfir afstöðu ráðhúss-
nefndarinnar en mörg orð fengju gert.
Hannes Kr. Davíðsson.
Hvaða meginmun telur þú vera á því
að efna til samkeppni um lausn verk-
efnis af þessu tagi og þeirri aðferð
ráðhússnefndar að fela sundurleitum
hópi arkitekta að teikna ráðhúsið?
Munur þessara tveggja aðferða við að leysa
verkefni í byggingarlist verður einfaldlegst
skýrður á eftirfrandi hátt:
Tilgangur samkeppni hlýtur að vera:
1. að finna beztu drögin að lausn verkefnis-
ins
2. að fá fleiri mismunandi lausnir til saman-
burðar
3. að gefa arkitektum færi á að koma á fram-
færi tillögum um nýjungar í byggingar-
tækni og formi.
4. að örva arkitekta til að gera sitt ýtrasta
á skömmum tíma til að afla hugmyndum
sínum viðurkenningar og keppa að því að
Birtingur 29