Birtingur - 01.12.1957, Qupperneq 37
um árangri leyst verkefni eins og
það sem hér um ræðir?
Meðal erlendra þjóða eru samkeppnir við-
tekin regla, sem sjaldan er brugðið frá, svo
mikilvægar eru þær taldar hverju þjóðfélagi.
Um þær liggja þeir straumar sem ríkjandi eru
í byggingarlist, hugmyndir fæðast og taka
form, þeim er komið á framfæri. Vandfundin
er betri leið til þess að kynnast viðhorfum
og hæfni manna, einkum þó ungra manna og
óþekktra — og reyndar allra sem liggur eitt-
hvað á hjarta.
Óskiljanleg er því sú ákvörðun ráðhúss-
nefndar að hætta við samkeppni af þeim
ástæðum einum, að ágreiningur ríkti um eitt
atriði. Samkeppni um teikningar að ráðhúsi
Reykjavíkur er og verður sjálfsagðasta leiðin
og engin önnur er vænlegri til árangurs. Sam-
keppni mundi leysa úr læðingi allt hið bezta
sem íslenzkir arkitektar hafa til málanna að
leggja.
Að afþakka slíka aðstoð er hreint fallítt
ráðhússnefndar. Að fela sex arkitektum með
ólík viðhorf að leysa verkefnið getur aldrei
blessazt. Aðferðin er röng, — nema einn væri
ráðandi og hinir honum til aðstoðar. Eflaust
gæti hver einstakur hinna umræddu sexmenn-
inga leyst verkefnið betur af hendi en þeir
allir saman.
Málið þarf að athuga af nýju: gefa sex-
menningunum kaffi á Borginni og biðja þá
afsökunar á ónæðinu. Koma síðan á lagg-
irnar skandínavískri samkeppni um ráðhús
Reykjavíkur.
Skarphéðinn Jóhannsson.
ingu ráðhússins í félagi við þá arki-
tekta aðra sem kvaddir voru til verks-
ins. Vildir þú gera grein fyrir hvers
vegna þú taldir þér ekki fært að taka
þátt í slíku samstarfi?
Ég svaraði með þessu bréfi:
Hr. borgarstjóri.
Ráðhússnefnd bæjarstjórnarinnar hefir
samþykkt að bjóða til samkeppni meðal Is-
lendinga um teikningar að ráðhúsi (bréf 22.
ág. 1956).
Arkitektar hafa fagnað þessu boði, sam-
komulag hefur orðið í öllum meginatriðum
um samkeppnisskilmála, og val dómnefndar
farið fram af hálfu A.I.
Því tel ég ekki rétt, og raunar óheimilt að
svo komnu máli, að verða við boði ráðhúss-
nefndar um að taka að mér, með sjö öðrum
arkitektum, að gera uppdrætti að ráðhúsi
Reykjavíkur.
Þakka traustið, sem mér er sýnt með þessu
boði.
Virðingarfyllst
Gunnl. Halldórsson.
Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja þetta
frekar, en Hörður Bjarnason, húsameistari
ríkisins hafnaði einnig boðinu — spyrjið
hann.
Gunnlaugur Halldórsson.
Svör höfðu ekki borizt frá arkitektunum
Sigvalda Thordarson og Guðmundi Kr. Guð-
mundssyni, þegar ritið fór í prentun.
Það hefur vakið mikla athygli, að þú
afþakkaðir boð um að vinna að teikn-
Birtingur 31