Birtingur - 01.12.1967, Side 6

Birtingur - 01.12.1967, Side 6
hollustu, þjónustusemi við auðveldsöflin. Ekk- ert var eins hatað og þær vinstristefnur sem voru í andstöðu við stalínismann, þannig að sjálfir fulltrúar auðvaldsins virtust hátíð hjá þeim vinstrimönnum sem voru flokkaðir sem villutrúarmenn, við könnumst við glós- urnar: endurskoðunarsinnar sem nú er farið að kalla endurskoðunarsvín. í blindri heift er komið á kreik orðaleppum sem eiga að duga til að gereyða málstað þess sem véfengir hina alvitru forustu. Þegar Ungverjalandsmálin voru á döfinni fundu frjóir snilliandar upp sví virð ingar f or múluna: tilfinninganæmir rithöfundar — sem öll kippan hafði á hrað- bergi og át upp eftir hinum andríka upphafs- manni eða samkvæmi slíkra til að gera sig skot- helda fyrir efasemdunum og ónýta málin fyrir skáldum og rithöfundum sem blöskraði aðfar- irnar við að berja niður uppreisnina gegn stal- ínasminum í Ungverjalandi. Og þá þarf ekk- ert að hugsa út í það hvort það sé í sjálfu sér svívirðilegt að rithöfundar hafi næmar tilfinn- ingar og hver væri hin rökfræðilega niðurstaða af slíkri ályktun. Né hver væri útópía þeirra manna sem þannig hugsa. Er það samfélag termíta og maura? Eða fasisminn? Bók Kolakowski er þó fyrst og fremst byggð á þeirri spurningu: er bara ein leið til sósíal- ismans? Eru engir aðrir kostir? Hann kemst að þeirri niðurstöðu að það séu fleiri leiðir. Sektarisminn sé mark um stöðnun, einskonar ellihrörnun og geldingu. Þegar hin pólitísku samtök eru hætt að vera tæki en orðin mark í sjálfu sér, einhverskonar virki sáluhjálpar 1 sértrúarflokki þar sem hin æðsta dyggð er að verja þær forsendur sem þegar eru afmarkað- ar og hindra af öllu afli lögmæta endurskoð- endur í því að komast í bókhaldið. Kolakow- ski lítur ekki á marxismann sem endanlega kenningu og fullreiknað dæmi heldur and- lega þróunarlínu í samspili og tvítogi hug- sjóna og vísinda sem byggir á vissum grund- velli frá Marx og hefur þau einkenni sem hann nefnir: skilyrðislausa skynsemisafstöðu andans, róttækt gagnrýniviðhorf, algeran skort á tilfinningasemi við þjóðfélagsfræði- legar rannsóknir og determínisminn sem segir að við sömu aðstæður komi sömu fyrirbærin. Kolakowski segir að ídeólógían sé summan af þeim sjónarmiðum sem þjóna þjóðfélagshópi (stétt en ekki bara henni) til að kerfisbinda þau gildi sem túlka dulmagnaða sjálfsvitund þessa hóps starfsemi hans og stefnun . . . með öðrum orðum, segir hann: þjóðfélagshlutverk ídeólógíunnar er að styrkja trúna á þau gildi sem eru nauðsynleg til þess að hópurinn geti starfað og náð árangri. Innan ideólógíunnar koma til greina goðsögnin eða mýtan sem er summan af frásögum einstakra atburða svo sem í sögu guða eða einstakra manna þegar 4 BIRTINGUR

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.