Birtingur - 01.12.1967, Side 17
dómsdagsprédikun, sem hann þrumar yfir
samfélaginu? Vissulega er Bunuel mannspott-
ari, en hann hefur samúð með manninum og
vill vekja hann uppúr þessum andlega doða
með því að sýna hann í sinni nöktustu mynd.
Bunuel gefur „lausn", en maðurinn er ekki
fær um að læra af yfirsjónum sínum og hjúpar
sig aftur dulu siðmenningarinnar. Þessi
„lausn“, sem Bunuel gefur okkur í kvikmynd-
inni, er tilkomin vegna sterkra áhrifa frá kenn-
ingum Freuds.
Eftir að hafa lokið við Engil dauðans flyzt
Bunuel til Frakklands og hefur dvalizt þar
síðan, en hefur samt látið í veðri vaka, að hann
vilji hverfa aftur til Mexíkó.
Úr dagbók herbergisþernunnar (Le
Journal d’une femme de chambre) er gerð
eftir sögu Octave Mirbeaus og fer hin ágæta
franska leikkona, Jeanne Moreau, með aðal-
hlutverkið. Annar þekktur kvikmyndahöfund-
ur hefur einnig gert rnynd eftir þessari sögu:
Jean Renoir. Saga þessi fjallar um unga þjón-
ustustúlku, sem kemur til afskekkts sveitaset-
urs í Normandie. Hún fær vinnu hjá kynlegu
fólki, og gerast karlmennirnir harla áleitnir
við hana. Þessi kvikmynd er yfirborðskennd-
Herra Rambour (Jean Ozenne) að máta gömul stígvél á Celestine (Jeanne Morcau). Úr „Le Journal
d’une femmc de chambre".
BIRTINCUR
15