Birtingur - 01.12.1967, Síða 23

Birtingur - 01.12.1967, Síða 23
EINAR HÁKONARSON: NOKKUR ORÐ UM GRAFÍK f sænska tímaritinu Konstvannen (4. tbl. 1964) birtist grein um grafík á íslandi eftir sænska myndlistarmanninn Börje Sandelin, þá ný- kominn úr ferð til landsins. Eru þar nefndir nokkrir íslenzkir myndlistarmenn, er unnið hafa í svart og hvítt, þ. e. lagt stund á grafíska list. Höfundinum finnst furðu sæta, að graf- ísk list skuli ekki hafa þróazt í þessu landi bók- menntanna og kemst svo að orði í greinarlok, að grafísk list í venjulegum skilningi sé þar ekki til. Því miður verðum við íslendingar að bíta í þetta súra epli. Hér er náttúrlega fyrst og fremst við íslenzka myndlistarmenn að sak- ast — að fáeinum undanteknum, sem hafa þó gefizt upp á að gera grafík að sjálfstæðri og virtri listgrein á íslandi. Þýðing grafískrar listar á liðnum öldum verð- ur ekki í vafa dregin.Þar um er heimslista- sagan til vitnis. Elztu myndir þrykktar eru t. d. kínverskar tréskurðarmyndir frá um 800 e. K. I Japan voru tréskurðarmyndir þekktar um 1000 e. K., en ná hámarki um 1700 og nokkru síðar fullkomnun f littréskurðarmynd- um, sem hvergi eiga sinn líka á byggðu bóli sökum fínlegra blæbrigða litarins á pappírn- um. í Evrópu, þar sem pappír komst almennt í gagnið um 1300, eru fyrstu þekktar tréskurð- armyndir frá því um 1380. Nokkru seinna kemur þýzki meistarinn Albert Dúrer fram og hefur tréskurðarmyndir í svörtu og hvítu til frjálsrar listgreinar. Starf hans að grafík varð ómetanlegt fyrir síðari tíma, því að með myndum hans öðlaðist grafíkin fullt jafnrétti við aðrar greinir evrópskrar myndlistar. Allflestir hinna fremstu myndlistarmanna hafa æ síðan spreytt sig á þessari margbrotnu og dularfullu listgrein. Hefur grafík átt mikinn þátt í listuppeldi al- mennings, vegna þess að myndirnar eru gerð- ar í mörgum eintökum, sem eru þó hvert og eitt „original” listaverk. Grafísk listaverk eru þrykkt á pappír frá þrykkplötu, sem listamaðurinn hefur sjálfur unnið myndina í með ýmsum hætti eftir eigin- leikum plötunnar. Ég mun nú reyna að lýsa nokkrum grafískum aðferðum. Hinar venju- legustu skiptast eftir þrykkaðferð í þrjá höf- uðflokka: djúpþrykk, háþrykk og planþrykk. Djúpprykh Við djúpþrykk — eða koparþrykk eins og það er venjulega kallað — eru sýrugrafnar línur eða fletir fyllt með þrykklit, sem síðan þrykk- ist á pappír við mikinn þrýsting í koparþrykks- pressu. Dæmi: Sýrubrennsla (etsning), koparstunga. BIRTINGUR 21

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.