Birtingur - 01.12.1967, Síða 26

Birtingur - 01.12.1967, Síða 26
trjástokks er myndin skorin í línóleumplötu. Hún er fremur auðveld viðfangs og gefur möguleika á að vinna frjálslega á margan hátt. Þegar platan er tilbúin til þrykkingar, er hægt að þrykkja með venjulegri matskeið og í bókþrykkspressum í frekar stórum upplög- um. III. PLANÞRYKK Steinþrykk (litografi) Myndin er þrykkt frá sérstakri kalksteinsteg- und eða álplötum, svokölluðum offsetplötum. í allra stærstu dráttum má segja, að aðferðin byggist á því, að fita og vatn skilja sig hvort frá öðru. Myndin er teiknuð eða máluð á steininn með sérstökum litografi - krítum, pennum og bleki. Eftir mjög flókna með- höndlun á steinfletinum er myndin „völsuð inn“ með þrykklit. Festist þá liturinn aðeins á þeim flötum, sem fita er á, þ.e.a.s. teiknuðu og máluðu flötunum. Litgrafik Hvaða grafiskri tækniaðferð sem menn beita, er hægt að þrykkja myndirnar í meira en ein- um lit. Oftast notar listamaðurinn þá fleiri en eina plötu eða einn stein. Hitt er þó einn- ig til, að sama plata sé notuð fyrir marga liti, og þá í kopargrafík. 24 BIRTINGUR

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.