Birtingur - 01.12.1967, Síða 33

Birtingur - 01.12.1967, Síða 33
skraddarasaumuðum fötum með æpandi köfl- um og röndum, með hálsklút, sem maður bjóst við á hverju augnabliki að mundi fljúga eins og fiðrildi undan höku hans, í mjúkum, loðnum úlsterfrakka og með broslegan hatt, sem var tyllt glæfralega upp á hvirfilinn, byggi yfir hæfileikum til þess að skapa búning hin- um stórbrotnu, arfsögulegu sýnum íslands. Samt dylst engum, að hann býr yfir lifandi frjómagni hins sanna listamanns, sem getur óvænt lostið okkur furðu með því að steypa sér út í straumkast voldugra fossa. Bækur hans eru bækur dulýðginnar; faldir fjársjóðir sem yfir brennur rauður logi þjóðsögunnar: segið lykilorðin, Sesam, Sesam opnist þú og dyrnar lúkast upp. Kunnið töfraþuluna, og fjársjóðurinn flæðir upp úr jörðinni og er ykkar. En án galdra og töfraþulu getur eng- inn skilið Laxness til fulls. Hann er fjölkunn- ugur. Fyrir þá, sem geta lesið Laxness á frummálinu, teljast verk hans meðal afreksverka hins rit- aða máls; sem manneskja er hann einn af fáum, sem austurlenzkir heimspekingar gætu lofað fyrir að hafa löngum gengið Veginn. Þetta á sér margar skýringar — meðal annars þessa: „Heilög persóna á sér ekkert sérstakt hjarta. Hjarta fólksins er hjarta hennar. Ég elska hið góða. Hið illa elska ég líka.“ Laxness voru veitt Nóbelsverðlaunin sem málsvara húmaniskra hugmynda, og sjaldan á undanförnum árum hefur þeim verið svo réttilega varið. Sem félagslegur umbótamaður hefur hann ekki verið neinn smábæjarskít- kastari. Á því sviði er hann einnig stór í snið- um; og hann veit af reynslunni, að maðurinn lifir ekki af brauði einu saman. Sem sagt: hann byrjaði með því að heimta brauð og endaði með því að sanna, að andleg fegurð, sem birtist jafnvel í helvíti líkamlegr- ar ánauðar, getur alls staðar töfrað fram líf og unað. Þegar hann með fáránlegum og skop- legum, tragiskum og tragikómískum dráttum lýsir hugmynd sinni um eymd — og í rauninni er það aðeins hugmynd og tákn, en ekki sann- söguleg mynd af hversdagslegri fátækt hins ís- lenzka bónda, sem birtist okkur — þá spinnur hann ofurfínan, næfurþunnan vef, hann spinnur upp ljóð, þar sem við á sama hátt og Ólafur Kárason erum „gestir ódauðleikans". Mjög fáir rithöfundar á okkar tímum geta á sama hátt og Halldór Laxness boðið lesend- um sínum til veizlu meðal guðanna sem gest- um ódauðleikans. Og mjög fáir nútímahöfundar eru eins og hann vinir alls heimsins, allra þjóða. Friður- inn, „hinn sanni tónn“, sem maður skynjar í honum sem mannlegri veru, og maður þekkir af bókum hans, stingur hlægilega í stúf við hið óviðráðanlega, ytra eirðarleysi. BIRTINGUR 31

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.