Birtingur - 01.12.1967, Page 45
Framgrunn í jarðlitum, miðgrunn í gróðrar-
litum, bakgrunn í bláum tónum fjarlægðar.
Þannig opnast myndin í fjarlægð og dýpt, og
í henni birtist mikilfengleiki landslagsins líkt
og örugglega mótuð uppbygging landsins.
Hátt ofar öllu hvíla í tignarlegri einveru
jöklarnir (sem „alltaf eru við höndina"). Við
sjáum mann sem kann íþrótt sína og iðn. Af
og til kemur listagyðjan og kyssir hann. Þá
getur kviknað í myndum hans furðulegt ljós
á heiðarhimni eða í mildri aftureldingu yfir
fannbreiðum jöklanna, og orðið til verk sem
er meira en handverk ... listaverk. Þ. Þ. var
listamaður upphafsins. Mér finnst ósennilegt,
að það sé tilviljun ein, að dögun og morgun-
roði, kvöldhúm og afturelding eru þeir tímar
dagsins sem Þ. Þ. voru geðfelldastir. í verk-
um Jians birtast eins og í morgunsárinu
útlínur ltinnar miklu landslagslistar, sem
seinna meir verður að viðfangsefni heillar
kynslóðar.
En lífsbarátta Þ. Þ., listræn stefna hans, jafn-
vel fyrstu hugleiðingar Alþingis um að styrkja
myndlistina, allt þetta er eins og ljós eftir
langvarandi myrkur. Þessi árbjarmi, sem svo
mjög einkennir myndir Þ. Þ., átti eftir að
verða í verkum Ásgríms og Jóns Stefánssonar
að hádegisbirtu. Hin raunhæfu form lands-
lagsins í verkum Þ. Þ. áttu seinna eftir að
sveiflast { hrynjandi óháðrar og írjálsrar tján-
ingar. Liturinn er leystur úr þeim álögum að
lýsa hlutunum og gæddur andlegum og hug-
lægum tjáningarmætti. Hin umdeilda harm-
onia er leyst upp í litfagnað hástemmdra til-
finninga, lieiftugra geðlirifa expressionismans.
Hin upprunalega hógværð og lotningarfulla
einvera Þ. Þ. andspænis náttúrunni víkur
seinna fyrir kröftugri sjálfsvitund nýrra kyn-
slóða, jafnvel hroka og ofsa. En Þ. Þ. var
maður hógvær. Myndir lians bera þess vott.
Við 100 ára afmælissýningu Þórarins Þorláks-
sonar var hreyft þeirri spurningu hvort það
hafi verið söguleg nauðsyn eða stað- og tíma-
bundin tilviljun, sem réði listaferli Þórarins.
Víst er þó að allar þess konar vangaveltur
verða að beygja sig fyrir staðreyndum hinnar
raunverulegu þróunar sem vaxð: Þ. Þ. hafði
fengið í sínar liendur það mikla lilutverk að
vera upphafsmaður íslenzkrar myndlistar.
Mun óvíða dæmi sem lýsa á jafnfrábæran
hátt, hvernig lífsbarátta og æviferill eins
manns samlagast og móta um leið þróun
hinnar íslenzku myndlistar. Listasafni íslands
ber mikið þakklæti fyrir að hafa efnt til þess-
arar fróðlegu sýningar. Hún gaf mönnum ekki
aðeins kost á að kynna sér verk Þ. Þ. í heild
sinni, sem Iiingað til var næstum óþekkt, held-
ur veitti hún innsýn í hinn stórmerka þátt
um: Uppruna og dögun nútíma myndlistar
á íslandi.
BIRTINGUR
43