Birtingur - 01.12.1967, Side 60
breytilegu byggingu er hálf-net getur haft
samanborið við einfaldleikann í byggingu
trés. Það er þessi skortur á margbreytileika
byggingar, þetta einkenni trjáa, sem er að
eyðileggja hugmyndir okkar um hvað nútíma-
borg eigi að vera.
Tilbúnar borgir, sem eru tré
Til þess að sýna þetta, skulum við líta á nokkr-
ar nútímahugmyndir um borgir sem í megin-
atriðum eru allar tré eins og ég mun sýna.
Það mun e.t.v. hjálpa til, ef við höfum einfalt
stef í huga, meðan við lítum á þessar teikn-
ingar:
„Stórar flugur hafa litlar flugur
sem bíta þær bak við haus.
Litlar flugur hafa minni flugur
og þannig er röðin endalaus.“
Þessi vísa skýrir nákvæmlega og stuttlega bygg-
ingarreglu trés.
1. Columbia, Maryland. íbúðahverfi, fimm í
hóp, mynda „þorp“. Umferðaræðar binda
þorpin við nýjan bæ. Skipulagið er tré.
2. Greenbelt, Maryland, Clarence Stein. Þessi
„garð-borg‘ er brytjuð niður í risa-blokkir
(super-block) (blokk: svæði sem er umkringt
akvegi en frjálst fyrir fótgangendur). Sérhver
risa-blokk inniheldur skóla, garða og nokkrar
minniháttar húsaþyrpingar byggðar umhverfis
bifreiðastæði. Skipulag: tré.
3. Skipulag fyrir Stór-London (1943), Aber-
crombie og Forshaw. Teikningin sýnir hvernig
Abercrombie hugsar sér Stór-London. Hún
samanstendur af fjölda borgarfélaga, sem öll
eru vandlega einangruð frá nærliggjandi borg-
arfélögum. Abercrombie skrifar: „Uppástung-
an leggur áherzlu á eiginleika þeirra borgar-
félaga, sem eru þar þegar fyrir hendi, eykur
sérstöðu þeirra og endurskipuleggur þau, þar
sem nauðsyn krefur, sem sérstæða og ákveðna
heild.“ Og annars staðar: „Borgarfélögin sjálf
samanstanda af undir-einingum, venjulega
með eigin búðir og skóla, samsvarandi ná-
grannaíbúðareiningum." — Borgin er hugsuð
sem tré af tveim gráðum. Borgarfélögin eru
stærri einingar byggingarinnar, íbúðarhverfin
hinar minni. Engar af einingunum hafa neitt
sameiginlegt. Skipulagið er tré.
4. Skipulag Tokyo, Kenzo Tange. Hér er dýr-
legt dæmi. Skipulagið er röð af lykkjum sem
teygja sig yfir Tokyo-flóa. Það eru þrjár aðal-
lykkjur, sem hver inniheldur 3 miðlungs-
lykkjur. í annarri aðal-lykkjunni er ein mið-
lungs-lykkjan járnbrautarstöð, önnur er höfn.
Á hinn bóginn inniheldur hver miðlungs-
lykkja 3 minni lykkjur og í þeim eru íbúðar-
hverfi, nema þriðju aðal-lykkjunni, þar sem
ein inniheldur opinberar byggingar og önnur
skrifstofur iðnaðarins.
5. Mesa City, Paolo Soleri. Hin lífræna lögun
58
BIRTINGUR