Birtingur - 01.12.1967, Page 62
heraga og strangleika. Þegar borg er gefið tré-
skipulag, er það nákvæmlega þetta, sem verður
um hana og íbúa hennar. Neðri myndin sýn-
ir eigin tillögu Hilberseimers fyrir verzlun-
arsvæði í borg byggða á frumhugmyndum her-
bækistöðvar.
Sérhvert þessara skipulaga er tré.
Einingarnar sem tilbúin borg er gerð úr, eru
alltaf skipulagðar til að mynda tré. Til þess
að fá skýra mynd af því hvað það merkir,
skulum við útskýra tréð á ný:
Þegar við höfum tré-skipulag fyrir framan okk-
ur, táknar það, að innan þessa skipulags er
enginn hluti neinnar einingar nokkurntíma
sameiginlegur öðrum hluta annarar einingar,
nema að því leyti að vera e.t.v. tengdur heilli
einingu.
Erfitt er að gera sér grein fyrir hve afdrifarík
þessi takmörkun er. Það er sambærilegt við,
að meðlimir fjölskyldu gætu ekki átt vini ut-
an hennar, nema öll fjölskyldan tæki þátt í
vináttutengslunum.
Hin einfalda bygging trés er eins og þving-
andi löngun að vera snyrtilegur og heimta að
kertastjakarnir á arinhillunni séu nákvæmlega
beinir og nákvæmlega með jöfnu bili fyrir
miðju. Hálf-netið til samanburðar er skipu-
lag úr margþættu efni, það er skipulag lifandi
hluta — stórkostlegra málverka og sinfónía.
Það verður að leggja á það áherzlu, til þess
að reglusami lesandinn hrökkvi ekki við í skelf-
ingu yfir öllu, sem er ekki nákvæmlega hreint
og klárt í tré-formi, að hugmyndirnar um sam-
tengingu eininganna, óskýrleika, fjölbreytilegt
útlit og hálf-net eru ekki óreglulegri en
stranga tréð, heldur reglulegri. Þær sýna efnis-
meiri, ákveðnari, skarpari og margþættari
skipulagssýn.
Við skulum nú líta á, hvernig náttúrlega borg-
in verður hálf-net, þegar hún er óþvinguð af
tilbúnum sjónarmiðum.
Lifandi borg er og verður að vera hdlf-net.
Sérhver eining í hverju tré, sem ég hef lýst,
er föst og óbreytt eftirhreyta einhvers kerfis
í lifandi borg. Hús er t.d. hlutlægar eftirstöðv-
ar samskipta einstaklinga innan fjölskyldu,
tilfinninga þeirra og eigna þeirra. Hraðbraut-
ir eru eftirstöðvar hreyfinga og verzlunarvið-
skipta. En tré inniheldur aðeins mjög fáar
slíkar einingar. — þannig að í borg með tré-
skipulagi geta aðeins fá kerfi þess haft hlut-
læga mótparta. Þúsundir mikilvægra kerfa
hafa enga hlutlæga mótparta.
í verstu dæmum af trjám samsvara þær ein-
ingar, er í ljós koma, ekki neinu raunverulegu
lífi. Og hin raunverulegu kerfi, sem í reynd
gæða borgina lífi, hafa ekki verið útbúin
neinni hlutbundinni umgjörð.
Hvorki Columbia-skipulagið né Stein-skipu-
60
BIRTINGUR