Birtingur - 01.12.1967, Síða 65
samkvæmt skilgreiningu okkar eining. Eining-
arnar sem samsvara mismunandi miðpunktum
fyrir sama hverfi, þ.e. Waterloo Road, eru
sýndar í 11. mynd.
Óslitna línan er takmörk hins svokallaða
hverfis sjáfs. Grái depillinn er unglingaklúbb-
urinn og litlu lokuðu hringirnir eru bústaðir
meðlima hans. Depillinn með hringnum um-
hverfis er klúbbur fullorðna fólksins, og með-
limir hans búa innan svæðanna sem afmörkuð
eru með strikalínu. Hvíti ferningurinn er póst-
húsið og punktalínan afmarkar eininguna, sem
notendur þess búa í. Gagfræðaskólinn er dep-
illinn með hvíta þríhyrningnum í. Ásamt
nemendum sínum myndar hann kerfið sem
afmarkað er með strik-punkta-línu.
Eins og þú sérð strax falla mismunandi ein-
ingar ekki saman. Þó eru þær ekki ósam-
stæðar. Þær skerast.
Við getum ekki fengið nægilega góða hug-
mynd af því hvernig Middelsborough er, eða
hvernig hún ætti að vera, þótt við sjáum fyrir
okkur 29 stór og sæmilega heilleg íbúðahverfi.
Þegar við lýsum borg sem íbúðahverfum, telj-
um við skilyrðislaust, að minni frumhlutarn-
ir innan sérhvers þessara íbúðahverfa séu svo
fast tengdir saman, að þeir eigi aðeins afskipti
af frumhlutum í öðrum íbúðahverfum með
heild þess íbúðahverfis, er þeir tilheyra sjálfir.
Ruth Glass hefur sjálf sýnt greinilega að það
er öðru nær.
12 og 13 eru skýringarmyndir af Waterloo-
íbúðahverfinu. Ég hef valið úr nokkur svæð-
isbrot, til að geta betur rökstutt hvað ég á við.
12 sýnir hvernig þessi svæðisbrot falla saman
í raun og veru. 13 sýnir hvernig endurskipu-
lagningin segir til um samsetningu þeirra.
Það er ekkert til í eðli hinna mismunandi mið-
punkta, sem segir að söfnunarsvæði þeirra
eigi að vera hið sama. Eðli þeirra er mismun-
andi. Og þessvegna eru einingarnar, sem þeir
aðgreina, mismunandi. Náttúrlega borgin
Middelsborough var trú hálf-nets skipulagi
sínu. Aðeins í tilbúnu hlutum borgarinnar
eru eðlilegu, réttu og nauðsynlegu eininga-
tengslin eyðilögð.
Hið sama kemur líka fyrir íminnimælikvarða.
Tökum til dæmis aðgreining fótgangandi
manna og akandi bifreiða, tré-hugmynd frá Le
Corbusier (1920-30), Louis Kahn og mörgum
öðrum. Það virðist mjög góð hugmynd, þegar
við höfum ekki íhugað hana. Það er jú hættu-
legt að hafa bifreiðar á 90 km hraða innanum
trítlandi smábörn. En það er ekki alltaf góð
hugmynd. Það kemur fyrir að sérstakt ástand
krefst hins gagnstæða. ímyndaðu þér að þú
sért að koma út úr búð eftir að hafa verið
að kaupa inn allan daginn; þú ert með fangið
fullt af bögglum og að niðurlotum kominn
BIRTINGUR
63