Birtingur - 01.12.1967, Page 72

Birtingur - 01.12.1967, Page 72
flækju munstursins, einfölduðu það með því að láta línur ekki skerast. 18. mynd sýnir tvær nokkuð dæmigerðar útgáfur teikninga af munstrinu fyrir ofan. í teikingunni hafa hring- irnir verið aðskildir frá hinum hlutanum, þríhyrningarnir og hringarnir skerast ekki lengur. Þessar tilraunir gefa ákveðið til kynna, að komi fólk í námunda við flókið fyrirkomu- lag, hefur það innra með sér tilhneigingu til að endurskipuleggja það í huga sér sem einingar, er ekki skerast. í stað flækju hálf- netsins er sett tré-form, sem er einfaldara og fólk skilur betur. Þið eruð líklega farin að velta því fyrir ykk- ur, hvernig borg líti út, ef hún er hálf-net, en ekki tré. Ég verð að játa, að ég get ekki sýnt ykkur skipulag eða skissur. Það er ekki nóg að láta einingar skerast, þær verða að skerast rétt. Þetta hefur tvöfalt gildi, vegna þess, að það er svo freistandi að gera skipu- lag, þar sem einingar skerast af sjálum sér. Það er það, sem kemur fyrir í þéttbýlisskipu- lagi síðari ára, sem eru „full af lífi“. En skurð- ir eininga út af fyrir sig er ekki skipulag. Það getur líka verið ringulreið. Ruslatunna er full af einingum sem skerast. Til að fá gott skipulag verður að leitast við að flétta rétt og það er okkur allt annað en sambærilegar fléttur í sögulegum borgum. Eins og samband BIRTINGUR

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.