Birtingur - 01.12.1967, Síða 73

Birtingur - 01.12.1967, Síða 73
ýmissar starfsemi breytist þurfa kerfin, sem verða að skerast til að fá þetta samband, líka að breytast. Endurtilbúningur gamalla ein- ingaskurða er óhentugur og ruglingslegur í stað þess að vera skipulag. Vinna við að reyna að skilja hvaða eininga- tengsla nútímaborg þarfnast og að finna þeim fast form, er enn í fullum gangi. Unz henni er lokið er ekki ástæða til að sýna einfaldar skissur af skipulagi, sem ekki hefur verið hugsað til hlítar. Samt sem áður get ég e.t.v. gert afleiðingar tengslanna skiljanlegri með skýringarmynd- um. 19. mynd er af málverki eftir Simon Nicholson. Töfrar myndarinnar felast í því að hún er gerð úr fremur einföldum þríhyrn- ingum, sem sameinast þó á marga mismun- andi vegu og mynda stærri einingar myndar- innar. Ef við gerum nákvæma skrá yfir skynj- anlegu einingar myndarinnar, finnum við að liver þríhyrningur fellur inn í fjóra eða fimm mismunandi hópa, enginn þeirra er innifal- inn í öðrum en þó skerast allir í sama þrí- hyrningnum. Ef við númerum þríhyrningana og veljum úr þá hópa, er birtast sem ákveðnar sjáanlegar einingar, fáum við hálf-netið, sem sýnt er í 20. skýringarmynd. Þrjú og 5 mynda einingu vegna þess að þeir vinna saman sem ferhyrningur; 2 og 4 vegna þess að þeir mynda samsíðung; 5 og 6 vegna þess að báðir eru dökkir og benda í sömu átt; 6 og 7 vegna þess að annar er endurtekn- ing hins; 4 og 7 vegna þess að þeir eru tví- hverfir; 4 og 6 mynda annan ferhyrning; 4 og 5 vegna þess að þeir mynda einskonar Z; 2 og 3 mynda eitthvað þynnri Z; 1 og 7 eru í andstæðum hornum; 1 og 2 eru enn einn ferhyrningur; 3 og 4 benda í sömu átt, einn- ig 5 og 6; 3 og 6 vegna þess að þeir inniloka 4 og 5; 1 og 5 vegna þess að þeir inniloka 2, 3 og 4. Ég hef aðeins talið upp einingar hverra tveggja þríhyrninga. Stærri einingarnar eru enn flóknari. Hvíti hluti myndarinnar er svo mun flóknari og er ekki talinn með vegna þess hve erfitt er að vera viss um frumhluta hans. Málverkið er ekki mikilvægt vegna þess að það hefur einingaskurði (það hafa mörg mál- verk), heldur vegna þess að það hefur ekkert nema einingaskurði. Það er aðeins vissan um skurðina og þar af leiðandi fjölbreytileiki, er gerir myndina töfrandi. Það er eins og lista- maðurinn hafi gert ákveðna tilraun til að taka fyrir einingaskurði sem mikilvægar uppistöð- ur myndbyggingar. Allar tilbúnu borgirnar, sem ég hef lýst, hafa tré-skipulag fremur en hálfnets-skipulag það, er málverk Nicholsons hefur. Þó er það mál- verkið og aðrar myndir eins og það, sem verð- ur að vera grundvöllur hugsana okkar. Og ef BIRTINGUR 71

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.